Íþróttablaðið - 01.09.1948, Side 11
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
3
fcá Argentina (mjög fjölmennur flokk-
ur), Ástralía og svo hver þjóð af ann-
arri. Fæsta þátttakendur höfðu Panama
og Malta, 2 hvor. Búningarnir voru yfir-
leitt mjög skrautlegir og fallegir. Flestir
voru þó í dökkum jökkum og ljósum bux-
um (og pilsum), en innbyrðis var mikil
fjölbreytni eftir því hvaða íþróttagrein
var um að ræða.
Sá búningur, sem mun hafa vakið
einna mesta athygli, var sá danski. Það
var hárauður jakki, hvítar buxur (pils)
og húfur, eða dönsku fánalitirnir. Ann-
ars hafði innganga Islendinga að sjálf-
sögðu mest áhrif á okkur landana. —
Svona stór hópur islenzkra íþróttamanna
hafði aldrei gengið inn á Olympíuleik-
vang. Klukkan var 3,20 þegar skátinn
kom í ljós með merkisspjaldið — Island
— síðan gekk Finnbjörn Þorvaldsson
tignarlega inn á völlinn með fánann okk-
ar kæra. Fremstir í ísl. flokknum voru
Hallgr. Fr. Hallgrimsson og Erlingur
Pálsson, þá Björn Björnsson, Ólafur
Sveinsson, Einar B. Pálsson, Jens Guð-
björnsson, Jón Pálsson, Torfi Bryngeirs-
son, Jónas Halldórsson og Guðm. S. Hof-
dal. Síðan stúlkurnar og hinir keppend-
urnir ásamt Ekberg. Alls 33 i flokknum.
Strax og landarnir komu inn á völlinn,
klöppuðum við og hrópuðum af öllum
kröftum, mun þó lítið hafa verið tekið
eftir því, en hinsvegar fékk íslenzki
flokkurinn góðar viðtökur hjá áhorfend-
um.
Síðastir í stafrófinu eru Júgóslavar, en
á eftir þeim koma Bretarnir, í dökkbláum
jökkum og hvítum buxum, með svartar
alpahúfur. Þeir eru næst fjölmennastir
allra þjóðanna, Bandaríkjamenn hafa
aðeins fleiri þátttakendur. Stóð það í
járnum, að þegar Bretarnir höfðu fylkt
liði sínu, var völlurinn fullskipaður. Var
það tilkomumikil sjón að sjá þessa 6
þúsund þátttakendur á miðjum vellinum.
Fánar þjóðanna blöktu svo við hún i
hálfhring fyrir ofan áhorfendasætin fyrir
báðum endum vallarins.
Um þessar mundir mynduðu meðlimir
Alþjóðaolympíunefndarinnar hring á
svæðinu frammi fyrir konungsstúkunni,
en Burghley lávarður steig í ræðustólinn
og hélt drengilega hvatningar- og friðar-
ræðu um leið og hann bað konunginn um
að setja leikanna. Var klukkan á mínút-
unni 4, er konungur reis úr sæti sínu
Wembley-leikvangurinn 29. júlí 1948, þegar lúnar 58 þjóöir höföu fylkt þar liöi,