Íþróttablaðið - 01.04.1986, Síða 22

Íþróttablaðið - 01.04.1986, Síða 22
Stórkosdeg upplifun! — rætt við Guðmund Guðmundsson,eina af stjörnunum úr heimsmeistarakeppninni. Texti: Gauti Grétarsson. Sá leikmaður íslenska landsliðsins í handknattleik sem einna mest kom á óvart í heimsmeistarakeppninni var Guðmundur Guðmundsson horna- maðurinn úr Víkingi. Guðmundur stóð sig mjög vel. Hann skoraði mörg mörk bæði úr hraðaupphlaupum og þegar hann kom inn á miðjuna. Einnig skilaði hann hlutverki sínu í varnarleiknum af stakri prýði. íþróttablaðið ræddi við Guðmund að lokinni heimsmeistarakeppninni. — Hvernig fannst þér heimsmeist- arakeppnin? var fyrsta spurningin sem lögð var fyrir Guðmund. „Hún var stórkostleg upplifun og það var gaman að taka þátt í þessu. Það sem kom mér mest á óvart var hve Vestur-Evrópuþjóðirnar eru að sækja í sig veðrið og hvernig þær skákuðu Austantjaldsliðunum. Einnig var ég hissa á því hve dómgæslan var slök. Hún var ekki í sama gæðaflokki og handknattleikurinn." — Hvernig leið þér eftir leikinn gegn Suður-Kóreu? „íslenska liðið beið skipbrot í leikn- um gegn Kóreu og eftir það var ekki um annað að ræða en að duga eða drepast. Leikirnir gegn Tékkum og Rúmenum voru stórgóðir og með smá- heppni hefði leikurinn við Ungverja átt að vinnast. í þeim leik var of mikið um tæknileg mistök í sóknarleiknum. Leik- urinn við Dani var mikilvægur. Þar sýndum við að íslenska liðið var í miklu betra formi en það danska. Ég vil þakka því sigurinn að við vorum í toppformi á hárréttum tíma. KRISTJÁN VAR HÁLFUR MAÐUR í leiknum gegn Svíum var dómgæsl- an afleit og var hún okkur nokkuð í óhag. Af myndbandi af leiknum má sjá að minnsta kosti tíu dómar eru okkur í óhag. Við vorum reyndar ekki ánægðir með leik okkar, en það ber að hafa i huga að Kristján Arason var ekki nema hálfur maður í þessum leik vegna meiðsla og munar um minna. Leikurinn um fimmta sætið var ekki illa leikinn hjá okkur og hefði getað endað á hvorn veginn sem var.“ — Hver er munurinn á heimsmeist- arakeppni og Ólympíuleikum? „Munurinn er ekki svo mikill. Leikja- fjöldinn er svipaður og mikið í húfi í báðum mótunum. Eftir Ólympíuleik- ana var talað um að Austurblokkina hefði vantað og keppnin hefði þar af leiðandi ekki gefið rétta mynd af stöðu liðanna. í heimsmeistarakeppninni sýndi það sig að þjóðirnar sem kepptu á Ólympíuleikunum voru ekki lakari en hinar, frekar öfugt. Spánverjar og Svíar náðu til dæmis betri árangri í þessari keppni en á Ólympíuleikunum." HANN ER SNILLINGUR — Ert þú hlynntur því að Bogdan haldi áfram með landsliðið? „Ég efast ekki um að Bogdan er með hæfustu þjálfurum í heiminum um þessar mundir. Hann er snillingur í að ná liði í toppform á réttum tíma. Sem þjálfari og skipuleggjari er hann í hæsta gæðaflokki. Hann nær meiru út úr liðinu ef hann fær leikmenn með sér og góða aðstöðu til æfinga. Hvað varðar leikskipulagið finnst mér að við höfum lagt of mikla áherslu á miðjuna. Það þarf að bæta við meira hornaspili og ég hef trú á að það verði gert á næstunni." — Allt umstangið fyrir keppnina. Hefur það einhver áhrif á þig? „Fyrir mitt leyti hafði það engin áhrif. Ég lít á það sem óhjákvæmilegan hluta undirbúningsins fyrir slíka keppni sem þessa. Menn verða að læra að lifa með þessu.“ — Hvað um framhaldið? „Ég er ekki búinn að ákveða mig ennþá. Gífurlegur tími fer í þetta og ég á eftir að ræða við vinnuveitanda minn og konuna hvort ég fæ mig lausan til þátttöku í svo miklum undirbúningi aftur.“ — Hvaða lið telur þú að komi úr B- keppninni á Ólympíuleikana? „Ég held að það verði Rúmenar og Sovétmenn. Ég held að þessi lið hafi ekki náð að koma sér í form á réttum tíma. Ef til vill hafa leikmenn liðanna verið andlega saddir á handknattleik fyrir keppnina. Leikmaður eins og Voinea hjá Rúmenum skoraði til dæmis einungis 12 mörk sem þykir víst ekki mikið á þeim bæ.“ — Að lokum? „Ég vil þakka þeim áhorfendum sem fylgdu okkur til Sviss fyrir ómetanleg- an stuðning. Maður finnur vel fyrir hvatningarópum meðan á leik stendur og þau eru mikils virði. Einnig vil ég þakka öll þau skeyti sem okkur bárust meðan á keppninni stóð,“ sagði Guð- mundur Guðmundsson að iokum. 22

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.