Bændablaðið - 02.07.2020, Blaðsíða 25

Bændablaðið - 02.07.2020, Blaðsíða 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 2020 25 Efnagreining ehf. flytur á næstu dögum á Akranes Við munum nota júlímánuð til að koma okkur fyrir. ■ Efnagreining ehf, Lækjarflóa 10a, 300 Akranes ■ efnagreining@efnagreining.is ■ sími 661 2629 Við þökkum ykkur, kæru viðskiptavinir, fyrir gott samstarf á liðnum árum og hlökkum til að þjónusta ykkur á nýjum stað. Við byrjum að greina heysýni og önnur sýni að Lækjarflóa 10a á Akranesi í síðasta lagi 15. ágúst. Nánari upplýsingar á efnagreining.is Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 DRIFSKÖFT OG DRIFSKAFTAEFNI GRAFA SMÁ? SMÁGRÖFUR TIL LEIGU Í GRÍMSNESI OG NÁGRENNI ÍSLAND ER LAND ÞITT Garðstaðir er í Ögurvíkinni við Ísafjarðardjúp og næsti bær við Ögur. Þar hefur um árabil verið safnað upp bílhræjum úti á túni sem blasa við öllum vegfarendum. Hafa margir ferðamenn stoppað þarna til að taka myndir af herlegheitunum. Hefur þessi sjón verið eigendum Ögurs og ferðamönnum sem þangað koma mikill þyrnir í augum, en í aðalskipulagi Súðavíkurhrepps var samþykkt í byrjun júní að breyta bújörðinni Garðstöðum að hluta í iðnaðar - svæði. Þar mun samkvæmt heimildum blaðsins vera talað um 3,4 hektara eða 34 þúsund fermetra. Mynd / Hafliði Halldórsson Deilt um bílhræ á bújörð sem nú hefur verið breytt í iðnaðarsvæði Ögurhreppur, eða Ögursveit, var hreppur sunnan Ísafjarðardjúps í Norður-Ísafjarðarsýslu, kenndur við bæinn og kirkjustað inn Ögur. Hinn 1. janúar 1995 sameinaðist Ögurhreppur Reykjar fjarðar- hreppi og Súðavíkurhreppi undir merkjum hins síðastnefnda. Tveir bæir hafa verið í Ögur­ víkinni, þ.e. Ögur og Garðstaðir, sem var upphaflega hjáleiga út úr Ögurlandi. Engin eignatengsl eru í dag með þessum tveim jörðum, en skipulagslögsaga yfir öllu svæð­ inu er nú í höndum sveitarstjórnar Súðavíkurhrepps. Í Ögri hefur verið stunduð ferða þjónusta undanfarin ár, en allir sem þangað koma og aka þar um þjóðveginn komast ekki hjá að sjá að töluverð umsvif blasa við á Garðstöðum. Fyrir ókunn­ uga mætti í fyrstu ætla að þarna færi fram stóriðja af einhverjum toga, en þegar betur er að gáð þekja ónýt bílhræ stóran hluta af túninu á Garðstöðum. Til ábúenda á Garðstöðum hafa margir bílaáhugamenn getað leit­ að eftir varahlutum í gamla bíla í gegnum árin, en ábúendur í Ögri eru ekki eins hrifnir. Þeir segja bæði stafa af þessu sjónmengun og telja óhjákvæmilegt annað en að talsverð grunnvatnsmengun sé af þessum bílhræjum. Hafa þeir átt í samskiptum við skipulagsyfirvöld í Súðavík árum saman og vilja að eigendum verði skipað að fjarlægja þessi bílhræ. Bújörð breytt í iðnaðarsvæði á aðalskipulagi Nýjustu tíðindin af bújörðinni Garð­ stöðum eru þau að þar hefur ekki verið stundaður búskapur um ára­ tuga skeið. Sóttu eigendur því um að tilgangi jarðarinnar yrði breytt í aðalskipulagi og jörðin skilgreind að hluta sem iðnaðarsvæði. Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri Súðavíkur­ hrepps, staðfesti í samtali við Bænda­ blaðið að nú í byrjun júní hafi nýtt aðalskipulag verið samþykkt í sveit­ arstjórn þar sem heimild er gefin fyrir iðnaðarsvæði á Garðstöðum (3,4 hektarar eða 34.000 fermetrar, innsk. blm.). Iðnaðar rekstur á því svæði væri þó háður starfsleyfum tilheyrandi stofnana. Bragi sagði jafnframt að hann skildi vel áhyggjur ferða þjónustu­ aðila í Ögri og að hann hefði ákveðna samúð með þeirra sjón­ armiðum. Þótt mönnum þyki ásjón Garðstaða og fleiri sveitabæja víða um land ekki boðleg fyrir ferðamenn, þá sé ekki einfalt fyrir sveitarfélögin að grípa þar inn í. Garðstaðir séu eignarland og réttur eigenda því mjög sterkur og spurn­ ing hver eigi að greiða fyrir hreinsun á svæðinu verði þess krafist. Þá benti Bragi á að bílhræ hafi safnast þarna upp á nokkrum áratugum og útilokað væri að þau hafi öll komið frá íbúum Súðavíkurhrepps. Stærsti hluti þeirra væri trúlega ættaður frá öðrum sveitarfélögum á norðan­ verðum Vestfjörðum. Því gæti þetta líka verið spurning um sameiginlega ábyrgð þeirra á málinu. Varðandi mögulega mengun af viðkomandi bílhræjum sagði hann að þær athuganir sem gerðar hafi verið hafi ekki leitt í ljós meng­ un á svæðinu. Annars heyrðu þau mál frekar undir heilbrigðisnefnd Vestfjarða og umhverfisráðuneyti. Meint sorpbrennsla harðlega gagnrýnd Auk söfnunar á bílhræjum á Garð­ staða túnið, þá hafa eigendur Ögurs gagnrýnt meinta ólöglega brennslu á sorpi á Garðstöðum í stórum ofni sem þar er á bæjarhlaðinu. Benda þeir m.a. á myndir máli sínu til stuðnings þar sem flutningabíll, sem merktur er stærsta sjávarút­ vegsfyrirtæki Vestfjarða, hefur ít­ rekað sést koma með ruslafarma að bænum. Segjast þeir hafa orðið vitni að brennslu í ofninum. Þá hafi sami flutningabíll flutt þangað vöru­ bretti sem komið er fyrir á brennu­ stæði fast við þjóðveginn utar í Ögurvíkinni. Telja eigendur Ögurs að hvort tveggja sé ólöglegt. Sveitarstjóri Súðavíkurhrepps segist ekki hafa nein staðfest gögn frá heilbrigðisyfirvöldum í höndum um þessa meintu sorpbrennslu. „Það var mjög lagt að okkur að hafa eftirlit með þrettándabrennu sem þarna hefur farið fram árlega. Ég mætti þar á staðinn með heilbrigð­ iseftirlitsmanni fyrir forvitnissakir. Við tókum út brennuna, en það var ekkert ólöglegt að sjá í henni. Þetta var bara stór bálköstur af timbri.“ Hann segir því ljóst að tekið hafi verið á kvörtunum þó ógerningur væri fyrir svo lítið sveitarfélag að hafa stöðugt eftirlit þarna í gangi 365 daga á ári. Fyrst og fremst sjónmengun „Ef ávæningur er um að þarna sé einhver ólögleg starfsemi í gangi þá er það hlutverk heilbrigðis­ eftirlits og lögreglu að taka á því. Eigendur Ögurs hafa beint til okkar kvörtunum og ég hef átt með þeim fundi og ýmis samtöl. Það eru allt kvartanir sem hafa ekki verið stað­ festar af eftirlitsaðilum. Þar með talin meint brennsla á rusli. Ég hef ekki staðfesta vitneskju um nein brot af þeim toga og get því lítið aðhafst í málinu. Ég er þó alls ekki að mæla því bót hvernig staðan er þarna. Þetta er þó fyrst og fremst sjónmengun en ekki staðfest mengun í jarðvegi eða öðru sem ýjað hefur verið að,“ segir Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps. Heilbrigðiseftirlitið mun gera úttekt vgena starfsleyfis Anton Helgason, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða, segist reikna með að eigendur Garðstaða sæki um starfsleyfi á jörðinni í kjölfar breytinga á aðalskipulagi. „Þeir sóttu um starfsleyfi fyrir bílapartasölu 2004, en var hafn­ að af skipulagsástæðum. Nú hefur skipulagi verið breytt og væntanlega færi slík umsókn nú í hefðbundinn farveg. Við höfum farið þarna að skoða nokkuð oft. Öll olía hefur verið tæmd af þessum bílum og rafgeym­ ar teknir úr svo það er engin bráð mengunarhætta af þessu, en þetta er vissulega ljótt ásýndar,” segir Anton. Varðandi sorpbrennslu á svæðinu segist hann ekki hafa neina stað­ festingu um slíkt. /HKr. Eigendur Ögurs segjast hafa verið vitni að því að sorp úr þessum flutningabíl, sem merktur er stærsta útgerðarfélagi á Vestfjörðum, hafi verið brennt í ofni sem þarna sést á hlaðinu, lengst til vinstri á myndinni. Mynd / HH Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar & sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði 40 ár á Íslandi Sláttutraktorar Bænda 16. júlí
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.