Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.11.1979, Side 12

Íþróttablaðið - 01.11.1979, Side 12
Hermann — ég hef víst alltaf veriö hrelnskilinn. . . „Ég hef víst oft tapað á því hversu hreinskilinn ég er. En samt, þá held ég að þessi hreinskilni hafi verið mér heldur til góðs gegnum árin. Mér hefur alltaf fund- ist að fólk eigi að tala hreinskilnislega um hlutina. Undirlægjuháttur er mér ekki að skapi“. Það er Hermann Gunnarsson, sem segir þetta í viðtali við íþróttablaðið. Hermann er landsþekktur íþróttamaður og nú síðustu tvö árin sem frábær fréttamaður rík- isútvarpsins á íþróttaleikvangin- um. Oft hefur snilli Hermanns á leikvelli yljað áhorfendum um hjartarætur. Hann virðist hafa fengið þann hæfileika í vöggu- gjöf að eiga svo ótrúlega auðvelt með að láta boltann, þennan hrekkjótta og undarlega hnött- ótta hlut, þýðast sig betur en gengur og gerist. Hrókur alls fagnaðar og ljúfsárt líf Félagar Hermanns í Val og félagar hans með landsliðum í knattspyrnu og handknattleik lýsa Hermanni ævinlega sem hróki alls fagnaðar. Hermann er að eðli til ákaflega fjörugur og gamansamur og raunar eru margar skemmtilegar sögur til um þá hlið hans. En Hermann hefur kynnst því á ferli sínum að lífið getur verið ljúfsárt. „Það sagði mér góður vinur og félagi, þegar ég var 16 ára gamall og nýkominn í meistaraflokk fél- agsins, að ég yrði að gera mér grein fyrir því að ég gæti orðið góður knattspyrnumaður og átt mikla möguleika. Hann sagði mér þá að vera því viðbúinn að eignast tíu óvini. Og ef ég kæmist í landslið, þá yrðu óvinirnir tíu sinnum tíu, sagði hann. Og mikið er til í þessu. Auðvitað hef ég vit- að af umtali alls konar um mig, kjaftasögum, sem stafað hafa af því að ég hef verið ógiftur, stundað skemmtistaði, fengið mér í glas, og verið þekkt persóna af íþróttunum. Líklega væri ég orðinn eldri en afarnir mínir báðir, og eru þeir þó báðir yfir nírætt og við bestu heilsu, ef ég hefði átt að lifa allt það sem sögurnar segja. Annars vorkenni ég fólki, sem lifir og hrærist í umtali um náungann. Þessir Jónar Jónssynir, sem sitja kannski fimm daga vikunnar á börunum og hafa ekki annað að gera en að níða náungann. Ann- ars má tala um mig eins og hver og einn vill. Þar hef ég ekkert að óttast". Stóra stökkið, — úr íþrótt í íþróttaskrif Hermann segir mér nánar frá þessum málum, sem skipta þó e.t.v. ekki máli í sambandi við íþróttir. „Það var vorið 1977, sem ég varð að taka stórt stökk. Ég var í góðri æfingu og átti von á góðu sumri með Val, þegar mér bauðst að verða íþróttafréttamaður út- varpsins, a.m.k. í nokkra mánuði. Ég ákvað að taka starfinu, en það þýddi um leið að ég gat ekki lengur sinnt æfingum og keppni. Við þetta skapaðist hjá mér frí- tími. Það var nokkuð sem ég hafði í raun og veru aldrei kynnst 12

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.