Íþróttablaðið - 01.11.1979, Blaðsíða 4
i— ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
íþróttir og utilíf
Málgagn íþróttasambands íslands
Ritstjórar:
Sigurður Magnússon og
SteinarJ. Lúðvíksson
I- ramkvæmdastjóri:
Pétur J. Eiríksson
Skrifstofa ritstjórnar:
íþróttamiðstöðinni Laugardal
Útgefandi: Erjálst framtak hf.
Framkvæmdastjóri:
Jóhann Briem
Auglýsingastjóri:
Sjöfn Sigurgeirsdóttir
Skrifstofa og afgreiðsla:
Ármúla 18
Símar 82300. 82302
Áskriftargjald kr. 990 á mánuði
sept. — des. 3.960.00
Setning. umbrot. filmuvinna og prentun:
Prentstofa G. Benediktssonar
Prentun á kápu: Prenttækni hf.
Bókband: Félagsbókbandið hf.
Litgreining kápu: Korpus hf.
Héraðssambönd innan ÍSÍ:
Héraðssamband Snæfellsnes- og
Hnappadalssýslu
Héraðssamband Strandamanna
Héraðssamband Suður-Þingeyinga
Héraðssamband Vestur-ísfirðinga
Héraðssambandið Skarphéðinn
íþróttabandalag Akraness
íþróttabandalag Akureyrar
íþróttabandalag Hafnarfjarðar
íþróttabandalag ísaffjarðar
íþróttabandalag Keflavíkur
íþróttabandalag Ólafsfjarðar
íþróttabandalag Reykjavíkur
íþróttabandalag Siglufjarðar
íþróttabandalag Suðurnesja
íþróttabandalag Vestmannaeyja
Ungmenna- og íþróttasamband
Austurlands
Ungmennasamband A.-Húnvetninga
Ungmennasamband Borgarfjarðar
Ungmennasamband Dalamanna
Ungmennasamband Eyjafjarðar
Ungmennasamband Kjalarnessþings
Ungmennasamband Skagafjarðar
Ungmennasamband V.-Húnvetninga
Ungmennasamband V.-Skaftfellinga
Ungmennasambandið Úlfljótur
Sérsambönd innan ÍSÍ:
Badmintonsamband íslands
Blaksamband Islands
Borðtennissamband íslands
Fimleikasamband íslands
Frjálsíþróttasamband íslands
Glímusamband íslands
Golfsamband íslands
Handknattleikssamband íslands
íþróttasamband fatlaðra
Júdósamband íslands
Knattspyrnusamband íslands
Körfuknattleikssamband íslands
Lyftingasamband íslands
Siglingasamband íslands
Skíðasamband íslands
Skotsamband íslands
Sundsamband íslands
Rit s t j órnarspj all
Lyfjamisnotkun
Greinin eftir Ólaf G. Guðmundsson lækni, formann Heilbrigð-
isráðs Í.S.Í. sem birtist í síðasta tölublaði íþróttablaðsins, hefur að
vonum vakið athygli og umtal. Þar er komið inn á alvarlegt mál,
sem íþróttahreyfingin um allan heim á við að stríða.
Hin harða og vaxandi keppni milli einstaklinga og þjóða, hefur
leitt marga út á villigötu í þessum efnum.
íþróttaforystan um heim allan gerir margvístegar ráöstafanir til
að koma í veg fyrir þessa óheillaþróun og hjá flestum ef ekki öllum
heimssamböndum fyrir einstaka íþróttagreinar, hafa verið settar
reglur sem banna tilteknar lyfjanotkanir og ströng viðurlög hafa
verið sett meðal margra þjóða ef út af er brugóið.
En er þetta vandamál hér á landi og ef svo væri, hvað er þá til
ráða?
f áðurnefndri grein formanns Heilbrigðisráðs Í.S.Í. segir m.a.,
að ýmsir telji sig hafa vissu fyrir því, að margir íslenskir íþrótta-
menn hafi misnotað lyf um árabil, en trúlega skorti sannanir í
þessum efnum.
Fyrir skömmu hélt Í.S.f. fund með formönnum éða öðrum full-
trúum allra sérsambandanna og Heilbrigðisráði f.S.Í. til að fjalla
m.a. um þetta (vanda) mál. Gestur fundarins var Ölafur Ólafsson,
landlæknir, sem flutti inngangserindi og ræddi þessi mál síðan á
víö og dreif og svaraði fyrirspurnum. Greindi landlæknir t.d. frá
ýmsum aukaverkunum þessara lyfja.
Það kom fram á þessum fundi, að sumir töldu þaö öruggt, að
misnotkun lyfja hefði átt sér stað meðal íslenskra íþróttamanna,
en aðspurðir vildu eða treystu sér ekki að nefna ákveðna aðila.
Einnig kom þaö fram, að í keppnisferðum erlendis á undanförnum
árum, hefðu oft verið tekin sýni af íslenskum keppendum, en
aldrei neitt komið fram er sýndi notkun hinna óleyfilegu örvun-
arlyfja.
Þetta gefur allavega til kynna,-að enganveginn getur verió um
mikla notkun að ræða.
En ástæða er til að vera vel á verði og f.S.f. hefur t.d. fylgst náið
með aðgerðum Norðurlandanna gagnvart þessum vágesti.
Heilbrigðisráð Í.S.Í. hefur látið málið til sín taka í vaxandi mæli
og er það sameiginlegt álit þeirra sem um hafa fjallað, að hér á
landi muni það affarsælast að leggja fyrst um sinn áherslu á
kynningu þessa máls meðal íþróttamanna og forystumanna. Með
fyrirbyggjandi aðgerðum megi því koma í veg fyrir að lyfjamis-
notkun nái að breiðast út hérlendis, en jafnframt og það fljótlega
verði sett ströng viðurlög um óhlutgengi í keppni, ef uppvíst verði
um ólöglega lyfjanotkun.
Á fyrrgreindum fundi var kjörin sérstök nefnd, skipuð fulltrúum
f.S.f. og sérsambandanna, til að vinna að framkvæmd þessa máls.
4