Íþróttablaðið - 01.09.1948, Side 10
2
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
Sigfrid Edström kynnir Ben. G. Waage, fulltrúa Islands í Alþjóöa-Olympíunefnd-
inni, fyrir Bretakonungi.
takan. Aö bera hœrra lilut er ekki aöal-
atriöiö, heldur hitt aö hafa barizt drengi-
lega.“ Hve sönn eru ekki þessi orð, en
hve oft skyldi vera farið eftir þeim? —
Á þessari töflu voru jafnan tilkynnt úr-
slit íþróttakeppninnar, og um leið voru
þjóðfánar þeirra þriggja, sem verðlaun
hlutu, dregnir að hún.
Yfir hinum enda vallarins var önnur
minni tafla, hvít að lit. Á henni voru hin-
ir 5 Olympíuhringir, sem tákna heimsálf-
urnar, en þar fyrir neðan stóðu þessi
latnesku orð: „Citius, Altius, Fortiusen
það þýðir orðrétt: „Hraðari, hærri, sterk-
ari.“
Fyrir miðjum velli, okkar megin; var
konungsstúkan, en gegnt henni hinum
megin vallarins var hljómsveit og mjög
fjölmennur blandaður kór. Framundan
konungsstúkunni var skrautlegur ræðu-
pallur. Vinstra megin við pallinn frá okk-
ur séð stóðu meðlimir Alþjóðaolympíu-
nefndarinnar og brezku framkvæmda-
nefndarinnar, allir í hátíðabúningi — og
biðu komu konungsins.
Kl. 2.45 birtust konungshjónin ásamt
fylgdarliði i aðalinngöngudyrunum (und-
ir konungsstúkunni) og var þeim fagnað
ákaft. Forseti Olympiuleikanna, Portal
markgreifi og F. M. Wells borgarstjóri
Lundúna, tóku á móti konunginum og
kynnti sá fyrrnefndi Sigfrid Edström
forseta Alþjóða olympíunefndarinnar og
Burghley lávarð, formann framkvæmda-
nefndarinnar, fyrir hans hátign.
Að því loknu var leikinn brezki þjóð-
söngurinn, en síðan kynnti Edström alla
meðlimi Alþjóða olympíunefndarinnar
fyrir konungi, en Burghley lávarður
kynnti meðlimi framkvæmdanefndarinn-
ar. Fylgdu þeir Edström og Portal síðan
konungi í sæti hans.
Nú hófst skyndilega mikill trumbu- og
hljóðfærasláttur og um leið varð manni
litið til inngöngudyranna fyrir vinstri
enda vallarins. Sást Þar skáti koma labb-
andi með merkisspjald, sem á var letrað
„Grikkland" en í kjölfar hans komu svo
grízki fánaberinn og aðrir þátttakendur
Grikklands. Þeir voru klæddir í gráa
jakka, í bláum buxum og með hvítar
húfur. Meðal hinna 60-70 grizku þátt-
takenda var aðeins ein stúlka. Grikkir
ganga nú eftir brautinni framhjá kon-
ungsstúkunni og heilsa konungi með
því að snúa höfði til hans, en fánaberinn
lætur fánann síga. Síðan halda þeir á-
fram fyrir beygjuna út að 300 metra
markinu, snúa þar inn á völlinn og stað-
næmast á grasinu þannig að merkisber-
inn eru um 20 m. frá brautarbrún, and-
spænis konungsstúkunni. Grikkir ganga
ávallt fyrstir inn á Olympíuleikvanginn,
vegna þess að vagga Olympíuleikanna
stóð í Aþenu á Grikklandi. Hinar þjóðirn-
ar koma svo í stafrófsröð á eftir, nema
Bretar, sem ganga síðastir.
Það er fögur og tignarleg sjón að fylgj-
ast með hverri fylkingu, sem inn gekk,
en alls voru þjóðirnar 58, sem þátt tóku
í leikunum. Búlgarar, Rúmenar og Vene-
zuelabúar hættu við þátttöku á síðustu
stundu.
Næst á eftir Grikkjum kom Afganistan,
„Þetta er nú meiri hitinn". Leifturmynd frá „fslendinganýlendunni“ á Wembley