Íþróttablaðið - 01.12.1991, Blaðsíða 29
Á LÍNUNNI
KRISTJÁN
HARÐARSON,
ÍSLANDSMETHAFI í
LANGSTÖKKI
Er það rétt að þú hafi
aldrei tapað fyrir John
Powell, heimsmethafa
(8,95) í langstökki?
„Bíddu nú við — hver var að segja
þér frá þessu? Viltu að ég rifji eitthvað
upp sem gerðist fyrir mörgum árum?
Þetta var árið 1984 þegar ég var tví-
tugur og hann ári eldri. Við kepptum
báðir í langstökki í skólakeppni fimm
eða sex skóla í Bandaríkjunum. Mig
minnir að ég hafi stokkið 7,77 m en
hann 7,76 m. Hann keppti, að mig
minnir, í 6 greinum á þessu móti og
hefur því örugglega ekki haft fulla
orku þegar við mættumst í langstökk-
inu. Annars var hann ekki mjög hrað-
ur á þessum árum og í raun frekar
renglulegur. Síðan hefur hann styrkst
mikið og tekið gríðarlegum framför-
um eins og allir vita. í rauninni er
■ytiiKiiiinBimwariawCT
Sparisjóður Hafnarfjarðar veitir alla
gjaldeyrisþjónustu við ferðamenn, námsmenn
og sér um yfirfærslur vegna erlendra viðskipta.
Hjá sparisjóðnum gefst einnig kostur á sérstökum
gjaldeyrisreikningum til ávöxtunar á
erlendum gjaldeyri.
VAITAI MG ^
GBEIÐSLUKQRT P
Sparisjóður Hafnarfjarðar veitir alla þjónustu á sviði
greiðslukorta. Sparisjóðurinn býður viðskiptavinum
sínum VISA- og EURO-greiðslukort.
EKKI VANTA
Sparisjödur
Hafnarfjardar
Kristján Harðarson.
John Powell ekki mjög fljótur að
hlaupa en hann bætir það upp með
frábærri tækni.
Skömmu eftir að við mættumst
skipti hann um skóla og þjálfari skól-
ans míns var ráðinn í skólann sem
hann gekk í. Hjá honum fékk hann
toppþjálfun og um árangurinn vita
allir."
VINNINGSFERÐ
FRESTAÐ
Ferðinni, sem var fyrirhuguð á
knattspyrnulandsleik Frakklands
og ísiands í París í nóvember síð-
astliðnum, var frestað vegna þess
að engin hópferð var á leikinn. í
ferðina áttu tveir heppnir áskrif-
endur íþróttablaðsins að fara.
Annars vegarátti að draga úr hópi
áskrifenda og hins vegar úr hópi
þeirra sem söfnuðu þremur nýj-
um áskfrifendum að blaðinu.
í stað Parísarferðarinnar verður
líkast til farið á einhvern stórleik í
ensku knattspyrnunni næsta vor.
Sú ferð verður auglýst í íþrótta-
blaðinu á nýju ári. Þeir, sem hafa
áhuga á því að detta í lukkupott-
inn,ættu þvíaðgerastáskrifendur
hið snarasta eða safna þremur
nýjum áskrifendum því þar eru
vinningsmoguleikarnir miklir.
29