Íþróttablaðið - 01.09.1948, Blaðsíða 35
tóku sig upp i reynslustökkunum og gat
hann alls ekki stigið i fótinn eftir að
hann lauk öðru stökkinu. Athyglis-
verðast við Steele er hin langa atrenna,
sem hann tekur. Að sögn reyndist hún
Tera um 55 metra, enda tók hann sér
stöðu út á hlaupabrautinni nálægt 200
m. viðbragðsmarkinu. Hraðinn og kraft-
urinn var óhemjumikill og framkast
fótanna ágætt en hinsvegar fannst manni
hann skorta nauðsynlegri mýkt síðustu
metrana svo að uppstökkið og hæðin
yrði enn betra. Þótt árangúr Steele’s
sé fullboðlegur Olympíusigurvegara, var
heildarárangur keppninnar mun verri
en búizt hafði verið við. Það var eins
og allir væru miður sín, en sennilega
hefir atrennubrautin. átt einhvern þátt
I þvi. Hver myndi t. d. hafa trúað því
fyrir leikana að 7,07 metra stökk dygði
til að komast í 6 manna úrslit?
Ástraliumaðurinn Bruce kom á óvart
og setti fjör í keppnina með því að kom-
ast á milli Bandarikjanegranna. Willie
Steele er næstbezti langstökkvari, sem
fram hefir komið í heiminum. Bezta
löglega stökk hans er 8,08 m., en þó
hefir hann stokkið enn lengra á æfingu
eða 8,23 m. Landi hans Wright var ó-
heppinn að vera ekki framar en fjórði,
því að hann hefir stokkið lengst 7,90 m.
og gerði að þessu sinni ógilt 7,60 m. stökk.
ÞRÍSTÖKK:
Heimsmet og Olympsmet: 16,00 m.
Naoto Tajima, Japan, sett í Berlín 1936.
1. Arne Áhman, Svíþjóð . . 15,40
2. Gordon Avery, Ástralíu 15,36
3. R. Sarialp, Tyrklandi . . 15,02
4. Preben Larsen, Danmörk 14,83
5. G. Oliveira, Brazilíu .... 14,82
6. K. Rautio, Finnlandi .... 14,70
Þriðjudaginn 3. ágúst hófst þrístökk-
ið með undankeppni kl. 11 f. h. 29 kepp-
endur mættu til leiks og var þeim eftir
venju skipt í 2 flokka. Lágmark til aðal-
keppni var 14,50 metrar og náðu því
þessir 6 úr fyrri flokknum: Avery, 15,33,
Hallgren, Sviþjóð 14,77, Kim, Kóreu 14,
67. H. Silva, Brazilíu 14,64. Áhman
14,60, Albens, USA 14,55 og Larsen 14,52.
Meðal hinna 14 keppenda í siðari
flokknum var Stefán Sörensson, sem
hafði stokkið 14,79 áður en hann fór á
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
leikana og hafði því góða von um að
komast í aðalkeppnina. Því miður tóku
hælmeiðsli sig upp þegar í fyrsta stökki
og varð hann að hætta við svo búið. Þetta
var sérstök óheppni, því að eins og sjá
má af úrslitatölunum varð árangur 6.
manns lakari en met Stefáns. En ó-
heppni og meiðsli geta alla hent, Is-
lendinga sem aðra. Or þessum flokki
komust aðrir 7 yfir lágmarkið, voru það
Rautio, 14,86, A. de Silva, Brazilíu 14,69,
Rebello, Indlandi 14,65, Oliveira 14,59,
Moberg, Svíþjóð 14,57, McKeand, Ástral.,
14,55 og Sarialp, Tyrklandi 14,53.
Það voru því 14 keppendur, sem kom-
ust í aðalkeppnina, er hófst kl. 3,30
sama dag. Ahman byrjaði, náði á-
gætu stökki, sem mældist 15,40 m. —
nýtt sænskt met. Ástralíumaðurinn Av-
ery svaraði með því að stökkva 15,36
en enginn hinna nálgaðist 15 metra.
Rebello sem hafði stokkið 15,29 fyrir
leikana varð að hætta eftir fyrsta stökk-
ið vegna meiðsla. I næstu umferð stökk
Áhman aðeins 14,68, Avery sat yfir,
en hinn 18 ára gamli og bráðefnilegi
Tyrki, Sarialp, stökk hvorki meira né
minna en 15,02, sem var langbezta stökk
umferðarinnar. 1 3. og síðustu umferð
fyrir úrslitin stökk Áhman 14,89 m.,
Avery 14,67 og Sarialp 14,91 m. Hinir
3, sem komust í úrslitin voru Larsen
14,72, Oliveira 14.71 og Rautio 14,70.
Úrslitastökkin voru heldur dauf. Kepp-
endurnir voru auðsjáanlega búnir með
mesta púðrið og atrennubrautin versn-
aði jafnt og þétt. Áhman stökk 14,58,
ógilt, og loks nokkuð yfir 15 í síðasta
(ca. 15,20), en það var aldrei tilkynnt.
Arne Ahman, SvíþjóÖ. Olympíusigurveg-
ari í þristökki.
27
Avery virtist alveg vera búinn að vera,
stökk 14,32 og 14,78 (það siðasta ekki
tilkynnt). Larsen lengdi sig í 14,78 og
14,83 í fimmta. Oliveira stökk aðeins
eitt 14,82 en hætti svo. Rautio stökk
14,66 og 14,58 og svo stökk Sarialp í 2.sinn
15,02 en gerði svo ógilt. Síðasta stökk
allra keppendanna voru aldrei tilkynnt.
Þar með lauk keppninni raunverulega
í fyrstu umferð með sigurstökki Áh-
mans. Hann er aðeins 23 ára og jafn-
vígur á þrístökk, hástökk og langstökk.
Bezta stökk hans fyrir leikana var 15,26
m. Áhman stekkur mjög vel ekki ósvip-
að Stefáni Sörenssyni, hefir ágæta at-
rennu og fyrsta stökk, mjög sæmilegt
miðstökk og sérstaklega gott framskot
og jafnvægi í því síðasta. Avery mun þó
hafa verið álitinn stökkva bezt, enda
þótt hann næði sér aldrei á strik eftir
fyrsta stökkið. Oliveira hafði stokkið
15,41 fyrir leikana en mistókst nú nokk-
uð. Hann hefir mjög stutta en hraða
atrennu, ágætt fyrsta og síðasta stökk
en lélegt miðstökk.
KÚLUVARP:
Heimsmet: 17,68 m. C. Fonville, USA.
Olympsmet: 16,20 m. H. Woelke, Þl. 1936
1. W. Thompson, USA 17,12 m.
2. Jim Delaney, USA . . 16,68 m.
3. James Fuchs, USA . . 16,42 m.
4. M. Lomowski, Póllandi 15,43 m.
5. G. Arvidsson, Svíþjóð 15,37 m.
6. Yrjö Lethila, Finnlandi 15,05 m.
7. P. Jouppila, Finnlandi...14,59 m.
8. Catina, Tékkóslóvakíu....14,55 m.
9. C. Yataganas, Grikklandi .... 14,54 m.
10. W. Gierutto, Póllandi...14,37 m.
11. J. A. Giles, Bretlandi..13,73 m.
12. Sigfús Sigurðsson, tslandi . . 13,66 m.
Um sama leyti og þrístökkvararnir
voru að keppa um það hverjir stykkju
yfir 14,50 m., börðust kúluvarpararnir um
að ná svipaðri lengd hinumegin á vellin-
um. 28 keppendur höfðu mætt til leiks og
var þeim skipt í 2 flokka. I fyrri flokkn-
um vörpuðu eftirtaldir 7 menn yfir lág-
marksskilyrðið 14,60 m.: Fuchs, 15,87;
Delaney. 14,97; Lethila, 14,85; Giles, 14,
80, sem er nýtt brezkt met; Jouppila, 14,
72; Arvidsson, 14,70 og Lomowski 14,70.
I síðari flokknum voru báðir íslenzku