Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.11.1979, Page 14

Íþróttablaðið - 01.11.1979, Page 14
okkar stétt í íþróttablaðinu í sumar í viðtali við landsliðsfyrir- liðann. Þau orð hefðu betur aldrei verið sögð, svo ósanngjörn voru þau“. Fyrst var það KR-peysan hans pabba Ætlunin var raunar að spjalla við Hermann um íþróttir og íþróttafréttamennsku. Hermann segir okkur frá upphafi síns ferils. Það hófst allt saman vestur í bæ. Knattspyrnuvöllurinn litli á horni Framnesvegs og Sólvalla- götu hefur fóstrað marga bestu knattspyrnumenn landsins. Þessi völlur var eiginlega vagga Her- manns, sem knattspyrnumanns. „Þarna voru strákar eins og Þórólfur Beck, Dalli dómari, Örn Steinsen og margir fleiri. Þeir voru eldri en ég, og baráttan var hörð fyrir mig, smákút, að fá að leika með þessum stóru strákum. Fm það tókst þó. Þórólfur fékk mig til að ganga í KR. Ég átti heima á Bárugötunni, svo þetta virtist allt eins og það átti að vera. Ég fór að æfa með KR. Eitt skyggði þó á, leikfélagar mínir voru allir þetta þrem til fimm ár- um eldri en ég. Ég var því meðal ókunnugra í 4. flokki en þeir æfðu með 3. flokki. Ég flosnaði þarna upp, enda þótt pabbi væri búinn að gefa mér KR-peysuna sína, sem hann hafði orðið ís- landsmeistari í. Nú svo háttaði til á Bárugötunni að þar voru ein- hverjir uppreisnarmenn, þeir einu í öllum Vesturbænum, sem ekki voru í KR. Ég fylgdist með þeim á æfingar hjá Víkingi á Framvellinum gamla við Sjó- mannaskólann. Ég fór þá í markið, Hermann Hermannsson í Val var móðurbróðir minn, gamalkunnur og vinsæll knatt- spyrnumaður og landsliðsmark- vörður. Mér fannst tilheyra að reyna við hans stöðu. Ég komst fljótlega í aðallið Víkinganna og ári seinna flutti fjölskyldan í Smáíbúðahverfið, Víkingshverf- ið, svo dæmið virtist ganga upp. Fyrst í Víking — síðan í Val Ég lék í þrjú sumur með Vík- ing. Þá var staðan sú í því félagi að einn einasti maður virtist sinna félaginu, Eggert Jóhannes- son, afbragðs þjálfari og áhuga- samur. Hann bókstaflega hélt lífinu í félaginu og stýrði því í gegnum boðaföllin. Það var ekki fyrr en að ég tilkynnti að ég væri hættur í Víking að forráðamenn- irnir komu fram á sjónarsviðið. Þá höfðum við aldrei séð fyrr. Það var úlfaþytur og hamagang- ur og forráðamennirnir ásökuðu Árna Njálsson fyrir að stela leik- mönnum frá Víkingi, en Árni var íþróttakennari við skólana í hverfinu og fyrirliði Vals á leik- velli. Umskiptin voru gífurleg. Valur virtist hafa mun styrkari stjórn og ^ r mest selda tímaritið Áskriftarsímar 82300 og 82302 Sjúkratöskur og kassa sem innihalda þaö nauðsynlegasta til skyndihjálpar við minni slys og meiðsli Fjölbreytt úrval, ýmsar gerðir og stærðir fyrir ferðalagið, heimilið og vinnustaðinn ávallt fyrirliggjandi. Endurfyllum einnig eldri kassa og kistur. MUNIÐ Aðeins í apótekum fáið þér sjúkrakassa með öllu nauðsynlegu innihaldi því öðrum er lyfjasala óheimil. LAUGAVEGS APÓTEK SKVmHJALP Við bjóðum J V. J 14

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.