Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Síða 36
Ferðafélag Íslands 17. janúar 2020KYNNINGARBLAÐ
Öryggisreglur
Ferðafélag Íslands hefur unnið að áhættumati fyrir fjölmargar gönguleiðir á Íslandi og er þeirri
vinnu haldið áfram. Vinnan felst í því
að kortleggja þær hættur sem við
er að etja, sem geta auðvitað verið
fjölmargar, sérstaklega þegar ferðast
er að vetrarlagi.
Helstu áhættur í
vetrarferðamennsku
• Hætta á að hrasa – renna í hálku
• Hætta á að renna í fjalllendi í
harðfæri – hálku
• Hætta á að hrapa fram af
fjallsbrúnum / klettum
• Hætta á að villast – verða úti
• Hætta á að lenda í óveðri – verða
úti
• Hætta á að verða blautur – kaldur
– krókna
• Hætta á að falla í gegnum ís á
vatni
• Hætta á að lenda í snjóflóði /
aurskriðum
• Hætta á að verða sambandslaus
• Hætta á að lenda í vandræðum
vegna þess að maður er vanbúinn
/ illa búinn
• Hætta á að vanmeta aðstæður /
ofmeta sjálfan sig
Þetta er að sjálfsögðu ekki tæmandi
listi yfir hættulegar aðstæður sem
göngufólk getur lent í þegar það
stundar vetrarfjallamennsku. Mikilvægt
er að undirbúa sig vandlega fyrir
hverja ferð.
Undirbúningur fyrir ferð
• Kanna aðstæður á leiðinni, t.d.
snjóalög, hálku, aurbleytu eða
annað og ekki fara í ferðina nema
aðstæður séu góðar.
• Fylgjast með veðurspá fyrir
ferð – sé veðurspá slæm og gert
ráð fyrir meira vindhraða en 18
metrum á sekúndu er rétt á fresta
ferð eða breyta. Rétt er að hafa í
huga að veður breytist hér á landi
á örskammri stundu. Þá er veður
til fjalla yfirleitt mun verra en í
byggð.
• Athuga hvort snjóflóðahætta sé
á viðkomandi leið og tryggja að
þátttakendur eigi ekki á hættu að
lenda í snjóflóði. Hér má nálgast
snjóflóðaspár Veðurstofunnar.
• Mikilvægt er að fara yfir búnað
sem þarf til hverrar ferðar miðað
við aðstæður og tryggja að allir
séu rétt búnir.
• Nauðsynlegur búnaður í allar
vetrarferðir eru: nærfatnaður
úr ull er bestur eða gerviefnum,
gott millilag t.d. flís eða stretch
og góður hlífðarfatnaður, jakki og
buxur, vind og vatnsheldur. Þá er
nauðsynlegt að vera með húfu
og vettlinga. Góðir gönguskór eru
nauðsynlegir, helst háir, með góðri
styrkingu yfir ökla og grófum botni.
Gott að hafa hálkubrodda en
rétt að hafa í huga að þeir duga
skammt í krefjandi aðstæðum
og geta veitt falskt öryggi. Ef leið
liggur um brattlendi eða klettabelti
er nauðsynlegt að hafa með
ísbrodda. Ef farið er í ísbrodda þá
þarf viðkomandi að hafa ísexi í
hendi.
• Mikilvægt er að hafa GPS tæki og
kunnáttu til að vinna með tækið.
• Göngustafir veita stuðning í
ákveðnum aðstæðum.
• Nauðsynlegt er að hafa hlaðinn
farsíma með í ferð.
• Aldrei skal vera einn á ferð í
vetraraðstæðum.
• Láttu vita af ferðum þínum og
áætlaða heimkomu. Gott er að
nota safetravel.is
• Gott er að hafa bakpoka með
auka hlífðarfatnaði, sjúkrapoka,
nestisbita og heitt á brúsa.
• Gott er að kaldstarta sem kallað
er, það er að vera ekki of mikið
klæddur í upphafi og hafa frekar
fatnað í bakpoka. Göngumaður
er mjög fljótur að ganga sér til
hita en um leið þarf að varast
að svitna. Blaut föt og kuldi eru
hættuleg göngumanni. Þess
vegna er mikilvægt að vera í
fatnaði sem andar eða tekur
ekki í sig raka.
• Gott er að lesa og fræðast um
vetrarfjallamennsku og auka
þannig þekkingu sína. Eins
er gott að læra af reyndari
fjallamönnum og byggja upp
reynslu sína og þekkingu.
Hægt er sækja námskeið
um vetrarfjallamennsku hjá
Ferðafélagi Íslands og fleiri
aðilum.
Með fróðleik í fararnesti
Með fróðleik í fararnesti er samstarfsverkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands þar sem mörg þúsund manns, ungir og aldnir, hafa gengið í borgarlandinu og hlotið þrennt: góða útivist, fína hreyfingu
og fróðleik í fararnesti frá vísindamönnum Háskólans. Þetta verkefni hófst
fyrir tæpum tíu árum og hefur verið fróðlegt, hollt og spennandi og aukið
áhuga almennings á vísindum og fræðum og á íslenskri náttúru sem víða
leynist í borgarlandinu.
Undanfarin ár hefur samstarfið við Háskólann að langmestu leyti verið í
gegnum Ferðafélag barnanna og því hefur vísindamiðlunin helst beinst að
börnum og fjölskyldufólki. Þannig verður það áfram í vetur þegar verkefnið
hefst á ný með miklum tilþrifum.
„Markmiðið með Ferðafélagi barnanna hefur ávallt verið að skapa
skemmtilegan vettvang fyrir börn og fjölskyldur þeirra til að njóta útiveru,
takast á við nýjar og spennandi áskoranir og hafa einafaldlega gaman af
því að leika sér úti,“ segir Dalla Ólafsdóttir, sem leiðir Ferðafélag barnanna
ásamt eiginmanni sínum, Matthíasi Sigurðarsyni. Hann segir að í verkefninu
með Háskóla Íslands mæti flinkir og flottir vísindamenn sem bjóði upp á
fróðleiksgöngur um fugla, skordýr, sveppi, fjöruna, eldfjöll, stríðminjar og
stjörnurnar svo fátt eitt sé nefnt. „Þetta eru gríðarlega vinsælar göngur
ár eftir ár og mjög ánægjulegt að geta boðið börnum upp á að njóta
náttúrunnar og fá fróðleik samhliða. Vísindamenn Háskólans hafa vakið
mikla athygli í göngunum fyrir að draga fram mikilvægi rannsókna og
vísindastarfs fyrir íslenskt samfélag, fyrir lífríkið okkar og umhverfið.“ Sjá
nánar um ferðirnar á www.fi.is