Íþróttablaðið - 01.11.1979, Side 65
A útivelli
Kipani hélt
stöðu sinni
Eftir að Sovétmenn náðu
aðeins jafntefli 1—1 í lands-
leik sínum í knattspyrnu við
Finna í Helsinki í sumar, var
landsliðsþjálfaranum Nikita
Simonian vikið frá störfum.
Nú hafa Sovétmenn ráðið nýj-
an landsliðsþjálfara, hinn 58
ára Konstantin Beskov, en
hann er enginn nýgræðingur á
þessu sviði, var t.d. með sov-
éska landsliðið sem komst í
úrslit í Evrópubikarkeppninni í
knattspyrnu 1963—1964, og
var einnig þjálfari Dynamo
Moskva, sem komst í úrslit
Evrópubikarkeppni bikarhafa
1972. I fyrra var hann svo
þjálfari Spartak Moskva, og
kom liðinu í 1. deild. Beskov
var á sínum tíma frammúr-
skarandi knattspyrnumaður og
skoraði 103 mörk í þeim 231
leik sem hann lék í sovésku 1.
deildar keppninni. Svo virðist
sem Beskov ætli sér að söðla
alveg um hjá sovéska landslið-
inu. Hann tilnefndi strax 27
leikmenn til æfinga með liðinu,
og aðeins tveir þessara leik-
manna hafa verið í sovéska
landsliðinu að undanförnu,
þeir Oleg Blochin frá Dynamo
Kiev og David Kipiani frá
Dynamo Tblisi. Verður fróð-
legt að sjá hvernig Beskov og
hans mönnum vegnar þegar
þeir mæta Vestur-Þjóðverjum í
vináttulandsleik, sem fram á
að fara í Tblisi 21. nóvember
n.k., en það verður fyrsti leik-
urinn þar sem Beskov stjórnar
liðinu opinberlega.
Clemence
verður kyrr
Þótt flestir knattspyrnu-
menn eigi erfitt með að stand-
ast gylliboð ríkra knattspyrnu-
félaga, eru þó nokkrir sem
meta félagsskapinn meira en
peninga. Einn þeirta er enski
landsliðsmarkvörðurinn Ray
Clemence, sem nýlega hefur
ritað undir samning við félag
sitt, Liverpool, um það að vera
hjá félaginu meðan hann leik-
ur knattspyrnu. Clemence er
31 árs og hefur hann að und-
anförnu fengið hvert tilboðið
öðru betra frá bandarískum
félögum, og það jafnvel hærri
tilboð en til þessa hafa þekkst
þegar markvörður á í hlut. Ray
Clemence hóf knattspyrnuferil
sinn hjá félaginu Schun-
thorpe, en með því félagi hóf
einnig annar þekktur kappi
sinn frægðarferil: Kevin Keeg-
an. Liverpool keypti Clemence
fyrir upphæð sem svarar til 14
milljóna fyrir 12 árum, og hef-
ur félagið sennilega sjaldan
gert betri kaup. Nú hefur Ray
Clemence leikið rösklega 640
leiki með Scunthorpe, Liver-
pool og enska landsliðinu og
haldið marki sínu hreinu í 308
þeirra leikja. Eftir að Clemence
hafði skrifað undir hinn nýja
samning sinn við Liverpool,
sagði Bob Paisley, fram-
kvæmdastjóri þess, að hann
væri afskaplega ánægður. Ekki
bara vegna þess að Clemence
væri besti markvörður í heimi
um þessar mundir, heldur
einnig vegna þess að þessi
samningur hefði fært sér heim
sannindi þess að enn væru til
leikmenn, sem mætu íþróttina
og félag sitt svo mikils að þeir
settu ekki fram svo háar kröfur
að félagið færi á hausinn.
65
L