Íþróttablaðið - 01.11.1979, Blaðsíða 18
nægjan við að leika knatt-
spyrnu“, sagði Hermann.
Óli B. Jónsson var lengi þjálf-
ari okkar Valsmanna. Stórkost-
legur þjálfari og góður félagi og
vinur okkar. Ég tel að Óli B. sé
fremstur allra okkar þjálfara.
Hinsvegar var það Júrí, sem kom
mér betur en nokkur annar í
skilning um hvaðeina í sambandi
við leikinn. Hann er stórkostlega
góður félagsþjálfari og mikill
fræðimaður. En ég var alltaf
hálfhræddur um að hann yrði
ekki góður fyrir landsliðið. Það er
ekki fyrir hann að hóa saman liði
með nokkurra daga fyrirvara og
gera eitthvað heillegt úr slíku.
Júrí þarf tíma.
Þjálfarar sem
vinna skemmdar-
verk
Annars minnist ég svo margra
þjálfara, sem reyndu hvað þeir
gátu. Yfirleitt var þekking þeirra
bara svo sorglega lítil. Þetta er að
breytast til batnaðar. Annars er
það mikill skaði hvað verið er að
eyðileggja knattspyrnuna. Þetta
er að verða leiðinlegur leikur.
bæði fyrir leikmenn og áhorf-
endur. Fyrir nokkrum árum voru
fimm menn í framlínu. Núna eru
þetta aðallega kýlingar fram
völlinn, og þar eru kannski tveir
menn í framlínu sem mega sín
lítils gegn þéttri vörn. Ég álít að
margir þessara ensku þjálfara,
sem hingað hafa komið, hafi
unnið illt verk á knattspyrnunni
okkar og skemmt marga bráð-
skemmtilega knattspyrnumenn.
Hvaða vit er í því t.d. að draga
aftar á völlinn eldhressan fram-
línumann og láta hann verjast
þar og kenna honum að gera fátt
annað en að kýla fram völlinn?
Það miðast allt við að verjast,
ekki sækja eins og áður var. Þetta
er leiðinlegt og niðrudrepandi
fyrir leikmenn. Það virðist sífellt
vera stefnan að tapa smátt.
Þá er það áberandi að þessar
ensku uppskriftir eru fyrir at-
vinnumenn. Satt að segja kikna
áhugamenn undir þeirri kvöð,
sem æfingar eru orðnar. Þess
vegna hverfa allt of margir úr
röðum knattspyrnumanna. búnir
að fá sig fullsadda á puðinu og
þeim ósanngjörnu kröfum sem
áhorfendur og forráðamenn gera
til þeirra. Nú skilst mér að hálf-
atvinnumennska sé að hefjast hjá
Skagamönnum og Valsmönnum.
Vissulega ber að fagna því. Auð-
vitað eiga knattspyrnumenn
okkar að bera eitthvað úr býtum
fyrir sitt starf.
— Og nú hefur þú lagt skóna á
hilluna Hermann?
„Skóna á hilluna? Nei, það hef
ég ekki gert, og á vonandi aldrei
eftir að gera. Ég er meira að segja
Reykjavíkurmeistari í ár með 1.
flokki Vals. Ég hef nú hugsað
mér að sparka bolta meðan ég
mögulega get“.
Allar vörur til
skíðalökana
Dynastar skíði
Atomic skíði
Salomon bindingar
Notuð skíði
Skíðastafir — hanskar
Gleraugu
Opið frá kl.
10—12 og 1—6
Opið á
laugardögum
Sportmarkaðurinn
Grensásvegl 50 — Sími 31290
18