Bændablaðið - 02.07.2020, Blaðsíða 21

Bændablaðið - 02.07.2020, Blaðsíða 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 2020 21 Hrun í fjárfestingum í orku- geira heimsins í kjölfar COVID- 19 hefur fengið sérfræðinga hjá Alþjóðaorkustofnuninni (International Energy Agency - IEA) í París til að hugsa upp allar mögulegar leiðir til að koma fjár- festingum í gang að nýju. Nú er það þriggja billjóna dollara áætlun um að draga úr losun gróðurhúsa- lofttegunda. Þann 18. júní var kynntur þriggja ára vegvísir um hreina orku og mark­ vissar fjárfestingar sem ætlað er að skapa árlega 9 milljónir starfa sem eiga síðan að leiða til 1,1% hagvaxtar á ári. Sérfræðingar IEA fullyrða að þetta muni leiða til þess að draga muni úr losun gróðurhúsalofttegunda um 4,5 milljarða tonna fyrir árið 2023. Þvert á fyrirliggjandi fjárfestingaráætlanir Þetta útspil IEA vekur ekki síst athygli vegna þess að helstu fjár­ festingar sem nú eru í gangi í orku­ málum heimsins snúast ekki síst um að byggja ný kolaorkuver svo hund­ ruðum skiptir. Nú segir stofnunin að ný markmið Evrópusambandsins, sem nefnd hafa verið European Green Deal, muni verða sá mótor sem drífa muni upp efnahagskerfi ESB. Hvort þessi nýju plön muni duga til að draga fjárfesta að orku­ málaborði heimsins á nýjan leik skal ósagt látið. Það er þó öllum ljóst sem að þessum málum koma að gríðar­ legir peningahagsmunir liggja nú þegar í kolaorku Áður óþekktar áskoranir í efnahagsmálum heimsins Fjallað var um málið í viðskipta­ ritinu Forbes. Þar kemur fram að sérfræðingar Alþjóða gjaldeyris­ sjóðsins (International Monetary Fund ­ IMF) telji líklegt að þessi áætlun muni vekja athygli þeirra sem marka stefnuna sem horfi fram á áður óþekktar áskoranir í efnahagsmálum heimsins. Fyrr í mánuðinum kom fram á stefnumörkunarráðstefnu OECD spá um að COVID­19 myndi valda mesta efnahagssamdrætti í heiminum sem nokkru sinni hafi sést á friðartím­ um. Heimsbyggðin horfði einnig á jafnvel stærri og banvænan vanda sem stafaði af mannavöldum, en það séu loftslagsbreytingar. Meðan samdráttur vegna COVID­19 ylli því að það dragi tímabundið úr losun gróðurhúsalofttegunda vegna lok­ unar verksmiðja og fyrirtækja, þá væri ljóst að mengunin færi fljótt aftur í fyrra horf um leið og losnaði úr höftum vegna kórónaveirunnar. Mesti samdráttur í losun gróður- húsalofttegunda í sögunni Aldrei áður hefur dregið eins mikið úr losun gróðurhúsalofttegunda og á árinu 2019 samkvæmt mati IEA. Þessi samdráttur sé þó ekkert til að fagna meðan hann stafar einungis af efnahagssamdrætti. Þetta ástand skapi hins vegar grunn til endur­ skipulagningar sem miði að því að draga úr losun. Hugsa þarf upp á nýtt uppbyggingu meginstoða samfélagsins Skýrsla IEA tekur til sex greina í hag­ kerfinu. Það er raforku fram leiðslan, samgöngur, byggingar starfsemi, iðnaður, eldsneyti og nýsköpun. Með því að taka þessar greinar og innleiða þær yfir 30 ágerðir telur IEA að hægt sé að auka hagvöxt að nýju samfara því að draga úr losun kolefnissam­ banda út í andrúmsloftið. Hluti af aðgerðunum mun fela í sér endur­ hönnun bygginga til að gera þær hagkvæmari. Hraða uppbyggingu raforkuframleiðslu með endurnýjan­ legum orku gjöfum eins og sólarorku og vindorkugarða. Efla innviði fyrir lestarsamgöngur og auka stuðning við eldsneytisframleiðslu sem komi í stað jarðefnaeldsneytis. Væntanlega er þar verið að tala um vetnisfram­ leiðslu sem framleiðslu á lífgasi, eða metangasi og öðru lífefnaeldsneyti. Sagt leiða til 5% samdráttar í loftmengun í heiminum Á meðal annars ávinnings telur IEA að þeirra áætlun muni leiða til 5% samdráttar í loftmengun á heimsvísu. Þá muni það veita 420 milljónum íbúa í þróunarlöndum aðgang að „hreineldunaraðferðum“ þ.e. með lífeldsneyti og rafmagni og veita 270 milljónum manna til viðbótar aðgengi að raforku. Fatih Birol, forstjóri IEA, segir að ríkisstjórnir ættu að grípa þetta tækifæri til að fjárfesta í sjálfbær­ um lausnum, eða hætta ella á hrun banka­ og efnahagskerfis samhliða umhverfishruni. „Um leið og þeir hanna efna­ hagsviðsnúning, verða þeir sem móta stefnuna að horfa á gríðarlegar afleiðingar sem þeirra ákvarðanir munu hafa á mjög stuttum tíma,“ sagði Birol. „Þær ákvarðanir sem teknar verða munu móta efnahagskerfin og orku­ innviði um ókomna áratugi. Einnig munu þær nær örugglega valda því hvort heimurinn verði í stakk búinn til að mæta markmiðum sínum í orku­ og loftslagsmálum.“ Þá sagði Birol að markmið IEA, sem kynnt voru 18. júní, séu afar mikilvæg í þeirri stöðu sem nú er uppi. Einstakt tækifæri til að endurstilla efnahagskerfin „Ríkisstjórnir hafa núna einstakt tækifæri til að endurstilla sín efna­ hagskerfi og skapa bylgju nýrra atvinnutækifæra og hraða um leið breytingum til sveigjanlegri og hreinni framtíðar í orkumálum. Stefnumótandi aðilar þurfa að taka gríðarlega afdrifaríkar ákvarð­ anir á mjög skömmum tíma um leið og þeir setja saman hvetjandi efnahagspakka. Sjálfbær bataáætlun okkar veitir þeim nákvæmar grein­ ingar og skýr ráð um hvernig takast má á við helstu áskoranir í efnahags­ málum, orku og loftslagsmálum á sama tíma,“ sagði Birol. Í samræmi við önnur samtök og stofnanir Þessar nýju áætlanir IEA eru í nánu samhengi við talsmenn í lofts­ lagsmálum og samtökum eins og Christiana Figueres. Þeir greindu frá því í síðasta mánuði að framkvæmd uppbyggingar í kjölfar áfallsins af völdum kórónavírussins skipti öllu máli varðandi það hvort hægt yrði að draga úr mengandi útblæstri eða ekki. Þessi nýja stefna IEA er í sam­ ræmi við áætlun Alþjóðastofnunar endurnýjanlegra orkulinda [International Renewable Energy Agency – IRENA] sem kynnti sína langtímaáætlun mitt í COVID­19 faraldrinum í apríl síðastliðnum, eða það sem kallað er „Longer­ term roadmap for reconfiguring the economy.“ Þá kynnti ráðgjafarfyrir­ tækið McKinsey sína stefnumörkun nú í júní um að ríkisstjórnir ættu að setja upp áætlanir um að styðja við sjálfbærar lausnir. Er það stutt rann­ sóknum Oxford­háskóla sem rann­ sakað hefur fjárfestingar í „grænum innviðum“ þar sem niðurstaðan er að slíkt muni styrkja efnahagsbata og leið og það hefði jákvæð áhrif á þjóðfélög um allan heim. /HKr. Víkurvagnar ehf. – Hyrjarhöfði 8. – 110 Reykjavík Sími 577-1090 – www.vikurvagnar.is – sala@vikurvagnar.is STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI MIKIÐ ÚRVAL KERRUVARAHLUTA VÍKURVAGNAR EHF. RAFMAGNSBÚNAÐUR BREMSUR BEISLI DEKK LJÓS LED LJÓS Alþjóðaorkustofnunin (IEA) leggur til að ríkisstjórnir hugsi efnahagsumbætur í kjölfar COVID-19 upp á nýtt: Setur fram þriggja billjóna dollara áætlun til að draga úr loftmengun Talað er um sérkennilegar þversagnir í uppbyggingu á orkuverum sem byggja á nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa. Hér er mynd af sólarorkuveri í byggingu í Þýskalandi. Dæmi eru um að skógar sem binda kolefni séu ruddir til að byggja risastór sólarorkuver til að draga úr losun kolefnis út í andrúmsloftið. Mynd / APVI Hér er 18,5 megavatta sólarorkuver sem byggt hefur verið á verðmætu ræktar landi þar sem áður var mengandi brúnkolanáma í Ungverjalandi. Mynd / IBC Solar Spár gera ráð fyrir að raforka fram- leidd með vind- og sólarorku í Penn- sylvaníu í Bandaríkjunum muni verða búin að yfirtaka raforkuframleiðslu með gasi árið 2035.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.