Íþróttablaðið - 01.09.1948, Page 49
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
41
starf innan nefndarinnar hið ákjósan-
legasta.
Við bjuggumst aldrei við bvi að vinna
verðlaun í leikjunum. En hins vegar
verður við það að kannast, að við
höfðum búist við betri árangri í sum-
um greinum, því að þar náðu fæstir
eins góðum árangri og þeir hafa náð
hér heima.
En á tvennt vil ég leggja áherslu.
Annað er það, að með þátttöku í þess-
um leikjum fengu íþróttamenn okkar
tækifæri til að sjá afburðamenn á í-
þróttasviðinu, og hafa þeir getað mik-
ið af þvi lært.
Hitt er það, að við höfum sýnt það
á alþjóðamóti, að hér á landi býr þjóð,
sem að tiltölu við fólksfjölda sendi
fjölmennasta hóp keppenda á leikana,
og að frammistaða þeirra sýndi að
þjóðin okkar leggur af áhuga rækt við
íþróttir. Loks má geta þess, að öll
framkoma íþróttamanna okkar var
þjóðinni til sóma.
Að endingu vil ég taka það fram,
að ég tel ekki að rétt sé fyrir jafn-
litla þjóð og við erum að senda á
slíkt mót eins marga keppendur og við
gerðum að þessu sinni, þvi að enginn
getur við því búist að okkar fámenna
þjóð eigi jafn mörgum afreksmönnum
á að skipa til samkeppni við úrvals-
menn stórþjóðanna.
Hinsvegar var þetta ágætt tækifæri
til þess að gefa íþróttamönnum okkar
kost á þvi með tiltölulega litlum kostn-
aði að sjá beztu íþróttamenn lieims-
ins, og efast ég ekki um að þessi för
verði til mikils gagns fyrir íþróttalíf
okkar á næstu árum. Tel ég þvi að
betur hafi verið farið en heima setið.
Fararstjóri frjálsíþróttamanna var
Ólafur Sveinsson, en þjálfari Svíinn
Olle Ekberg. Nuddari var Guðnmnd-
ur S. Hofdal (á miðri mynd til hægri),
en hann var einnig meðal Olympíu-
fara 1908 (sjá mynd á bls. 40).
Fararstjóri sundflokksins var Er-
lingur Pálsson og þjálfarar Jón Páls-
son landsþjálfari og Jónas Halldórs-
son aðstoðarþjálfari. Kvenfólkið hafði
ennfremur sérstakan flokksstjóra, frú
Rósu Gestsdóttur. Ennfremur var Er-
lingur aðalfararstjóri íslendinga á
leikunum.
Olympíufararnir í boöi íslenzku sendiherrahjónanna í London, frú GuÖrúnar og
Stefáns Þorvaröarsonar. 1 fremri röð eru frjálsíþróttakeppendurnir og þjálfari
þeirra ,Ekberg flengst til vinstri). 1 aftari röö eru fararstjórar, blaöa- og útvarps-
fréttaritarar og fleiri. Sendiherrahjónin eru til vinstri á miöri myndinni, en nœst
þeim til h. eru frú Hulda og Björn Björnsson, fulltr. Olympíunefndar í London.
Olympíufarar á Mayfair-hóteli í London í boði Islendingafélagsins. Fremst sjást:
Erlíngur Pálsson, Björn Björnsson, form. Islendingafélagsins, Einar B. Pálsson,
Öl. Sveinss. Hallgr. Fr. Hallgrímss., Jens Guöbjörnss.,Ben. G. Waage og Jón Pálss.
Á myndina vantar 3 af keppendunum, þá Finnbjörn, Hauk og Jóel Sigurösson.