Bændablaðið - 02.07.2020, Blaðsíða 47

Bændablaðið - 02.07.2020, Blaðsíða 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 2020 47 Einkunnarorð hjá mörgum er að ferðast innanlands í sumar enda landið fallegt og af mörgu er að taka í náttúru Íslands sem vert er að skoða. Mikið hefur verið um auglýsingar frá hinum ýmsu landshlutum um fegurð og það sem er í boði af þjónustu af ýmsum toga, s.s. gistingu, veitingum og það sem vert er að skoða á hverjum stað fyrir sig. Árið byrjaði vel og stefndi í slysalítið ár Fram til loka júní höfðu aðeins tveir látist í umferðinni og stefndi í metár, en slysin gera ekki boð á undan sér þrátt fyrir að varað sé sérstaklega við þeim. Svo var síðastliðinn sunnudag þegar nokkur mótorhjól komu upp úr Hvalfjarðargöngunum sem endaði með skelfilegum afleiðingum. Undanfarið hafa mótorhjólamenn verið að gagnrýna á spjallsíðum mótorhjólafólks að næstum allt nýtt malbik sé verra en hálustu vegir á vetrum þegar það blotnar. Mikið vantar af ferðamönnum í umferðina vegna COVID-19 og mjög fáir erlendir ferðamenn á landinu sem undanfarin ár hafa fyllt vegi landsins á bílaleigubílum. Með færri ferðamönnum og minkandi umferð ætti slysum á vegum að fækka, en til þess að það náist þurfum við að hjálpast að í að virða umferðarlög og vera varkár í umferðinni, það eru alls staðar hættur. Að vera tilbúinn til ferðalaga er lykillinn að ánægjulegu ferðalagi Bras getur verið skemmtilegt, en bara að vissu marki, það er ekki gaman að vera fastur í vegkanti með sprungið dekk ef felgulykillinn er ekki í bílnum eða tjakkurinn. Það að vera tilbúinn fyrir ferðalag vill gleymast hjá mörgum, en þetta er ósköp einfalt, fara yfir bílinn (eða mótorhjólið) áður en farið er í ferðalag. Er loft í varadekkinu, er hægt að ná varadekkinu undan bílnum? (Í bílum þar sem varadekk er undir bíl aftan til er það ótrúlega oft ryðgað fast og getur verið stórmál að ná undan). Er rafmagnspumpa með og tappasett fyrir varadekkslausa bíla í bíl? Þetta ofantalið er oft auðvelt að fara yfir og kostar ekki mikið miðað við kostnaðinn sem gæti orðið ef ekki er farið yfir þessa hluti. Snillingarnir á landsbyggðinni hafa bjargað mörgum Hjálpsamir verkstæðismenn og einstak lingar hafa bjargað mörgum ferða manninum. Einstaka sinn um rekst maður á myndir af „redd- ingum“ sem einhverjir mundu nefna „skítamix“. Sjálfur hef ég haft gaman af að sjá myndir af þessum „reddingum“, oft hefur mér dottið í hug að þessir snillingar hafi hugvit og gáfur til reddinga sem eru með ólíkindum (sjá myndir). Ökukennarar fengu skot á Facebook Nokkrum sinnum hef ég minnst á hér í þessum pistlum hættuna af ljósleysi aftan á bílum í umferðinni og hvatt bílstjóra til að blikka háuljósunum fyrir aftan bíla sem eru afturljósa- lausir. Þetta virðist virka vel og ansi margir bílstjórar eru farnir að átta sig og kveikja ljós við blikkið. Hins vegar mættu fleiri gera þetta og vil ég benda sérstaklega ökukennurum á að setja þetta inn í námið. Fyrir nokkrum dögum sá ég á Facebook færslu frá atvinnubílstjóranum Rúnari Harðarsyni skot sem ætlað var ökukennurum sem var orðrétt svohljóðandi (birt með leyfi): „Ok ég ásamt haug af fólki höfum verið að gagnrýna fólk sem ekki kveikir ljósin á nýrri gerðum af farartækjum. Svo í dag sá ég ástæð- una ... nokkrum ökukennurum hefur láðst að kenna nemendum þetta trix með takkann. Alla vega ók ég eftir 4 ökukennslufarartækjum í dag og mismunandi bifreiðar og einungis ledborðar að framan og málið dautt ...“ ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI KROSSGÁTA Bændablaðsins Lausn á krossgátu í síðasta blaði Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Bænda Smáauglýsingar 56-30-300 BAUTI SÆGUR B ÖRÐUGT Þ NAGLAR ÚRGANGURFISKUR H S VANSKILA SKIPU- LEGGJA K U L D U G U R FLOKKA EK R F A VERKFÆRI N A F A R RÞVAÐUR Ö F NÆÐATUNGUMÁL G U S T A K POTTURGOÐMÖGN L Í T R I ÁVÖXTUR Ð S GLAÐNING-UR RJÁLARJAFNINGUR F I K T A R VIÐ-BURÐUR A TVEIR EINSSKAMMA A A SPÁSSERAKYRTLA KTVEIR EINSSPIK L U G S I KAÐALLVARKÁRNI T Ó GUTTA S T R Á K UPPLESTURH N J Ó T A ÁHALD T Æ K I UMBÚÐIRVENJUR V A FÍHUGULLNEYTA D Ö S U Ð FUGL E RÍKI Í AFRÍKU GORT A L S Í R R UPPGEFIN EIMUR U F A SULLHINGAÐ G U M S VOTTAREYNDUR V I T N AG R NÝLEGA MAKKIVAGG H Á R SÖGULJÓÐ K V I Ð A GÍPA M L Á R É T T SAGGIGÆLUNAFN R A K I TVEIR EINS HJARTAR- DÝR S S LIGGJANDI SVEIPUR I Ð U R ÞJÁLFUN Ö G U N SPAÐINÓTA R E K AL M A A N G G N A VIÐ- KVÆMUR N N D Æ I M KRÆKLA U R R E LÆGÐ N L G Á L G A AFL SIGINN H H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET 132 STÓRHÝSI URMULL BOÐ- FLENNA MÆNIR SMYRSL FUGL FORKUR GLITRA STRUNS GERSAM-LEGUR RÆÐU JURT HORN- SKÓR TILNEFNA INNIHALDS- LAUS SKEL RYTJA RÓGUR KRYDD FLÍK TVEIR EINS ÓVISS FJASALEGGJA Í RÖÐ EIN- GÖNGU MÝKJA BAND VARKÁRNI STÓR- VIRKI PLANTA SKORDÝR FÁLM ÞRÁBIÐJA ÁBÓT TÓNBIL TÁLKN- BLÖÐ ÞÍÐA SKADDAÐ FLOTHOLT ÝFA FROSK- PADDA RANNSAKA ÓRÁÐINN ÁÆTLUN UPPRIFIN RÓRILL BRENNI- VÍDD STAGL DÁLÍTIÐ FEYSKJA Í RÖÐ SÓDI ÓX SKJÓÐA FISKUR HEMUR TVEIR EINS NUDDAST DÚTL TÍÐUM SETT SIGINN M Y N D : A D A M J O N ES ( CC B Y -S A 2 .0 ) H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET 133 Ég fer í fríið ... Varadekk sem eru fest undir bíla eru gjarnan ryðguð þar föst og getur verið mikið bras að ná undan. Svona redding er bara snilldin ein. Þetta traktorsdekk var fyllt með mosa og grasi til að komast í þjónustu. Meistaralegt hugvit að koma sér til byggða á fjórhjóli. EININGAHUS.IS GSM 698 0330 EMERALD@EMERALD.IS  INNFLUTT HÁGÆÐA EININGAHÚS  HÖNNUN, FRAMLEIÐSLA OG UPPSETNING  FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR  AFHENT Á BYGGINGARSTAÐ  HAGSTÆTT VERÐ EINBÝLISHÚS - PARHÚS - RAÐHÚS EININGAHÚS 480 0400 // jotunn.is // jotunn@jotunn.is Drifsköft, drifskaftshlífar og drifskaftshlutir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.