Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.09.1948, Qupperneq 33

Íþróttablaðið - 01.09.1948, Qupperneq 33
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ 25 \ í Winter, Ástralíu. Olympíusigurvegarinn í hástökki. Smith, USA, steJckur lf,30 m. í stangarstökki. stokkið yfir 2 metra og hæst 2,03 m. á þessu ári. En það var fleira, sem átti eftir að koma manni á óvart í þessari hástökkskeppni, svo sem hér vérður sagt frá. Kl. 4,45 sama dag hófst aðalkeppn- in og lauk henni ekki fyrr en seint og síðar meir. Byrjað var á 1,80, en síðan hækkað í 1,90, 1,95 og 1,98 metra. Vegna stórviðburða á hlaupabrautinni fóru há- stökksúrslitin mjög framhjá bæði á- horfendum og að því er virtist sjálf- um þulnum. En hvort sem það var brautinni, hitanum eða taugaóstyrkn- um að kenna, náðist mun lakari árang- ur í hástökkinu en almennt hafði verið reiknað með. Á 1,90 m. féllu flestir úr þ. á m. bandaríski meistarinn McGrew, Gundersson Noregi, Nicklén, Finnlandi o. fl. Yfir næstu hæð 1,95 komust aðeins 5 menn; fóru þeir allir í fyrsta stökki nema Damitio og Winter, sem fóru yfir í 2. stökki. Sá síðarnefndi meiddi sig í baki á þessari hæð, og ætlaði að hætta, en var skipað (af þjálfaranum) að reyna næstu hæð 1,98 m. Það tókst, hann komst yfir, en ætlaði varla að komast upp úr gryfjunni vegna sárs- aukans. Varð hann að hætta við svo búið og bíða þess með eftirvæntingu hvort hinir færu þessa hæð eða hærra. Norski Islandsfarinn Björn Paulsson var ekki langt frá því í 2. stökki, en þó mun- aði enn minnu að Bandaríkjamaðurinn Edleman færi yfir í 3. tilraun, þvi ráin vóg salt um stund áður en hún féll. Keppninni var lokið, Ástraliumaðurinn Winter hafði sigrað, þótt hann væri nú vegna meiðslanna, manna sízt fær um að stökkva hástökk. En hver hinna þriggja, sem farið höfðu 1,95 í 1. stökki, hafði orðið annar? Var það annarhvor Bandaríkjamannanna eða Norðmaður- inn Björn Paulsson? Svarið kom innan stundar. Björn varð annar vegna þess að hann reyndi ekki við byrjunarhæð- ina 1,80 og fór 1,90 og 1,95 í fyrsta stökki. (Átti því færri tilraunir, sem er þriðji möguleikinn til að skera úr um röð í hástökki). Jack Winter er ungur og efnilegur hástökkvari, en notar gamla sax-stílinn, líkt og Skúli Guðmundsson. Hann á ástralska metið 2,01 m. Björn Paulsson er óþarfi að kynna fyrir ís- lenzkum íþróttamönnum, en að þessu sinni stóð hann sig betur en nokkur hafði þorað að vona. Hástökkið var eina stökkið sem Islendingar tóku ekki þátt í, og var það vegna fjarveru Skúla Guðmundssonar, en eftir þessum árangri að dæma, hefði hann haft rpikla mögu- leika á því að ná í stig fyrir Island. STANGARSTÖKK: Heimsmet: 4,77 m. C. Warmerdam, USA. Olympsmet: 4,35 m. E. Meadows, USA. 1. Guinn Smith, USA . . 4,30 m. 2. Erkki Kataja, Finnlandi 4,20 m. 3. Bob Richards, USA . . 4,20 m. 4. Erling Kaas, Noregi . . 4,10 m. 5. R. Lundberg, Svíþjóð 4,10 m. 6. Boo Morcom, USA .... 3,95 m. Undankeppni stangarstökksins fór fram laugardaginn 31. júlí, (á sama tíma og langstökkið), en aðalkeppnin á mánudag ■— 2. ágúst. Fyrri daginn var ágætt keppnisveður, þurrt og hæfi- lega heitt, en síðari daginn kom hin eftirminnilega rigningardemba (Sjá 5 km. hlaupið), sem hafði mjög slæm áhrif á stangarstökkið. Keppendur voru 20 og var þeim skipt i 2 flokka eftir venju. Byrjunarhæðin 3,60, þá 3,80> 3,90 og loks 4,00 sem var lágmark til aðalkeppni. Torfi Bryngeirs- son lenti í fyrri flokknum og fór báðar fyrstu hæðirnar 3,60 og 3,80 í fyrstu tilraun. 3,90 fór Torfi í öðru stökki og gerði það svo vel að við landar hans urðum upp með okkur af honum. Þess má geta að Evrópumeistarinn Kataja (sem varð 2.) þurfti einnig 2 tilraunir til þess að komast yfir 3,90 m. Því miður reyndist lágmarkshæðin, 4 m., Torfa um megn og munaði þó ekki miklu í síðustu tilraun. En þrátt fyrir það tókst Torfa að sýna sitt bezta og meira varð ekki af honum krafist. í þessum flokki komust aðeins 5 yfir lágmarkið. Kataja, Kaas, Lindberg, Göllors og Purto Rico-maðurinn Barbosa. 1 hinum flokknum komust 7 yfir þ. á m. allir Bandaríkjamennirnir, Sviinn Lundberg, Finninn Olenius, Frakkinn Sillon og Vincento frá Puerto Rico. Voru
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Íþróttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.