Íþróttablaðið - 01.04.1986, Blaðsíða 63
A-Landsliðið
ROSALEGAR FRAMFARIR
Pétur Guðmundsson fær ekki að
leika með íslenska landsliðinu þar sem
hann hefur leikið sem atvinnumaður í
NBA. Þessar fáranlegu reglur alþjóða
— körfuknattleikssambandsins eru nú
til umfjöllunar og er von mín að þeim
verði breytt áður en langt um líður. Ef
það gengur í gegn verða bæði Pétur
og fvar Webster löglegir með landslið-
inu og vænkast þá hagur okkar. Þetta
eru engar hillingar því framfarirnar hjá
hinum strákunum hafa verið alveg
rosalegar. Þetta er vart sami boltaleik-
urinn og fyrir þremur fjórum árum“.
— Hvað liggur að baki þessum
framförum?
„Bandarísku leikmennirnir sem léku
hér fyrir nokkrum árum komu með
ferskan blæ í körfuna — fyrst og
fremst sem áróðursmenn. Einn og einn
gat kennt eitthvað en í fæstum tilfell-
um voru þetta góðir þjálfarar. Einnig
vil ég þakka þessar framfarir gífurlega
öflugu unglingastarfi sem hófst fyrir 5
árum. Þá voru í unglingalandsliðinu
strákar eins og Valur Ingimundarson
og Pálmar Sigurðsson. Einnig völdum
við 13 til 14 ára stráka til æfinga og
sköpuðum verkefni fyrir þá. Árangur-
inn er fljótur að skila sér og gott dæmi
er úr fótboltabænum Keflavík. Þar hafa
afburða íþróttastrákar eins og Guðjón
Skúlason valið körfuboltann snemma
vegna þess að mikið var fyrir þá gert.
íþróttagreinarnar eru alltaf meira og
minna að slást um sömu strákana því í
hverjum aldursflokki eru nokkrir sem
hafa alla burði til að verða toppmenn.
Vel skipulagt unglingastarf er grund-
völlurinn til árangurs. Landsliðshópur-
inn í dag auk B-liðsins samanstendur
af strákum sem hafa spilað á þriðja tug
unglingalandsleikja og leikið í Evrópu-
keppni. Þá má geta þess að fyrirliði
landsliðsins Torfi Magnússon sem er
31 árs hefur aldrei leikið unglinga-
landsleiki. Það þekktist hreinlega ekki
á þeim tíma. Samhliða þessu unglinga-
starfi eru að koma upp mjög færir
þjálfarar — strákar sem eru hættir að
spila. Má þar nefna Gunnar Þorvarðar-
son,Jón Sigurðsson og Kristinn Jör-
undsson. Þeir eru mjög áhugasamir og
hafa áhuga á að fara út á námskeið. Ég
vil því segja að körfuboltinn standi á
miklum tímamótum í dag“.
GLEÐILEGUR HÖFUÐ VERKUR AÐ
VELJA LANDSLIÐIÐ
Undirbúningur fyrir Evrópukeppn-
ina hófst fyrir tæpum tveimur árum og
var þá valinn landsliðshópur. Einungis
tveir nýir leikmenn hafa bæst í þann
hóp síðan. „Á þessu tímabili höfum við
prófað 27 leikmenn með A- og B-lands-
liðinu. Nú er lokaþátturinn hafinn og
reiknast mér að við höfum leikið um
40-50 úrvals- og landsleiki á tæpum
tveimur árum“.
Geysilegar framfarir hafa orðið í
körfuboltanum á íslandi á undanförn-
um árum og eigum við tugi frábærra
leikmanna. Einar Bollason er því ekki í
öfundsverðu hlutverki að þurfa að
gera upp á milli leikmanna. „Gífurlega
erfitt er að velja landsliðið í dag. Annan
eins höfuðverk hef ég ekki fengið lengi
- en hann er gleðilegur. Það er ekki
eingöngu erfitt að velja 10 manna lið
heldur einnig 12 manna hóp. Því er þó
ekki að neita að ákveðinn kjarni er allt-
af í liðinu".
MARGARSORGARSÖGUR
í landsliðshópnum fyrir Evrópu-
keppnina er aðeins einn leikmaður úr
hvoru toppliði á íslandi — Haukum og
Njarðvík. Aftur á móti eru þrír leik-
menn úr KR sem varð í næst neðsta
sæti í úrvalsdeildinni. „Það er ekki
hægt að segja að við Gunnar Þorvarð-
arson séum hlutrægir. Við veljum þá
12 Ieikmenn sem við erum sannfærðir
um að geti myndað besta kjarnann til
að spila. Það er með landslið eins og
önnur lið að þú ert ekki endilega að
velja 12 bestu leikmennina heldur þá
12 sem spila best saman. Við þekkjum
margar sorgarsögur úr íþróttum þar
sem þessu hefur ekki verið framfylgt.
Styrkur Hauka og Njarðvíkur liggur
ekki síst í breiddinni og liðsheildinni.
Hin liðin eru kannski frekar byggð á
færri góðum mönnum. B-landsliðið er
aftur á móti borið uppi af leikmönnum
úr Haukum og Njarðvík".
Einar Bollason hefur verið þjálfari
Hauka í 4 ár og gert liðið að því stór-
veldi sem það er nú. Hann hefur
stjórnað liðinu í hinsta sinn og tryggði
liðið sér þá bikarmeistaratitilinn. Hvað
ætli taki við hjá honum? „Ekkert hefur
verið ákveðið í þeim málum. Hafnar
eru viðræður við ÍR og verður kannað
til þrautar hvort ég taki að mér þjálfun
liðsins á næstu árum og reyni að end-
urreisa þetta gamla stórveldi. Annars
eru miklar hræringar í þjálfaraheimin-
um um þessar mundir. En tíminn hjá
Haukum er tvímælalaust skemmtileg-
asta þjálfaraverkefni sem ég hef nokk-
urntíma fengist við“.
DRAUGAR HVER í SÍNU HORNI
Einar hefur verið viðloðandi lands-
liðið að einhverju leyti frá árinu 1973
en það ár gjörbylti hann liðinu. Skildi 3
leikmenn eftir en valdi 9 nýliða sem
voru meðal annars Torfi Magnússon og
Gunnar Þorvarðarson. Haustið 1982
lét hann af störfum sem landsliðsþjálf-
ari og má segja að þá hafi Iádeyða kom-
ið í landsliðsmálin. Engin landsliðs-
nefnd var starfandi, einungis var keppt
á tveimur mótum og það gleymdist að
tilkynna þátttöku í heimsmeistara-
keppnina. „Það er algjör forsenda þess
að körfuboltinn dafni að hlúð sé vel að
landsliðinu. En því miður hefur okkur
enn ekki tekist að losa okkur við alla
drauga innan íþróttarinnar sem ham-
ast við að pukra hver í sínu horni með
hagsmuni síns eigins félags að leiðar-
ljósi. Og láta sig engu skipta uppgang
íþróttarinnar".
Framundan hjá landsliðinu á næsta
ári eru næg verkefni. Má þar nefna
norðurlandamót, þátttaka í undan-
keppni Ólympíuleikanna og dregið
verður í riðla í undankeppni næstu
heimsmeistarakeppni. Sama fyrirkomu-
Iag er þar og í fótboltanum. Leikið
verður heima og heiman og eru 4-5 lið
í riðli. Ef ævintýri gerast og við vinnum
C-riðil Evrópukeppninnar þá er B-
keppnin framundan.
63