Íþróttablaðið - 01.11.1979, Qupperneq 31
Þannig ,,afgreiðir” Stevenson venjulega keppinauta sína. Högg hans eru
gífurlega þung, og hann er jafnvígur á báðar hendur.
en þegar Stevenson boðaði komu
sína hættu átta þátttakendanna
snarlega við að keppa. í undan-
úrslitum þessa móts var sem
hvorugur keppandinn kærði sig
um að sigra, en að lokum var
Vestur-Þjóðverjanum Peter
Hussing dæmdur sigur yfir
Rúmena á stigum og átti því að
keppa við Stevenson í úrslit-
unum. Þegar kom að þeim leik
tilkynnti Þjóðverjinn að hann
gæti ekki keppt vegna meiðsla, en
líkleg skýring á fjarveru hans
þótti þó sú að hann þyrði ein-
faldlega ekki að keppa við
Stevenson. Það hafði Hussing
gert tvívegis áður og í bæði
skiptin höfðu leikar farið svo að
hann lá meðvitundarlaus í gólf-
inu, þegar í fyrstu lotu.
Getur Frazier ógnað?
Verði Stevenson í góðu formi í
Moskvu, sem raunar er ekki að
efa að hann verður, er ólíklegt að
nokkur geti ógnað sigri hans.
Bandaríkjamenn binda miklar
vonir við Marvis Frazier, son hins
kunna kappa, Joe Frazier sem
var heimsmeistari í þungavigt
hnefaleika á sínum tíma. En
„litli“ Frazier er aðeins 18 ára, og
skortir því enn bæði þroska og
reynslu, þótt efnilegur sé. Kúbu-
menn óttast hann ekki svo mjög.
Talið er að eini maðurinn sem
gæti veitt Stevenson verulega
keppni sé landi hans, Milan, en
hann verður ekki meðal kepp-
enda á leikunum, — verður að
bíða betri tíma. Milan þessi þykir
geysilega góður hnefaleikari og
jafnvígur á báðar hendur. Hann
vakti mikla athygli á kúbanska
meistaramótinu í vetur, en þar
voru 265 keppendur í þungavigt-
arflokknum og keppnin stóð í
marga daga. Milan afgreiddi
hvern andstæðinginn af öðrum
með rothöggum, og komst í úr-
slitin, ásamt Stevenson. En
keppni milli þeirra fór ekki fram.
Framkvæmdaaðili mótsins, Fidel
Castro, ákvað að þeir Milan og
Stevenson yrðu báðir krýndir
meistarar, án keppni. Svona ein-
falt er málið hjá Castro!
Rafn hf.
Sandgerði
Símar:
Skrifst. 92-7516
Frystih. 92-7518
Saitfiskv. 92-7520
TÖKUM TIL
VINNSLU
ALLAR
SJÁVAR-
AFURÐIR
Rafn hf.
Sandgerði
Sími
92-7516
31