Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1986, Side 15

Íþróttablaðið - 01.04.1986, Side 15
ð að veruleika eftir hraðaupphlaup. Oft virtist sem boltinn vildi hreinlega ekki inn í mark- ið. Þeir markverðir sem stóðu sig hvað best voru Júgóslavinn Arnatovic, Spán- verjinn Diaz, sænsku markverðirnir Hellgren og Olson, Austur-Þjóðverjinn Hoffmann og Vestur- Þjóðverjarnir Thiel og Hecker. Var oft hrein unun að sjá til þeirra. Af öðrum leikmönnum komust Júgóslavarnir Vujovic og Cvetkovic vel frá þessari keppni. Suður-Kóreumað- urinn Kang kom mjög á óvart í keppn- inni með hraða sínum og tækni og setti nýtt markamet — skoraði 67 mörk. Kristján Arason var einnig meðal bestu leikmanna keppninnar — óhemju mikilvægur fyrir lið íslands og var máttarstólpi þess bæði í vörn og sókn. Sænski leikmaðurinn Jilsen stóð sig vel og skoraði mikilvæg mörk auk þess sem hann lék félaga sína vel upp. Leikmenn sem fyrirfram var talið að kæmu til með að vera yfirburðamenn voru nokkuð mistækir og má þar fyrst- an nefna v-þýska hornamanninn Fraatz sem lék langt undir getu. Frank Wahl sýndi oft góða takta en þess á milli datt hann niður. Dómgæsla í keppninni var nokkuð misjöfn og í heild léleg. Dómar voru mjög breytilegir eftir því hvaða dómar- ar dæmdu og hvaða lið áttu í hlut. Heimamenn komust t.d. upp með það sem ekkert hinna liðanna gat látið sig dreyma um. Ennfremur var eins og ákveðin lið væru innundir hjá dómur- unum — svo mjög högnuðust þau á dómgæslunni. TAKMARKIÐ NÁÐIST Um íslenska liðið er það að segja að leikmenn þess börðust vel þegar mest reið á - í leikjunum gegn Tékkum og Rúmenum. Einnig var frammistaða gegn Dönum stórglæsileg. Óheppni kostaði okkur sigur í leiknum gegn Ungverjum. Hvað einstaka leikmenn varðar þá stóð Kristján Aarson sig vafalaust best svo og Guðmundur Guðmundsson. Hinir leikmennirnir voru meira upp og niður, áttu góða leiki en duttu niður þess á milli. Einnig voru sumir of sterkir í hluta af leikjunum og þess á milli gerðu þeir sig seka um klaufaleg mistök. - Mistök sem koma verður í veg fyrir í framtíðinni. Þegar á heildina er litið getum við verið ánægð. Takmark- ið náðist - að komast á Ólympíuleikana í Suður-Kóreu 1988. Þetta var í raun fjarlægur draumur þegar lagt var af stað til Sviss en hann varð að raun- veruleika. Sjötta sætið í heimsmeist- aramóti er frábær árangur sem sýnir að við höfum skipað okkur meðal bestu handknattleiksþjóða heims. Erfitt er að komast á toppinn og enn erfiðara að halda sér þar. Framundan er því löng og erfið barátta og verður að leggja allt í sölurnar til þess að halda sætinu — á toppnum. 15

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.