Íþróttablaðið - 01.09.1948, Side 39
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
31
og Blask, og hefir heimsmet þess síðar-
nefnda staðið samfleytt í 12 ár þar til
nú í sumar að Nemeth bætti það um
2 cm. Hein heldur sér enn í góðri æf-
ingu og kastaði síðastliðið ár 56,07 m.
11 árum eftir að hann vann Olympíu-
meistaratitilinn. En eins og kunnugt er
fengu hvorki Þjóðverjar né Japanar að
taka þátt i þessum leikum.
TUGÞRAUT:
Heimsmet: 7900 stig, G. Morris, USA ’36
Olympsmet: 7900 stig G. Mórris, USA ’36
Stig
1. Robert Mathias, USA . ., . 7139
2. Ignace Heinrich, Frakkl. 6974
3. Floyd Simmons, USA, .... 6950
4. Enr. Kistenmacher, Arg. 6929
5. Erik P. Andersson, Svíþj. 6877
6. Peter Mullins, Ástralíu . . 6739
7. Per Eriksson, Svíþj......... 6731
8. Irving Mondschein, USA . . 6715
9. E. Adamczyk, Póllandi . . 6712
10. Gottfr. Holmvang, Noregi 6663
11. Per Stavem, Noregi .... 6552
12. Örn Clausen, íslandi . . 6444
13. Y. J. Makela, Finnlandi .... 6421
14. P. M. Sprecher, Frakklandi 6401
15. K. Tannander, Sviþjóð ..... 6325
16. W. Kuzmicki, Póllandi .... 6153
17. J. E. E. Sonck, Finnlandi .... 6142
18. D. Marcelja, Júgóslavía ... 6141
19. W. Gierutto, Póllandi .... 6106
20. H Ascune, Uruguay ........ 6026
21. H. Figueroa, Chile ........6026
22. J. Cretaine, Frakklandi .. 5829
23. F. Nussbaum, Sviss ....... 5808
24. B. Recordon, Chile ....... 5730
25. E. J. Fournier, Kanada.... 5590
26. A. Dayer. Belgíu ......... 5586
27. O. Gerber, Sviss ....... 5558
28. E. Mukhtar, Egyptalandi .... 5031
Þessi konunglega keppni, tugþrautin,
fór fram fimmtudaginn 5. og föstudaginn
6. ágúst og hófst kl. 10,30 f. h. báða dag-
ana. Á skrá voru 37 keppendur, en 35
mættu til leiks. Þegar keppni hófst síð-
ari daginn höfðu 3 helzt úr lestinni og
en fækkaði þeim nokkuð, þannig að það
urðu aðeins 28, sem luku keppni í öll-
um greinum, með þeim érangri sem hér
að framan greinir.
Meðal keppenda í tugþrautinni var
hinn 19 ára gamli Islendingur, Örn Clau-
sen, en við þáttöku hans höfðu einmitt
verið bundnar okkar mestu vonir. Var
því ekki að undra þótt við landarnir
fylgdumst af áhuga með hvernig honum
riði af í þessari langdregnu og erfiðu
keppni.
100 m. hláupiS:
Þegar þessi fyrsta grein þrautarinnar
hófst var veður mjög sæmilegt, lygnt
og hæfilega heitt, en hinsvegar voru
brautirnar bæði þungar og blautar eftir
næturrigninguna. Keppendum var skipt
í 9 riðla og var Örn í 7. riðli. Hann fékk
gott viðbragð og stakk keppendur sína
brátt af. Hljóp hann skínandi vel, en
skorti alveg samkeppni, sem er svo nauð-
synleg í tugþraut. Úrslit riðilsins urðu
þessi: 1. Örn 11,1 sek. 2. Makela, Finnl.
11,9; 3. Marcelja, Júgóslavíu, 12,1 og
4. Seger, Lichtenstein 12,3 sek. Hina riðl-
ana unnu þeir Heinrich (11,3), Sprecher
(11,9), Figuero (11,6), Mullins (11,2),
Anderson (11,6), Kistenmacher (10,9),
Simmons (11,2) og Cretaine (11,6) og
var Örn Því annar að stigatölu eftir
þessa fyrstu grein með 814 stig, en
2. riðill í 100 m. hlaupinu. 1. Sprecher 11,9
2. Sonck, 11,9 sek.H 3. Gierutto 12,1 sek.
Kistenmacher fyrstur með 872 stig. •—
1 sambandi við þetta hlaup varð ég var
við ótrúlega mikla hroðvirkni yfirtíma-
varðar í einstökum tímaúrskurðum. Kom
það mjög að sök að þessu sinni, þar sem
keppendur fá stig fyrir afrek sín og þvi
nauðsynlegt að sýnd sé fyllsta nákvæmni
i timaúrskurði. Því miður þori ég að
fullyrða að þarna hafi í 4 riðlum af 9
verið gefnir upp tímar, sem alls ekki
fá staðizt við millibilið og ná í 1 til 2
tilfellum vægast sagt ekki nokkurri átt:
Á ég þar fyrst og fremst við 2. riðil,
þar sem Sonck, Finnlandi, fékk sama
tima (11,9) og fyrsti maður (Sprecher)
þótt hann væri tveim metrum á eftir,
(sjá meðfylgjandi mynd). 3. maður var
hnífjafn Sonck, en fékk þó 2/10 úr sek.
lakari tíma. Þarna virðist yfirtímavörð-
ur sennilega hafa ruglað saman mönnum
þ. e. a. s. látið 1. og 2. fá sama tíma og
3. mann 2/10 sek. verra í stað þess að
2. og 3. áttu að fá sama tíma og 2/10
úr sek. verra en 1. maður! Þessi skekkja
var afdrifarík að Því leyti að hún hækk-
aði Sonck ranglega um 42 stig (álíka og
17 cm. í langstökki!) og 2 sæti i sjálfri
keppninni! — 1 1. riðli fékk Mondchein
1/10 of góðan tíma og Aschune 1/10
of slæman. 1 4. riðli hefði verið réttara
að gera timamun á Mullins og Mathias
(11,2 og 11,3) i stað þess að báðir fengu
11,2. Loks átti tíundiparturinn í 9. riðli
að vera milli 1. og 2. en ekki milli 2 og
3. manns eins og gert var. Hafa allar
þessar skekkjur nokkur áhrif á heildar-
stigatöluna þótt litlu muni, að undan-
tekinni fyrstu skekkjunni.
Langstökkiö.
Nú var keppendum skipt í 6 flokka
og farið eftir því hvenær þeir luku
keppni í 100 m. hlaupinu. Um þessar
mundir fór að sjást í sól öðru hvoru, en
þá tók ekki betra við því kl. 1,15, þegar
langstökkið var nýbyrjað, hófst svo-
nefndur „Lacrosse“-sýningarleikur á
vellinum milli einhvers félags í Banda-
ríkjunum og úrvals frá Bretlandi. Var
þetta nokkurskonar kylfuboltaleikur af
verstu tegund, stórhættulegur öllum, sem
nálægt komu og þá ekki sízt tugþraut-
arkeppendunum. Þóttust þeir hólpnir, er
lokið höfðu sínum 3 stökkum áður en ó-
fögnuður þessi birtist. Var varla líft
fyrir þá 3 flokka, sem áttu eftir að