Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.11.1979, Blaðsíða 50

Íþróttablaðið - 01.11.1979, Blaðsíða 50
kona. Hún var jafnvíg á margar greinar, en þó best í 80 metra grindahlaupi og kúluvarpi. Á Olympíuleikunum í Tókíó 1964, hlaut hún 5.246 stig í fimmtar- þraut, og hefur sá árangur enn ekki verið bættur. Skylt er þó að geta þess að síðan hefur grein- unum í þrautinni verið breytt þannig að nú er þar keppt í 100 metra grindahlaupi í stað 80 metra grindahlaups áður og hlaupið 800 metra hlaup í stað 200 metra hlaups áður. Sovésku systurnar hættu keppni þegar þær voru á hátindi frægðarferils síns, aðeins 27 og 29 ára að aldri. Skeði þetta fyrir Evrópumeistaramótið í Prag árið 1966, en búið var að reikna með þeim sem öruggum sigurveg- urum í sínum greinum á því móti. Var þetta fráhvarf systranna frá íþróttunum sett í samband við það að á Evrópumeistaramóti þessu var í fyrsta sinn um hið svonefnda „kynpróf“ að ræða, og orsakaðist það af því að grunur var á því að margar íþróttakonur væru farnar að taka karlhor- mónalyf til þess að fella líkams- byggingu sína betur að þeim hörðu kröfum sem gerðar voru til afreka. Áður en þessar kynprófunar- aðgerðir hófust var oft talað um hversu undarlegar stúlkurnar frá Austur-Evrópu væru í háttum. Þær þóttu afskaplega ókvenlegar, jafnvel með skeggvöxt og dimm- an karlmannsróm. í hópi þessara kvenna voru Press-systurnar, sem í gamni voru stundum kallaðar „Pressubræðurnir“. Sögusagnirnar um Irinu og Tamöru fengu byr undir vængi er þær mættu ekki til Evrópumeist- aramótsins í Prag, en þær voru þó ekki einu konurnar sem hættu keppni í kjölfar ákvörðunar um nefnda prófun. Margir eru þó þeirrar skoðunar, að þær Irina og Tamara hafi ekki verið minni kvenmenn en margar aðrar sem þá voru í sviðsljósinu, og að orð- rómurinn um karlmannleik þeirra hafi fyrst og fremst sprott- ið af öfund. I fyrra kom út mjög svo at- hyglisverð bók er nefndist „La Fabueuse Histoire de L’Athlét- isme“ eftir Frakkann Robert Pareinté, þar sem hann fjallar m.a. um þessi mál, og rekur dæmi um íþróttakonur sem hann ætlar að hafi notað umrædd hormóna- lyf. Vekur sérstaka athygli að hann minnist ekki á Press-syst- urnar einu orði í bók sinni, og túlka margir það þannig, að hann hafi komist að raun um að orð- rómurinn um þær hafi ekki verið á rökum reistur. I mörgum metaskrám þar sem þróun heimsmeta kvenna er rak- in, er afrekum systranna ekki gerð skil, eða þá að þau eru sér- staklega merkt og tekið fram að þau hafi verið unnin áður en kynprófanir komu til. Reyndar gildir þar hið sama um nokkur önnur met, m.a. heimsmet sem Sin Kim Dan frá Norður-Kóreu setti á sínum tíma í 400 metra hlaupi. Margar aðrar íþróttakonur lágu einnig undir grun á þessum árum, m.a. rúmenska stúlkan Yolanda Balas, sem var langbest í hástökki um og eftir 1960. Hún hvarf einnig úr sviðsljósinu 1966, og þótti það grunsamlegt. Það sem síðar varð til þess að hreinsa hana var það að hún gifti sig og eignaðist barn, og þótti það taka af öll tvímæli um kyn hennar. En Press-systurnar hafa hins vegar ekki haft fyrir því að gifta sig. Reyndar er ekki mikið um þær vitað eftir að þær drógu sig í hlé, en þó hefur frést að þær séu íþróttakennarar í Ukrainu. Umræddri kynprófun hefur verið fram haldið allt frá Evrópumeistaramótinu í Prag, og þykir nú sjálfsagður hlutur á öll- um meiri háttar íþróttamótum. Oftast er það þó þannig að látið er nægja að taka nokkrar stúlkur til athugunar, og er þá vali þeirra þannig háttað að dregið er um hverjar skuli koma til athugunar. Nú fer athugunin þannig fram að tekið er sýni úr slímhúðinni í munninum, og tekur venjulega mjög skamman tíma að fá niður- stöðu. Til að byrja með var kynpróf- uninni hagað á allt annan hátt, og þótti mörgum stúlkum heldur ógeðfellt að þurfa að gangast undir slíka rannsókn. Á Evrópu- meistaramótinu í Prag þar sem flestar stúlkur voru skoðaðar var þeim t.d. skipað að mæta hjá læknum. Þar var þeim fyrst sagt að fara úr öllu, nema buxunum, en litlum hópum síðan vísað í einu inn til læknanna, og þær látnar afklæðast með öllu, og at- hugaðar síðan. Féll stúlkum frá kaþólskum löndum þetta einkar illa, og margar þeirra neituðu raunar að gangast undir þessa skoðun. Nú, þegar liðinn er röskur ára- tugur frá því að umrædd kyn- skoðun var tekin upp og margar af bestu frjálsíþróttakonum heims hættu keppni, eru menn meira í vafa en áður, um að það hafi orsakast af því að þær hefðu ekki staðist kynprófið. Þótt ár- angur þeirra Tamöru og Irenu Press væri framúrskarandi á þessum árum, þykir hann vart umtalsverður nú. Ástæðan fyrir því að þær náðu svo langt getur alveg eins hafa verið sú, að þær æfðu meira en gerðist og gekk, og þegar afrek þeirra eru metin kemur í ljós að þau voru út af fyrir sig ekki betri en t.d. afrek Yolands Balas? Það skyldi þó aldrei hafa verið að öfundin hafi haft sitt að segja? Áskriftarsími fþróttablaðsins 82300 - 82303 50
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.