Íþróttablaðið - 01.09.1948, Síða 36
28
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
Thompson vinnur kúluvarpiö.
keppendurnir, Sigfús Sigurðsson og Vil-
hjálmur Vilmundarson. Nú var klukkan
orðin 12 á hádegi og keppni byrjuð. en
ekki bólaði á Islendingunum. Seint og
síðarmeir sáust þeir koma þrammandi
inn á völlinn í fylgd með sænska risanum,
Roland Nilsson. Voru Þeir ekki fyrr
komnir á staðinn en þeim var skipað að
kasta, ef þeir á annað borð ætluðu að
vera með í keppninni. Þetta hafði að von-
um ekki bætandi áhrif á taugakerfið eða
vöðvana, sem þurftu nú að taka til ó-
spiltra málanna, óuppmýktir.
Sigfús lét sér þó hvergi bregða, greip
kúluna tveim höndum, hagræddi henni í
hægri hendi og varpaði henni síðan langt
yfir 14 metra strikið, eða nánar tiltekið
14,49 m. Vilhjálmur var ekki eins tauga-
styrkur og gerði sitt fyrsta kast ógilt, en
það var tæpir 14 metrar. 1 næstu umferð
hafði Sigfús svo 14,10 m. en Vilhjálmur
var svo varkár, til þess að gera ekki ógilt
aftur að kastið var aðeins 13,62. í þriðja
og síðustu umferð varpaði Sigfús 14,33
m., en Vilhjálmi mistókst enn að ná 14
metrunum og varð að sætta sig við 13,91
m. Til merkis um það hve slæm áhrif
þessi óstundvísi hafði á aðra en íslending-
ana þ. e. a. s. Svíann Nilsson, sem kom
jafn seint til keppni, má geta þess að hon-
um mistókust öll 3 köstin og komst því
ekki einu sinni í aðalkeppnina. Fyrsta
kast hans var 13,85, annað 14,36 og þriðja
rúmir 15, en ógilt. Var hann þó talinn ör-
uggur með 4. sætið í úrslitunum og varp-
ar að jafnaði 15,50 til 16 metra. Skýring-
in á þessum mistökum kom síðar og var
á þá leið, að þessir 3 keppendur hefðu
allir verið saman í búningsklefa en voru
ekkert látinir vita um hvenær keppni
ætti að hefjast fyrr en Það var orðið of
seint — og þá fyrst var þeim sleppt úr
klefanum. Vitanlega á slíkt ekki að geta
komið fyrir; fararstjórar og aðstoðar-
menn eiga að gæta þess að keppendur séu
ekki lokaðir inni i búrum, þegar keppnin
hefst. Og þótt klefaverðinum hafi í þessu
tilfelli verið falið að láta áðurnefnda
keppendur vita um hvenær keppni byrj-
aði, þá sýndi Það sig að hann þurfti ekki
síður eftirlits með en keppendurnir.
í siðari flokknum náðu aðeins tveir
lágmarkinu, þeir Thompsson, 15,09 og
Yataganes, Grikklandi, 14,63. Varð því
að taka Þrjá þá næstu í aðalkeppnina
til að fylla töluna 12. Sá, sem næst
stóð var Tékkinn Catina (úr síðara
flokknum) með 14,54 m. en 11. mað-
ur í aðalkeppnina var íslendingurinn
Sigfús Sigurðsson með 14,49 m. og 12.
Gierutto, Póllandi ( úr fyrra flokknum )
með 14,45 m. Óheppnin hafði enn elt
Svíann Nilsson, því að hann lenti í 13.
sætinu með 14,36 m.
Með tilliti til áðurnefndra aðstæðna
verður að telja frammistöðu Sigfúsar
mjög góða og þá beztu, sem Islending-
ar sýndu á leikunum fram að Þessu.
í aðalkeppninni síðar um daginn náði
Sigfús sér aldrei á strik og „missti“
kúluna alltaf öfugu megin við 14 m.
strikið. Enda var aðalmarkinu (að
komast í aðalkeppnina) þá náð og þvi
fylgir oft afturkippur, samanber Sig.
Sigurðsson í þrístökkinu í Berlín 1936
1 aðalkeppninni bar mest á Banda-
ríkjamönnunum þremur, sem köstuðu
hver öðrum betur. Delaney varpaði
fyrstur 16,14 m., þá kom Fuchs með
16,38 m., sem var nýtt Olympsmet, en
það lifði ekki lengi þvi Thompson varp-
aði 16,47 rétt á eftir, í sömu umferð.
I næstu um ferð var röðin komin að
Delaney og hann bætti enn við metið
og varpaði 16,68 m. Við því afreki tókst
Fuchs ekki að hrófla, en Thompson lét
sér ekki bylt við verða og skaut kúl-
unni vel yfir 17 metra strikið. 17,12
sagði málbandið, og enn hafði Olymps-
metið skipt um eiganda. 1 fjórðu um-
ferð lengdi Fuchs sig upp i 16,42, en
hvorugum hinna tókst að bæta sig.
Thompson hélt sig Þó við efnið allan
tímann, því næsu köst hans mældust
16,97; 16,67 og 16,80. 1 síðustu umferð
náði hann þó bezta kastinu, en hrað-
inn var svo mikill að hann þaut út
úr hringnum og gerði Það ógilt. Því
miður fór þar forgörðum eina heimsmet-
ið, sem sett hefði verið á leikunum,
því kastið var að sögn 17,75 m.
Hinir þrir, er komust í úrslitin með
Bandaríkjamönnunum voru Pólverjinn
Lomowski, 15,43 í 3. umferð; Svíinn
Arvidsson, 15,37 í 3. umferð og Finninn
Lethila, 15,05 í 2. umferð. Tókst eng-
um þeirra að lengja sig í úrslitaköst-
unum. — Þótt Wilbur Thompson hafi
síðustu 2 árin verið með beztu kúlu-
vörpurum Bandaríkjanna var almennt
búist við því að landi hans Delaney
hreppti gullið að þessu sinni. Annars
hafa þessir þrír verið frekar jafnir upp
á síðkastið og þó allir greinilega lakari
en heimsmethafinn Fonville, sem tap-
aði úrtökukeppninni vegna meiðsla í
baki. Yfirburðir Bandarikjamannanna
liggja einkum í atrennunni og hinu
snögga útkasti. Bezta afrek Thompsons
fyrir leikana var 16,75 m. Delaneys
16,81 m. og Fuchs 16,67 m. Sá síðast-
nefndi vakti sérstaka athygli fyrir sér-
Sigfús Sigurösson, Selfossi.