Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.11.1979, Blaðsíða 23

Íþróttablaðið - 01.11.1979, Blaðsíða 23
Dagur í líff Jody Scheckters ítalarnir elska bílana sína og kappakstur er þeim ástríða. mjög öruggur ökumaður og teflir sjaldan á tvær hættur í kappakstrinum. Hingað til hefur hann líka sloppið stórslysalaust, en sjálfur segir hann að enginn viti hver sé næstur — þótt ökumennirnir reyni að fara eins varlega og þeim er mögulegt, liggi hætturnar allsstaðar í leyni. íþróttablaðinu barst nýlega grein, þar sem Jody Scheckter lýsir einum degi í lífi sínu, og fer hún hér á eftir í lauslegri þýð- itigu. Vondar samlokur í Englandi — Æfingaakstur er hluti af daglegu lífi kappakstursmanna. — Stór hluti, ef menn eru hjá góðum kappakstursfyrirtækjum og ætla sér að komast langt í þessari krefjandi íþrótt. Venju- lega nota kappakstursmenn helmingi meiri tíma til þess að æfa sig og reynsluaka kappakst- ursbíl.um en til keppni. Þegar ég ók hjá Tyrell og Ford þurfti ég að ferðast með flugvél til London og taka þar bílaleigu- bíl til brautarinnar í Silverstone, en þar fóru æfingarnar fram. Þetta þótti mér afskaplega leið- inlegt og var líka óánægður með aðbúnaðinn að öðru leyti. Morgunverðurinn sem við fengum var t.d. samloka með osti framreidd í bjórkrá sem var skammt frá brautinni. Stundum var osturinn myglaður og brauð- ið svo hart að það var farið að vinda upp á sig. Eftir æfingarnar var boðið upp á svipaðan kost, og það reyndist manni létt í maga, áður en aftur var ekið til flug- vallarins og flugvél tekin heim til Monaco á kvöldin. Eftir að ég gerði samning við Ferrari hefur aðbúnaður minn batnað verulega. ítalirnir elska bílana sína. Þeir koma næst á eftir trúarbrögðunum hjá þeim. Og á sama hátt og þeir elska bíl- ana er kappakstur ástríða hjá þeim. Mér finnst hver dagur sem ég æfi hjá Ferrari vera upplifun. Þegar ég ek tii verksmiðjunnar stendur fólk við veginn og veifar vingjarnlega til mín, og þegar það kemst í kallfæri fæ ég kveðjuna — Hæ, Jody. Morgunverðurinn er hreinasta veisla, og þegar ég er að aka er allt gert til þess að gera manni lífið sem bærilegast. Það eru meira að segja áhorf- endur á æfingunum. Fólk sem hefur verið boðið sérstaklega til að koma og horfa á. Til þess að komast á þessar æfingar ek ég 420 kílómetra frá heimili mínu í Monaco og aftur sömu vegalengd heim á kvöldin. Ég er venjulega orðinn svo þreyttur þegar ég kem heim á kvöldin, að ég er þeirri stund fegnastur þegar ég get farið að sofa. Hafnaði tilboði Ferrari Ég heyri það oft útundan mér að ég hafi verið heppinn að fá samning við Ferrari, — að þann- ig hafi ég fengið allar mínar óskir uppfylltar. Svo var þó hreint ekki. Ég fékk tilboð frá Ferrari árið 1973, en þá ók ég hjá Tyrrell. Þessu tilboði hafnaði ég án um- hugsunar. Ég gerði mér grein fyrir því að ég yrði aðeins vara- skeifa hjá fyrirtækinu þar sem kappar á borð við þá Lauda og Regazzoni voru á samningi við það. Síðan hafa orðið miklar breyt- ingar. Nú getur enginn boðið betur en Ferrari. Þar er besta að- staðan og í eigu fyrirtækisins eru líka bestu kappakstursbílarnir, og mjög færir tæknimenn sem hugsa um bílana eins og sjáaldur auga síns. Þegar Ferrari gerði mér tilboð að nýju í júlí 1978, hugsaði égmig 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.