Íþróttablaðið - 01.12.1991, Blaðsíða 14
iHÉp
i
i
|
Litið inn á æfingu hjá
Skylmingafélagi
Reykjavíkur.
en nú í maí gæti orðið breyting þar á
þegar tekin verður ákvörðun um það
hvort ísland fái aðild að Alþjóða
Skylmingasambandinu.
Við báðum Örn Leifsson, formann
Skylmingafélags Reykjavíkur, að
segja okkur aðeins frá íþróttinni og
starfsemi félagsins. „í skylmingum
eru notaðar þrjár tegundir af sverð-
um. FOIL (léttstungusverð), EPÉE
(stungusverð) og SABRE (höggsverð).
EPÉE er einfaldasta tegund skylm-
inga. Þá fær maður stig aðeins fyrir að
hittaandstæðinginn. í hinum tveimur
er meira farið eftir reglum. Þá reynt
að hæfat.d. ákveðin svæði líkamans.
Brautin sem er notuð fyrir skylmingar
er 14 metrar á lengd og 2 metrar á
breidd. Keppt er í 3 lotum upp að 5
stigum."
Þeir hjá Skylmingafélaginu eru að
vinna í því að þýða ensku kennslu-
skrána og taka hana upp hér á landi. í
henni er gert ráð fyrir að menn fái
litamerki á búninginn sinn (líkt og í
júdó) eftir getu í íþróttinni."
— Hvaðaútbúnað þarf ískylming-
ar?
„Maður þarf sérstakan jakka,
grímu, sverð og hanska. Sérstakar
buxur, sokka ogskóergottaðhafaen
Nikolay Mateev hefur þjálfað hjá
Skylmingafélagi Reykjavíkur um
nokkurra mánaða skeið.
SKYLMINGAR
LÍKAMLEG SKÁK
Texti: Atli Hilmarsson
Myndir: Hreinn Hreinsson
Skylmingar eru íþrótt sem lítið
hefur verið stunduð hér á landi.
íþrótt þessi nýtur samt mikilla vin-
sælda út um allan heim og er til
dæmis þjóðaríþrótt í Ungverjalandi.
Bestu keppnismenn heimsins í
skylmingum í dag eru frá Þýskalandi,
Frakklandi, Sovétríkjunum og Ítalíu.
Skylmingafélag Reykjavíkur var
stofnað árið 1985 og félagar þess í
dageru um 60 talsins. í Keflavík hefur
einnig verið starfandi skylmingahóp-
ur. íslenskt skylmingafólk hefur
aldrei tekið þátt í alþjóðlegri keppni
ekki nauðsynlegt. Hingað til höfum
við pantað búningana okkar erlendis
frá en nú stendur til að þeir verði
fluttir inn."
— Er þetta dýrt sport?
„Það er hægt að fá útbúnað fyrir á
bilinu 20-40 þúsund krónur. í keppn-
14