Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.11.1979, Side 49

Íþróttablaðið - 01.11.1979, Side 49
Var umtalið um Press „bræðurna” sprottið af öfund? Á árunum um og eftir 1960 voru sovésku systurnar Tamara og Irina Press sannkallaðar drottningar í ríki sínu í frjálsum íþróttum kvenna. Tamara setti þá hvert heimsmetið af öðru í kúluvarpi og kringlukasti, og Irina var fyrsti sigurveg- arinn í fimmtarþraut kvenna á Olympíuleikum, er hún sigraði með nokkrum yfir- burðum í þeirri grein í Tokíó 1964. Vöktu systurnar jafn- a'n mikla athygli, ekki að- eins fyrir íþróttaafrek sín, heldur og fyrir það hversu kraftalegar og karlmann- legar þær voru, og kom það raunar ekki svo ýkja á óvart að þær hættu báðar skyndi- lega keppni, þegar kom að hinni svonefndu „kynpróf- un“ á öllum meiri háttar frjálsíþróttamótum. Tamara Press vakti fyrst veru- lega athygli á sér árið 1959, er hún setti sitt fyrsta heimsmet í kúluvarpi, varpaði 17,25 metra og bætti þágildandi heimsmet um 49 sentimetra. Met það átti landa hennar Sybinas og var það sett árið 1965, og þegar hún vann það afrek þótti það með ólíkind- um gott, og engar líkur á því að það yrði bætt á næsta áratug. Síðasta heimsmet sitt setti hins vegar Tamara Press í september árið 1965, og varpaði hún kúl- unni 18,59 metra. Það heimsmet stóð fram til ársins 1969. Tamara Press hafði oftast umtalsverða yfirburði yfir stöllur sínar á þeim íþróttamótum sem hún tók þátt í, og vann tvívegis til gullverðlauna í uppáhaldsgreinum sínum. Systir hennar, Irina Press, var einnig framúrskarandi íþrótta- Öruggar prófanir Þegar kynprófun var tekin upp í frjálsum íþróttum og raunar fleiri íþróttagreinum þótti þar um sjálfsagða ráð- stöfun að ræða. En síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar, og nú efast menn um giidi og til- gang slíkra prófana. Ekki þar fyrir að enn eru menn á varð- bergi gagnvart því að konur noti karlmannahormóna til þess að auka líkamsvöxt og styrk sinn, en ný gerð hor- mónalyfja hefur gert þessar prófanir óöruggari, svo og sú vitneskja að möguleikar eru á því að konur standist ekki um- rætt próf, jafnvel þótt þær hafi enga hormóna tekið. Kynprófið er mikil raun fyrir margar íþróttakonur, og hefur t.d. heimsfræg bandarisk íþróttakona lýst því hvernig henni leið meðan hún var að bíða eftir því að röðin kæmi að henni við slíka athugun. — Ég hafði engin lyf tekið, en stundað lyftingar og aðrar styrkjandi æfingar þannig að ég féll ekki að formúlunni um líkamsvöxt kvenna, sagði hún. — Ég var orðin svo ringluð að ég vissi ekki hvers kyns ég var, og var í einu svitabaði meðan ég beið eftir úrskurðinum. Hann var jákvæður fyrir mig, en hins vegar neikvæður fyrir eina stallsystur mína, sem eng- inn hefði þó efast um, líkams- vaxtarins vegna, að væri kven- maður. Þá hefur og verið bent á það, að nú séu þeir möguleikar fyrir hendi, að það fólk, sem valið hefur verið til þess að verða afreksfólk í íþróttum, geti fengið allskonar hormónalyf í uppvexti sínum, sem síðan komi ekki fram þegar það er orðið að fullvaxta keppnis- fólki, og er þetta enn talið rýra gildi kynprófananna. Það eru sem sagt til ótal leiðir til þess að komast framhjá reglunum, svo fremi sem vilji er fyrir hendi, en um hann efast enginn í því æðislega kapphlaupi sem nú stendur yfir milli stórveld- anna á íþróttasviðinu. 49

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.