Bændablaðið - 02.07.2020, Blaðsíða 27

Bændablaðið - 02.07.2020, Blaðsíða 27
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 2020 27 ÍSLAND ER LAND ÞITT Súðavík við Álftafjörð: Merkilegt sjávarþorp með mikla sögu Þorpið Súðavík við Álftafjörð í Ísafjarðardjúpi hefur tekið mikl- um breytingum eftir snjóflóðið sem féll á þorpið snemma að morgni 16. janúar 1995. Flóðið féll á gömlu byggðina sem svo er nefnd, en eftir flóðið var ákveðið að reisa nýtt þorp utan snjóflóðahættusvæðis innan við Eyrardalsá. Í Súðavík er ýmislegt áhuga- vert að skoða. Þar er mjög merki- legt Melrakkasetur sem tileinkað er íslenska refnum og er opið alla daga frá maí til september a milli klukkan 10.00 og 14.00. Þá er þar að finna skemmtilegan og fallegan garð, Raggagarð, sem gleður bæði börn sem fullorðna. Allir velkomnir til Súðavíkur Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, sagði í samtali við Bændablaðið að sumarið núna verði öðruvísi en venjulega með tilliti til ferðamennsku. Útlendingarnir sem hafi verið áberandi undanfarin ár sjá- ist vart að þessu sinni. Hann vonast þó til að Íslendingar nýti tækifærið í staðinn til að skoða landið sitt og heimsæki Súðavík. Þar séu allir vel- komnir. „Það er ágætis hljóð í fólki hér þó staðan sé mjög breytt. Ég held að nú sé tækifæri fyrir marga til að endur- skipuleggja sig og endurskilgreina. Það hefur verið gengið að því sem gefnu að hér komi útlendingar í bíl- förmum, skipsförmum og flugvéla- förmum, en ljóst að þeir koma ekki. Ég held því að nú sé tækifærið til að fara í markaðssókn. Það hefur verið þannig hér að skipakomur á Ísafjörð hafa skilað til okkar fjölda erlendra ferðamanna. Við erum þó fá hér og því engin gríðarlega stór fyrirtæki í þessum geira,“ segir Bragi. Hann segir það trúlega rétt að ferðaþjónusta svona fjarri höfuð- borgarsvæðinu verði ekki fyrir eins miklum neikvæðum áhrifum vegna COVID-19 og fyrirtæki í mesta þétt- býlinu á suðvesturhorninu. Ástæðan sé einkum sú að vetrarþjónusta er ekki sérlega ríkur þáttur í þjónustu við ferðamenn á afskekktari stöð- um og skaðinn eftir lokun landsins undanfarna mánuði því óverulegur. „Að sama skapi vegur hver ferða- maður sem hingað kemur þungt fyrir svo fámennt byggðarlag.“ Raggagarður hefur mikið aðdráttarafl Raggagarður í Súðavík er með leiktækjum fyrir börn og full- orðna. Frumkvöðull að uppsetningu Raggagarðs er Vilborg Arnarsdóttir, eða Bogga eins og Súðvíkingar kalla hana. Hún var jafnframt fyrsti fram- kvæmdastjóri garðsins. Hana hafði lengi langað að búa til sumarleik- svæði til þess að auka fjölbreytni í afþreyingu fyrir fjölskyldur og ferða- menn á norðanverðum Vestfjörðum, efla útiveru og hreyfingu og stuðla að ánægjulegri samveru foreldra og barna. Bogga hófst handa við verkefnið eftir að sonur hennar, Ragnar Freyr Vestfjörð, lést í bílslysi í Súðavík árið 2001, aðeins 17 ára gamall. Garðurinn er til minningar um hann. Í garðinum er svið ásamt áhorf- endasvæði, ætlað fyrir fjölskyldu- samkomur og listaviðburði, er á úti- vistarsvæðinu. Nokkur útigrill eru á leikjasvæðinu til afnota fyrir gesti. Sæti og borð eru fyrir yfir 100 manns í öllum garðinum. Gestabók og sparibaukur eru við salernishúsið og eru gestir beðnir um að skrifa í bókina í hvert sinn sem garðurinn er heimsóttur. Enginn aðgangseyrir er í Raggagarð en frjáls framlög í baukinn eru vel þegin til að styrkja rekstur garðsins. Salerni, grill og önnur aðstaða í garðinum eru opin frá 1. júní til 1. september, en gestum er þó velkom- ið að heimsækja garðinn á öðrum tímum líka. „Garðurinn er byggður upp með huga, höndum og hjarta heimamanna og annarra velunnara“, eins og segir í kynningu um garðinn á vefsíðunni ferðalag.is. /HKr. Súðavík við Álftafjörð. Mynd / HKr. Smiðsbúð 10, 210 Garðabæ - s. 787 9933 vpallar@vpallar.is - www.vpallar is Pallar til leigu og s ölu - Mik ið úrval Höfum til á lager 1 14,8 m2 hús Verð kr. 3,8 milljónir m/vsk. S. 766-0505 hannes@kjarnabyggd.is Einnig bjóðum við forsteypta járnbenta dregara undir sumarhús og palla. Stærðir 26,5 x 50 cm - ýmsar lengdir. Verð kr. 15.000+vsk pr. metri. Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 ZETOR VARAHLUTIR Uppfyllir staðalinn EN 20471 og EN 343 Stærðir: S-3XL Efni: 190gr PU/pólýester Verð: kr. 7.900,- Verð: kr. 5.400,- KH Vinnuföt • Nethyl 2a • 110 Reykjavík • Sími: 577 1000 • info@khvinnufot.is • www.khvinnufot.is Regnjakki og smekkbuxur í sýnileika. Efnið er teygjanlegt sem auðveldar hreyngu. Jakkinn er með hettu, vösum og stillanlegri teygju í mitti. Regnsett
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.