Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.11.1979, Blaðsíða 53

Íþróttablaðið - 01.11.1979, Blaðsíða 53
að fá mig til þess að leika með hollenska landsliðinu í úrslita- keppni heimsmeistarakeppninn- ar í Argentínu, og þótt mig lang- aði auðvitað til þess að verða heimsmeistari lét ég ekki freist- ast. Til þess að geta staðið sig í slíkri keppni þurfa menn að vera í toppformi, ekki aðeins líkam- lega heldur og andlega, en það var ég alls ekki á þeim tíma sem keppnin fór fram, og hefði lítið getað gefið af sjálfum mér í keppninni. Uppbyggingarstarf í Bandaríkj- unum — Ástæða þess að ég lét til leiðast að leika einn leik með New York Cosmos var einfald- lega sú, að ég gat ekki sagt nei, þegar félagið bað mig um að leika. Peningana sem komu inn fyrir umræddan leik átti að nota í góðgerðarstarf og ég er hræddur um að það hefði sungið í ein- hverjum ef ég hefði neitað að taka þátt í honum. Þessi eini leikur varð til þess að kveikja verulega í mér. Ég sá með eigin augum að í Bandaríkjunum er verið að vinna mikið uppbygg- ingarstarf í þágu knattspyrnunn- ar, og það er freistandi að leggja sitt af mörkum, því ég ann knatt- spyrnunni sem íþrótt, þrátt fyrir allt. Ég sannfærðist einnig um að knattspyrnan í Bandaríkjunum er ekki rígbundin í kerfi, og að það væri mögulegt fyrir einstak- linginn að njóta sín á annan hátt en í Evrópu. — Það er rétt, að New York Cosmos gerði mér gott tilboð. Ástæða þess var fyrst og fremst sú, að félagið óttaðist að áhorf- endum að leikjum þess fækkaði eftir að Pele hætti með liðinu. Fljótlega kom í Ijós að sá ótti var ástæðulaus. Áhuginn á knatt- spyrnu átti hins vegar lengra í land á vesturströndinni, og því valdi ég fremur að leika með Los Angeles-liðinu þegar mér bauðst það. ,,Gerfigrasið er að eyðileggja knattspyrnuna í Bandaríkjunum, og um framþróun verður ekki að ræða fyrr en leikið verður á grasi... " Það sem Johan Cruyff fann helst að því að leika knattspyrnu í Bandaríkjunum var það að þar er gervigras á flestum knattspyrnu- völlum. — Það er satt að segja hræðilegt að leika á slíkum völl- um, og þeir eyðileggja íþróttina. Það er skoðun mín, að Banda- ríkjamenn geti aldrei unnið íþróttina upp, ef þeir laga ekki vellina hjá sér. Þegar leikið er á gervigrasi verður leikurinn ekki nærri því eins hraður, leikmenn forðast návígi eins og heitan eld- inn, þar sem þeir eiga á hættu að slasast ef þeir detta illa á völlinn, og öll fjöðrun knattarins og hreyfingar hans verða gjörólíkar því sem gerist á grasvöllum. Ég held, að af tvennu illu, séu hreinir malarvellir betri en gervigrasvell- ir. Sem betur fer á liðið mitt sæmilegan grasvöll. Johan Cruyff var í viðtalinu beðinn að gera samanburð á knattspyrnuliðum í Evrópu og Bandaríkjunum. Það gerði hann á þessa leið: — Það er mjög erfitt að gera slíkan samanburð. í Bandaríkj- unum er það enn þannig að lið gjörbreytast oftast eftir hvert keppnistímabil, gömlu leik- mennirnir fara og nýir koma, þannig að það hefur enn gefist lítill tími til þess að móta liðin og samæfa þau, eins og þarf að gera. Þetta leiðir svo til þess, að styrk- leiki liðanna felst nær eingöngu í því hvaða leikmönnum það hefur á að skipa hverju sinni. En þetta á örugglega eftir að breytast þegar fram líða stundir. Hingað til hafa verið mjög rúmar reglur um notkun erlendra leikmanna, en bandarísku liðunum hefur nú verið gert að skyldu að bæta ein- um leikmanni frá Bandaríkj- unum við í hverju liði fram til ársins 1984. Þetta verður til þess að meiri ró færist yfir, og látið verður af því að kaupa leikmenn til þess að leika nokkra leiki, eins og verið hefur að undanförnu, þegar knattspyrnumenn frá Evrópu koma í sumarleyfum sín- um og leika um tíma með bandarískum liðum. Pele á stóran hlut Johan Cruyff var einnig beð- inn að segja álit sitt á Pele, og þætti hans í bandarískri knatt- spyrnu. — Ég er ekki í vafa um það, að það er sterkasti leikur sem nokk- urt bandarískt lið hefur leikið er New York Cosmos fékk Pele til liðs við sig. Þegar hann kom til Bandaríkjanna þekktu fáir þar nafn hans, rétt eins og þegar ég kom hingað. En það var auðvelt að auglýsa Pele upp, og fjöldi manns kom í fyrsta sinn á knatt- spyrnuleik bara til þess að sjá hann. Og þetta fólk varð ekki fyrir vonbrigðum og margt af því er nú orðið traustustu aðdáendur knattspyrnunnar í Bandaríkj- unum og sækir leikina reglulega. Þá var það ekki síður mikilvægt hve vel Pele vann að útbreiðslu íþróttarinnar með heimsóknum í skóla og með almennri kynningu. Ég held að mér sé óhætt að segja að Pele eigi 60% af því sem bandarísk knattspyrna er nú orðin, en við hinir eigum 15%. Framhald á bls. 64 53
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.