Íþróttablaðið - 01.09.1948, Side 15
IÞRÓTTABLAÐIÐ
7
úr hvað stílfegurð og getu snerti. Voru
það Bandaríkjamennirnir Patton (hvít-
ur) og Dillard (svartur), sem þó höfðu
mjög ólíkt hlaupalag. Sá fyrri hár og
grannur, viðbragðsfljótur og tigulegur i
sjálfu hlaupinu með fallegan og drifmik-
inn hlaupastil og sá síðari eldsnöggur
með afar lága legu eftir viðbragðið, en
geysisprettharður og mjúkur alla leiðina.
Um áreiðanlega spádóma gat Þó vitan-
lega ekki verið að ræða, þar sem beztu
mennirnir höfðu ekki enn leitt saman
hesta sína. Fyrri milliriðlarnir 2% stundu
síðar staðfestu þó þetta álit mitt því
Dillard og Patton voru þá þeir einu af
24, sem hlupu á 10,4 sek. og unnu riðla
sína án fyrirhafnar að því er virtist.
Hinn gamalreyndi og skæði Bandaríkja-
blökkumaður Ewell og Panama-heims-
methafinn La Beach unnu hina riðlana
á 10,5 sek. og mátti þó ekki tæpara
standa með La Beach, því að hinn korn-
ungi og efnilegi Ástralíumaður, Treloar,
fékk sama tíma og hafði þó sá þriðji,
Chacon litli frá Kúbu, eldsnöggur negri,
haft foruztuna fram á síðustu metra. —
Þurfti markkvikmyndina (ph. finish) til
þess að skera úr um röðina. Mc Corquo-
dale varð aftur annar á 10,5 (móti Patt-
on) og sama sæti hreppti Bailey í sinum
riðli (10,6) á móti Ewell og Curotta
(Ástraliu) (10,8). Hinir 3, sem komust í
síðari milliriðlana voru Testa (10,6), Jon-
es (10,7) og Bartram (10,6). Haukur
Clausen varð sá 6. og síðasti í sínum
riðli á um það bil 11 sek. Hann lenti á
móti Ewell (10,5), Bailey (10,6), Curotta
(10,8), Lewis (Trinidad) (10,9) og Gold-
ovany (Ungvl.) (10,9). Hefði hann þurft
að hlaupa á 10,7 til að verða 3. og komast
í semifinal.
Undanúrslit (semifinal) fóru fram dag-
inn eftir kl. 2,30. Keppt var í tveim sex
manna riðlum og skyldu 3 fyrstu úr hvor-
um komast í úrslitahlaupið. Orslit urðu
þessi:
1. „semifinal“: 1. Dillard 10,5; 2. Ewell
10,5; 3. McCorquodale 10,7; 4. Bartram
10,8; 5. Testa 10,9; 6. Curotta 10,9. Nú
var loks kominn tími til að taka á, því
að allir vildu verða meðal þriggja fyrstu.
Ewell lá svo mikið á að komast af stað
að hann íór tvisvar á undan skotinu.
Bjuggust nú margir við því að ræsirinn
ræki hann úr enda varð Ewell svo
skömmustulegur og óttasleginn að maður
Dillard (69) vinnur 100 m. hlaupið á 10,3 sek. 2. Ewell (10). 3. La Beach (57).
Jf. Mc Corquodale (36), 5. Patton (11) og 6. Bailey (35).
sárvorkenndi honum. En hvort sem það
var af meðaumkvun eða ótta við 10.2
sek. manninn Þá leyfði ræsirinn honum
að halda áfram. Var Ewell nú svo varkár
að hann tapaði % metra móti Dillard í
viðbragðinu, en hafði næstum náð hon-
um í markinu, enda virtist Dillard ekki
leggja að sér síðustu metrana. Corquo-
dale var seinn framan af og varð að hafa
sig allan við til Þess að ná 3ja sætinu.
2. „semifinal“: 1. Patton 10,4; 2. La
Beach 10,5; 3. Bailey 10,6; 4. Treloar 10,6.
5. Chacon 10,7; 6. Jones 10,9. — Þessi
riðill var mun harðari og jafnari og var
ekki skorið út því hverjir 3 yrðu fyrstir
fyrr en á síðustu 10 metrunum. Um mitt
hlaupið reif Patton sig fram úr keppi-
nautunum án þess að fara nokkuð úr
jafnvægi, en La Beach var með þeim
síðustu þar til á endasprettinum að hann
skálmaði fram úr með risavöxnum en
mjúkum skrefum. Bailey, Treolor og
Chacon komu svo samhliða fast á eftir
og kom það í hlut þess fyrstnefnda að
100 m. úrslit frá v.: Dillard, Bailey, Mc Corquodale, La Beach, Ewell og Patton.