Íþróttablaðið - 01.09.1948, Side 32
24
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
við skiptistrikið! Yfirdómnefndin var
ekki sein á sér að breyta hinum ranga
dómi hlaupstjórans og urðu Bretar því
að afhenda gullverðlaunin í hend-
ur Bandaríkjamanna. Hin rétta verð-
launaafhending fór hinsvegar fram i
kyrþey nokkru seinna í sambandi við
knattspyrnukappleik og ekki tilkynnt-
ur tími sá, sem Bandarikin hefðu náð.
Lauk þar með þessu sögulega boðhlaupi.
4x400 METRA BOÐHLAUP:
Heimsmet: 3:08,2 mín. Bandaríkin 1932.
Olympsmet: 3:08,2 mín. Bandaríkin 1932.
1. Bandaríkin ....... 3:10,4 mín.
2. Frakkland ........ 3:14,8 mín.
3. Svíþjóð............3:16,0 mín.
4. Finnland ......... 3:24,8 mín.
Undanrásir og úrslit þessa boðhlaups
fóru fram sömu daga og 4x100 m. boð-
hlaupsins og rétt á eftir því. Til leiks
mættu 15 sveitir af 17, sem á skrá voru.
Island og Ástralía mættu ekki til leiks.
Það kom okkur löndunum mjög á ó-
vart að íslenzka sveitin skyldi ganga
úr leik og þótt því sé borið við að einn
hlauparinn hafi ekki verið vel fyrir kall-
aður eða jafnvel slæmur í fæti þá
afsakar það ekki það neyðarúræði að
láta heila sveit 4 menn — hætta keppni.
Vitanlega átti varamaður að vera til
taks, jafnvel þótt ekki liti út fyrir að
þyrfti neinn varamann, því auk Óskars
Jónssonar voru a. m. k. 3 keppendur
okkar í 4x100 m. boðhlaupinu færir
um að hlaupa einn 400 m. sprett hálfum
öðrum tima síðar. Að mínu áliti eru
þessi mistök eini skugginn á þátttöku
okkar í Olympíuléikunum, því að þarna
voru brotin orð Coubertin baróns frum-
kvöðuls hinna nútíma Olympíuleika, að
aðalatriðið sé ekki að sigra heldur að
taka þátt í keppninni. Eftir tíma þeim
að dæma, sem náðist i undanrásunum
hefði Island getað orðið fjórða i sin-
um riðli og í miðjum hóp hinna 16
þjóða, sem þátt tóku í boðhlaupinu. 1
styttra boðhlaupinu urðum við hins-
vegar aðeins nr. 11 í röðinni af 15 þjóð-
um og þótti engum skömm að.
Hlaupið var í þremur riðlum og fóru
tveir fyrstu úr hverjum riðli í úrslit,
alveg eins og í 4x100 m. 1 fyrsta riðli
urðu þau óvæntu úrslit að Bretland
var slegið út á 3:14,2 mín. Bandaríkin
fengu 3:12,6 og ítalir 3:14,0. Sviss fékk
3:23,0 mín. en Irar voru dæmdir úr
leik á 3:22,2 mín. Voru Bretar óheppnir
að lenda í þessum riðli, því í hinum riðl-
unum var önnur sveit með 3:17,0 og
3:21,0. 1 öðrum riðli, þar sem ísland
átti að hlaupa, vann Jamaica á 3:14,0.
Frakkland varð nr. 2 á 3.17.0 og Kan-
ada slegið út í Þriðja sæti á 3:19,0. Chile
varð svo fjórða á 3:23,8 og Tyrkland
fimmta á 3:35,0 mín.
1 þriðja riðli vann Finnland á 3:20,0,
Svíþjóð varð nr. 2 á 3:21,0, en Argentína
var slegið út á 3:21,2. Júgóslavía varð
4. á 3:25,4 og Grikkland síðast á 3:33,0
mín. Finnland og Svíþjóð hlupu ekki
hraðar en nauðsyn krafði. Úrslitahlaup-
ið varð allsögulegt, en þó ekki á sama
hátt og hitt boðhlaupið. Italía dró innstu
braut, Frakkland aðra, Jamaíca þriðju,
Bandaríkin fjórðu, Finnland fimmtu og
Svíþjóð sjöttu braut. Var nú búist við
harðri og spennandi keppni um fyrsta
sætið milli Bandaríkjanna og Jamaica,
en það fór nú á annan veg, eins og frá
verður skýrt. Á fyrsta spretti virtist
Rohden (Jamaica) ætli að komast fram
úr hinum unglega Harnden (USA), en
sá síðarnefndi var harðari en hann leit út
fyrir að vera og skilaði keflinu til
hins þrautreynda Bourland, sjónarmun
á undan Jamaicanegranum. Og nú tókst
Bourland að gera þennan sjónarmun að
10 til 15 metra mun móti Jamaícanegr-
anum Laing. Um þessar mundir varð
ítalinn Missoni að hætta vegna togn-
unar og olli það vonbrigðum, því sveit-
in var í þriðja sæti. Við aðra skiptingu
voru Bandaríkjamenn orðnir 15 til 20
m. á undan Jamaica og leizt Wint ekki
á blikuna að þurfa að vinna upp svo
mikið bil á móti ekki lakara hlaupara en
Cochran. Virðist hann hafa teygt helzt
til mikið á sér á langhliðinni því hann
hætti skyndilega og greip um lærið.
Hafði tognað eða fengið sinadrátt. Við
þetta missti hlaupið hinn fyrirhugaða
spenning og síðasti maður Bandaríkj-
anna Whitfield naut þess að þurfa ekki
að flýta sér, en hljóp þó sprettinn á
47,3. Tími hinna þriggja var 48,0 —
47,3 — 47,8. McKenley og Rohden virt-
ust taka óförum Wints frekar illa,
enda fór þar forgörðum gott tækifæri til'
að ná í gullverðlaun. Eftir að Jamaíca
og Italía voru hætt, var Frakkland nokk-
uð öruggt með 2. sætið á undan Svíþjóð.
Hinsvegar virtust Finnar ekki taka á
fullu, þar sem þeir höfðu ekkert að
keppa við. Tími þeirra — 3:24,8 í 4.
sæti á Olympíuleikunum er líka 4,8 sek.
lakari en lágmark það, sem Frjálsíþrótta
samband Islands og Olympíunefndin
setti íslenzku keppendunum. — Urðu
þvl bæði boðhlaupin allsöguleg þótt með
ólíkum hætti ’hafi orðið.
1. John Winter, Ástralíu, 1,98 m.
2. Björn Paulsson, Noregi 1,95 m.
3. D. Edleman, U. S. A. 1,95 m.
4. George Stanich, U. S. A. 1,95 m.
5. G. Damitio, Frakklandi 1,95 m.
6. A. Jackes, Kanada .... 1,90 m.
Undankeppnin í hástökki var fyrsta
frjálsíþróttakeppni karla á þessum leik-
um og hófst kl. 11 f. h. föstudaginn 30.
júlí. Keppendum, sem voru 27, hafði
verið skipt í tvo flokka, eftir stafrófs-
röð; en byrjunarhæðin var 1,60 m. Síð-
an var hækkað í 1,70, 1,80 1,84 og loks
í 1,87 m., sem var lágmark til aðal-
keppninnar síðar um daginn. Veður var
mjög gott, sólskin og hiti, en atrennu-
brautin virtist falla keppendunum mis-
jafnlega í geð, sér í lagi seinni flokkn-
um, sem var látinn nota sömu gryfju.
Það kom brátt í ljós að lágmarkið 1,87
m. var of lágt, enda náðu flestir (20)
keppendur því og gerðu þarmeð undan-
keppnina að hreinum óþarfa. 1,90 eða
jafnvel 1,92 hefði verið heppilegri lág-
markshæð a. m. k. eru líkur til að að-
eins 10 til 12 keppendur hefðu þá kom-
ist i aðalkeppnina, sem varð alltof þreyt-
andi og langdregin með 20 keppendum.
Til samanburðar skal þess getið að
lágmarkið í hinum stökkunum (og köst-
unum), var það hátt að aðeins 4 til 14
keppendur náðu því.
Það kom mjög á óvart, að Banda-
ríkjamaðurinn Verner McGrew, sem tal-
inn var einna líklegastur til sigurs, skyldi
þurfa 3 tilraunir til að komast yfir lág-
markshæðina. Hefir hann þó margsinnis
HÁSTÖKK:
Heimsmet: 2,11 'm. L. Steers, U. S. A. ’J,1
Olympsmet: 2,03 m. Johnson, USA, 1936.