Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Page 28
Ferðafélag Íslands 17. janúar 2020KYNNINGARBLAÐ
Það var fyrir meira en heilli öld,
árið 1912. Maður getur rétt ímyndað
sér hvernig skíði hann hafði undir
fótum sér á jöklinum.
„Sennilega er ég með eitthvað
fjalla-DNA sem þarf að fá útrás
á jöklum og fjöllum. Þetta er
hreinlega lífsstíll og gefur mér mikla
lífsfyllingu, en hjálpar mér líka að
halda jafnvægi í krefjandi starfi sem
skurðlæknir,“ segir Tommi.
Búnaðurinn gríðarlega mikilvægur
Það er að ýmsu að huga í
aðdraganda ferðar en réttur
útbúnaður er mikilvægastur.
„Athuga þarf að skinn undir skíðin
gleymist ekki og að þau passi á
skíðin,“ segir Tommi. „Það þarf
líka að passa að skórnir séu rétt
stilltir fyrir skíðin og að stafir séu í
lagi. Síðan má ekki gleyma réttum
fatnaði og hlýjum auka vettlingum
og hlýrri húfu en líka sólgleraugum
og skíðagleraugum. Að minnsta
kosti þrjú lög eiga við í öllum
vetrarferðum,“ segir Tommi og er
þá ekki að tala um nein popplög,
heldur lögin í hlífðarklæðnaðinum.
Farastjórar eru alltaf búnir GPS
tækum og kortum og Tommi segir að
alls ekki megi gleyma góða skapinu.
Reyndar eru þeir það hressir Tommi
og Helgi að það þarf að hafa mikið
fyrir því að smitast ekki af fjallagleði
þeirra tveggja.
Öryggið í öndvegi
Þeir Tommi og Helgi leggja áherslu
á öryggið enda um vetrarferðir á
fjöllum að ræða og gera verður ráð
fyrir því að veður geti skipast í lofti
og ýmsar hættur leynast í íslenskri
náttúru allt árið um kring.
„Í fyrsta lagi þurfa allir
þátttakandur að hafa ýli,
snjóflóðastöng og létta skóflu
meðferðis,“ segir Tommi. „Við
gefum engan afslátt á því,“ segir
hann og verður mjög ákveðinn
í röddinni. „Fararstjórar eru
búnir léttum fjallgöngureipum
og sprungubjörgunarbúnaði. En
markmiðið er jú að þurfa ekki
að nota þennan búnað. Allir eru
með göngubelti og létta ísöxi,
auk mannbrodda. Í öllum ferðum
FÍ eru með í för fararstjórar
með mikla reynslu af svona
ferðum og alltaf einhverjir með
sprungubjörgunarréttindi. Allir
fararstjórar eru búnir talstöðvum.
Markmið ferðarinnar er samt að
njóta útiverunnar og hafa gaman af
ferðinni þótt öryggið sé alltaf haft í
fyrrrúmi. Sem betur fer hafa þessar
ferðir gengið nánast snurðulaust
fyrir sig í þau ár sem ég hef staðið
fyrir þeim.“
Útvörður íslenskrar náttúru
Tómas hefur látið til sín taka
í umhverfisvernd og vakið
landsathygli fyrir baráttu sína í þeim
efnum. Hann segir að hin óspillta
náttúra Íslands sé helsta kryddið í
tilveruna og gefi honum orku, bæði
líkamlega og ekki síður andlega.
„Að koma á svæði eins og
Lónsöræfi, Kverkfjöll, Öskju og
Hornstrandir hleður batteríin í
fleiri mánuði. Þess vegna sækir
maður þangað aftur og aftur,“
segir Tommi og verður dreyminn á
svip. „Ég fékk hálendið beint í æð
mjög ungur og dvaldi heilu sumrin í
tjaldi í óbyggðum. Eftir að ég flutti
heim fyrir fimmtán árum eftir tólf
ára sérnám tók ég upp þráðinn
með kollegum mínum og síðar FÍ
sem hefur gefið mér mikið. Ég hef
afar mikið að gera í minni vinnu
en hef samt tekið frá tíma fyrir
leiðsögn í ferðum FÍ. Það geri ég
ekki fyrir peninga heldur er fátt sem
gefur mér meira en að sýna fólki
ósnortna náttúru landsins. Þakklátir
ferðalangar eru mikil hvatning.
Ég segi líka að þetta sé besta
náttúruverndin, að sýna fólki landið
og hvað það hefur upp á að bjóða.
Náttúruvernd er tvímælalaust eitt
að því sem ég brenn mest fyrir og
hef gert síðan ég man eftir mér.“
Ferðirnar framundan
Framundan í vor og sumar eru sex
spennandi fjallaskíðaferðir þar sem
farið er á tinda með þeim Tomma
og Helga sem gefa fólkið alveg
magnað útsýni. „Við reynum að
blanda saman ferðum sem teljast
hefðbundnar fyrir fjallaskíðafólk,
t.d á Heklu og Eyjafjallajökul,“ segir
Tommi en bætir því svo við að þeir
reyni um leið að brydda upp á nýjum
leiðum, t.d. á Hvannadalshnjúk.
Þessar ferðir eru nú í boði:
• 29. febrúar Snæfellsjökull
bakdyramegin
• 4. – 5 apríl: Kaldbakur þvers
og kurs
• 30.apríl – 3. Mai – Fjallaskíði
á Ströndum
• 16.maí – Birnudalstindur
Ótrúlega skemmtilegt sport
Tommi segir að ferðir á skíðum
séu ótrúlega skemmtilegar og
miklu auðveldari en margir haldi.
„Þetta er einhver mesta bylting í
ferðamennsku á síðastliðnum árum.
Reyndar eignaðist ég mín fyrstu
fjallasvigskíði fyrir 35 árum en síðan
hafa orðið stórstígar framfarir sem
hafa átt þátt í þeirri sprengju sem
þetta sport er orðið. Þar koma við
sögu léttari skíði og betri skinn,
breiðari skíði sem fljóta vel á púðri
eða blautum snjó, en sérstaklega þó
betri og léttari skór og fullkomnari
bindingar,“ segir Tommi.
„Vettvangurinn fyrir þetta sport,
þ.e. snævi þakin fjöll með ómældu
fjallalofti, er síðan eitthvað sem fáar
aðrar íþróttagreinar geta státað af.
Og síðast en ekki síst er það bara
þannig að í þessu sporti er sérlega
skemmtilegt fólk sem tekur sig ekki of
alvarlega.“