Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Side 49

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Side 49
SAKAMÁL 4917. janúar 2020 Saksóknarinn fullyrti að hjón- in hefðu í sameiningu brugg- að fröken Barrow banaráð til að komast yfir fjármuni henn- ar. Herra Seddon hefði soðið arsenik-flugnapappír í vatni sem hann síðan blandaði saman við mixtúrurnar sem læknirinn hefði skrifað upp á fyrir frökenina. Sekt og sýkna Málalyktir urðu þær að herra Seddon var sakfelldur en eigin- kona hans var sýknuð. Þannig vildi til að herra Seddon og dómarinn, herra Buckhill, voru báðir í Frímúrara- reglunni og í þann mund sem dómarinn var að fara að kveða upp dóm sinn reyndi Seddon að notfæra sér þá staðreynd með því að fara með háfleyga yfirlýsingu: „Ég lýsi því yfir, frammi fyrir hin- um mikla skapara alheimsins, að ég er saklaus.“ Dómarinn svaraði: „Við vit- um báðir að við tilheyrum sama bræðralagi. En bræðralag okkar hvetur ekki til glæpa.“ Segir sagan að sést hafi tár á hvarmi Buckhill þegar hann mælti þau orð. Síðan kvað hann upp dauðadóm. Angist eiginkonu Svo skemmtilega vill til að böð- ullinn sem sá um að fullnægja dómnum, John Ellis, skrifaði endurminningar sínar og sagði meðal annars um þetta mál að Margaret Seddon hefði sést í grennd við fangelsið að morgni aftökunnar. Frú Seddon ku hafa leigt herbergi gegnt fangelsinu og hafði vakað þar í angist alla nóttina. Síðustu metrarnir Um herra Seddon skrifaði John Ellis: „Seddon veitti mér enga athygli þegar ég vatt mér að hon- um og batt handleggi hans fyrir aftan bak.“ Ellis sagði að Seddon hefði verið hnarreistur þegar hann gekk að gálganum. „Svo sá hann snöruna dinglandi á bitanum og missti aðeins ró sína. Hann lokaði augunum til að útiloka þessa sýn og gekk það sem eftir var með sig- in augnlok.“ Fumlaust og fljótlegt Böðullinn gat ekki á sér setið að hafa orð á eigin frammistöðu: „Yfir- fangavörðurinn tók tímann frá því að ég gekk inn í klefa þess dæmda þangað til boltinn var dreginn úr fallhleranum á gálganum eftir að Seddon hafði gengið þá 18 metra sem aðskildu þessa tvo staði. Frá upphafi til enda lauk þessu verki á aðeins 25 sekúndum.“ n AUÐUR, EITUR OG AFTAKA n Herra Seddon gerði samning sem hann hugðist ekki standa við n Fröken Barrow varð að deyja n Upp komast svik um síðir „Svo sá hann snöruna dinglandi á bitanum og missti aðeins ró sína Frederick Henry Seddon Sveik samning sinn og gott betur. Eliza Mary Barrow Auðæfi hennar urðu henni dýrkeypt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.