Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1986, Qupperneq 7

Íþróttablaðið - 01.04.1986, Qupperneq 7
Ritstjóraspjall ÞORGRÍMUR ÞRÁINSSON Óhætt er að segja að úrslitin í heimsmeistarakeppninni í Sviss séu þau óvæntustu í heims- meistaramóti til þessa — og jafnframt þau ánægjulegustu fyrir íslendinga. Fæstir bjuggust við því að íslenska landsliðinu tækist að tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum í Seoul 1988, en draumurinn varð að veruleika. Sjötta sæti í heimsmeistarakeppni er frábær árangur og sýnir að hægt er að ná árangri ef allir leggja hönd á plóginn. Hjarta íslensku þjóðarinnar var með strák- unum í Sviss og sló bylmingshögg þegar mest reið á. Það er mál manna að léttleikinn hafi sigrað kraftinn í Sviss því þau lið sem komu hvað mest á óvart voru frá Norðurlöndum og Suður-Kóreu. Boltatækni, hraði og léttleiki einkenndi leik Suður-Kóreumanna og er það sigur fyrir handknattleikinn að slíkt lið skuli ná góðum árangri. Markahæsti leikmaður keppninnar var frá Suður-Kóreu — Kang að nafni, tvítugur stráklingur sem setti nýtt markamet með því að skora 67 mörk. Ef Kang á fleiri sína líka í Suður-Kóreu má búast við miklu af þeim í framtíðinni. Á næstu árum má reikna með að þróunin í handboltanum verði í tækni einstakra leikmanna. Lið frá Austur-Evrópu verða að hugsa sinn gang og tileinka sér meiri léttleika því ólíklegt er að leikmenn yfir hundrað kíló komi til með að ná langt ef svo heldur áfram sem horfir. Hvað ís- lenska landsliðið varðar er það helst tæknin sem er okkur ljár í þúfu. Liðið leikur agaðan og skipulagðan handknattleik en bæta verður töluvert við boltatæknina ef við ætlum að halda okk- ur á toppnum. Um þessar mundir er knattspyrnumenn að taka fram keppnisskóna því boltinn er farinn að rúlla fyrir alvöru. Margir stórviðburðir verða á knattspyrnuvellinum í sumar og ber þar helst að nefna leik íslands og Frakklands í Evrópukeppni landsliða í haust. Að öllum líkindum leikur besti knattspyrnumaður heims — Michel Platini með liðinu og hver veit nema annað Benfica- ævintýri sé í uppsiglingu? Ritstjóri: Þorgrímur Þráinsson Auglýsingastjóri: Hafsteinn Viðar Jensson Skrifstofa ritstjórnar: Ármúla 38 Útgefandi: Frjálst framtak hf. S tj órnarf ormaður: Magnús Hreggviðsson Skrifstofa og afgreiðsla: Ármúla 18 Símar 82300 — 685380 Áskriftargjald kr. 565,00 (hálft ár) Hvert eintak í áskrift kr. 188,33 Hvert eintak í lausas. kr. 219,00 Setning, umbrot, filmuvinna prentun og bókband: Prentstofa G. Benediktssonar Litgreining kápu: Prentmyndastofan. Málgagn íþróttasambands Islands Forsíðumyndin er af Pálmari Sigurðssyni Haukum. Ljósmynd: Páll Stefánsson. HÉRAÐSSAMBÖND INNAN ÍSÍ: HÉRAÐSSAMBAND SNÆFELLSNES- OG HNAPPADALSSÝSLU HÉRAÐSSAMBAND STRANDAMANNA HÉRAÐSSAMBAND SUÐUR-ÞINGEYINGA HÉRAÐSSAMBAND VESTUR-ÍSFIRÐINGA HÉRAÐSSAMBANDIÐ SKARPHÉÐINN ÍÞRÓTTABANDALAG AKRANESS ÍÞRÓTTABANDALAG AKUREYRAR ÍÞRÓTTABANDALAG HAFNARFJARÐAR ÍÞRÓTT ABANDALAG ÍSAFJARÐAR ÍÞRÓTTABANDALAG KEFLAVÍKUR ÍÞRÓTTABANDALAG ÓLAFSFJARÐAR ÍÞRÓTTABANDALAG REYKJAVÍKUR ÍÞRÓTTABANDALAG SIGLUFJARÐAR ÍÞRÓTTABANDALAG SUÐURNESJA ÍÞRÓTTABANDALAG VESTMANNAEYJA UNGMENNA- OG ÍÞRÓTTASAMBAND AUSTURLANDS UNGMENNASAMBAND A-HÚNVETNINGA UNGMENNASAMBAND BORGARFJARÐAR UNGMENNASAMBAND DALAMANNA UNGMENNASAMBAND EYJAFJARÐAR UNGMENNASAMBAND KJALARNESSÞINGS UNGMENNASAMBAND SKAGAFJARÐAR UNGMENNASAMBAND V-HÚNVETNINGA UNGMENNASAMBAND V-SKAFTFELLINGA UNGMENNASAMBANDIÐ ÚLFLJÓTUR UNGMENNASAMBAND N-ÞINGEYINGA SÉRSAMBÖNDINNAN ÍSf: BADMINTONSAMBAND ÍSLANDS BLAKSAMBAND ÍSLANDS BORÐTENNISSAMBAND ÍSLANDS FIMLEIKASAMBANDISLANDS FRJÁLSÍÞRÓTTASAMBAND ÍSLANDS GLÍMUSAMBANDISLANDS GOLFSAMBANDISLANDS HANDKNATTLEIKSSAMBAND ÍSLANDS ÍÞRÓTT AS AMBAND FATLAÐRA JÚDÓSAMBAND ÍSLANDS KARATESAMBAND ÍSLANDS KNATTSPYRNUSAMBANDISLANDS KÖRFUKNATTLEIKSSAMBAND ÍSLANDS LYFTINGASAMBAND ÍSLANDS SIGLINGASAMBAND ÍSLANDS SKÍÐASAMBAND ISLANDS SKOTSAMBAND ÍSLANDS SUNDSAMBAND ÍSLANDS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Íþróttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.