Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.11.1979, Page 33

Íþróttablaðið - 01.11.1979, Page 33
Ricky Bruch sem stefnir að titlinum „Herra alheimur” og kringlu- kastverðlaunum í Moskvu er frægt vandræða barn sænsku frjálsíþróttanna mmmmL WMMuám' IRK .. Aln'-íí vW-.'V iVMVÍV, Náði toppárangri utan dagskrár Sænski kraftakarlinn Ricky Bruch er ekki af baki dottinn. Bruch, sem nú er 33 ára, hefur þrívegis keppt á Olympíuleikum, en vill ekki láta við það sitja, heldur ætlar sér að keppa á Olympíuleikunum í Moskvu næsta sumar. Róðurinn verður þó sjálfsagt þungur fyrir hann, ekki hvað síst vegna þess að hann er í ónáð bæði hjá sænskum frjáls- íþróttamönnum og frjáls- íþróttayfirvöldum, sem ótt- ast jafnvel að bestu frjáls- íþróttamenn Svía neiti að fara til Moskvu, ef Bruch verður í hópnum. En Ricky Bruch á sér nú einnig annað takmark til að keppa að. Hann æfir það sem kallað er „body building“, og ætlar að keppa við önnur vöðvafjöll um titilinn „Herra alheimur“ árið 1980. Eitt er víst að Buch, sem nú er 33 ára, skortir ekki sjálfstraust. — Ég get skroppið hérna út og kastað 63 metra, sagði hann við blaðamenn fyrir skömmu, og bætti því við að hann æfði nú betur en nokkru sinni fyrr og væri óumræðilega sterkur. — Ég kasta reyndar ekki kringlu mikið nú- orðið, en ég hef haldið kröft- unum og meira að segja bætt við þá, og það er það sem gildir, sagði Bruch. Lágmarkið til þátttöku tveggja manna frá Svíþjóð í kringlukasti á Olympíuleikunum eru 64 metrar, og er það lágmark sett af sænsku Olympíunefndinni. Verða kringlukastararnir að ná þeim árangri í viðurkenndu móti. f ár hafa tveir sænskir kringlu- kastarar náð þessu takmarki, þeir Kent Gardenkrans sem kastaði 64,42 metra og Kenneth Aakes- son sem kastaði 64,40 metra. Það er opinbert leyndarmál að stjórn sænska frjálsíþróttasam- bandsins vill sem minnst um Ricky Bruch heyra. Þegar for- maður sambandsins Hermann Buuts var spurður að því hvort Bruch yrði sendur ef hann næði lágmarkinu, svaraði hann því til að innan sambandsins væru efa- semdir um að Bruch væri „æski- legur“ Olympíukandidat. — Það er ekki eins auðvelt að vinna til verðlauna á leikunum, og Bruch heldur, sagði formaðurinn. Ricky Bruch á reyndar ein Olympíuverðlaun í fórum sínum. Hann hlaut bronsverðlaun á leikunum 1972. Þegar hann keppti í Montreal 1976, gekk hins vegar ekki eins vel. Hann komst ekki einu sinni í úrslitin, og framkoma hans á leikunum vakti mikla furðu, þeirra er með fylgd- ust. Bruch tók svo síðast þátt í stórmóti 1978 og kastaði hann þá kringlunni 60,60 metra. Á sænska meistaramótinu í sumar ætlaði Bruch að sanna hvers hann væri megnugur, og þar sem hann hafði orðið sænsk- ur meistari árið 1978 átti hann þátttökurétt í mótinu, án þess að Framhald á bls. 64 33

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.