Íþróttablaðið - 01.04.1986, Page 27
Pálmar
reiður að ég fór út að hlaupa. Ég man
að eftir einn slæman leik sem við töp-
uðum og ekkert gekk upp hljóp ég
Heiðmerkurhringinn í reiðiskasti,
stoppaði í Garðabæ og spilaði körfu-
bolta við nokkra gutta og hljóp heim.
Metnaðurinn er það mikill og ef þú vilt
verða betri þá æfirðu meira, færð
sjálfstraust og á endanum stendurðu
uppi sem sigurvegari".
VILTU VERÐA BETRI?
Framundan er nokkurs konar
gúrkutíð hjá körfuboltamönnum því
keppnistímabilinu er að ljúka. Flestir
hafa þá heldur hægt um sig og hvílast
þar til næsta undirbúningstímabil
hefst. En er það rétta leiðin? Er ekki
æskilegt fyrir leikmenn að halda sér í
formi eða stunda aðrar íþróttir? „Ég
tel það gífurlega mikilvægt að halda
sér í formi yfir sumartímann t.d. með
að stunda aðrar íþróttir. Þá á ég ekki
við að halda sér við í toppkeppnisformi
heldur halda við grunnþolinu og vinna
á þeim veikleikum sem þú telur þig
hafa. Þetta er spurning hve langt þú
vilt ná á næsta keppnistímabili og
hvort þú vilt verða betri — það er heila
málið“.
Tveir bikarmeistaratitlar er uppskera
Hauka síðastliðin tvö ár og verður það
að teljast frábær árangur hjá Iiðinu. En
er Pálmar ánægður með árangur
Hauka að undanförnu?„Alveg virki-
lega. Vandamálið hefur verið hversu
miklar kröfur hafa verið gerðar. Þá á
ég bæði við kröfur frá utanaðkomandi
og leikmönnum sjálfum. En við verð-
um að horfast í augu við þá staðreynd
að liðið er ungt að árum en hefur þó
náð mjög góðum árangri. Liðið verður
að fá að þróast rétt þó svo markmiðið
sé alltaf að vinna titlana".
KÖRFUBOLTINN VAR í SKUGGA
HANDBOLTANS
Hafnarfjörður hefur ætíð verið
þekktastur fyrir góð handboltalið og
var áhuginn mestur þegar Haukar
voru stórveldi á því sviði ásamt FH.
Körfuboltinn hefur því ætíð verið í
skugga handboltans en nú verður
kannski breyting þar á. „Körfubolti átti
erfitt uppdráttar í Hafnarfirði og var
íþróttin ekki vinsæl. Það var ekki fyrr
en okkar árgangur kom upp að áhug-
inn fór að aukast. Erfitt hefur verið að
hasla sér völl þar sem topplið eins og
FH er við lýði. En það hefur sýnt sig að
áhugi almennings er að aukast og hef-
ur verið stutt vel við bakið á okkur
þegar vel gengur. Góður kjarni hefur
myndast í kringum liðið sem hefur
fylgt okkur í einu og öllu“.
— Körfuboltinn í vetur?
„Persónulega fannst mér hann
ósköp svipaður og í fyrra. Við erum að
þróast í gegnum ákveðið tímabil og
eigum marga unga efnilega stráka sem
eru að mótast og verða góðir eftir 2-3
ár. Það tekur tíma að ná ákveðnum
standard. Okkur skortir reynslu en
hópurinn verður orðinn mjög góður
innan fárra ára“.
— Kom eitthvað þér á óvart?
„Ég tel að Keflvíkingar hafi komið
skemmtilega á óvart því enginn bjóst
við að þeir næðu sæti í úrslitakeppn-
inni. Liðið er ungt og efnilegt og stóð
sannarlega fyrir sínu. Til KR kom sam-
tíningur leikmanna og tvístraðist
kjaminn sem var fyrir. Þeir duttu því
dálítið niður en unnu okkur þó tvíveg-
is.
55 ÞRIGGJA STIGA KÖRFUR
Pálmar hefur mest skorað 50 stig í
leik í l.deild en það var gegn Þór Akur-
eyri. í úrvalsdeildinni hefur hann skor-
að mest á móti KR — 48 stig. í vetur
varð Pálmar næststigahæstur í deild-
inni með 496 stig, hann var með
þriðju bestu vítahittnina — 78% en
hann hafði mikla yfirburði hvað
þriggja stiga körfur varðar. Hann skor-
aði úr 55 skotum fyrir utan línu sem
gaf 165 stig. Stórglæsilegur árangur
hjá pilti. „Staða mín á leikvelli býður
upp á skot fyrir utan línu. Eini munur-
inn frá því sem áður var er að það er
komin lína og skrifuð þrjú stig í stað
tveggja áður. Ég neita því ekki að ég
tek stundum skrefið út fyrir. Sem bak-
vörður verð ég að vera með góða ógn-
un fyrir utan“.
27