Bændablaðið - 02.07.2020, Side 27
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 2020 27
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Súðavík við Álftafjörð:
Merkilegt sjávarþorp með mikla sögu
Þorpið Súðavík við Álftafjörð í
Ísafjarðardjúpi hefur tekið mikl-
um breytingum eftir snjóflóðið sem
féll á þorpið snemma að morgni 16.
janúar 1995. Flóðið féll á gömlu
byggðina sem svo er nefnd, en eftir
flóðið var ákveðið að reisa nýtt
þorp utan snjóflóðahættusvæðis
innan við Eyrardalsá.
Í Súðavík er ýmislegt áhuga-
vert að skoða. Þar er mjög merki-
legt Melrakkasetur sem tileinkað er
íslenska refnum og er opið alla daga
frá maí til september a milli klukkan
10.00 og 14.00. Þá er þar að finna
skemmtilegan og fallegan garð,
Raggagarð, sem gleður bæði börn
sem fullorðna.
Allir velkomnir til Súðavíkur
Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri
Súðavíkurhrepps, sagði í samtali við
Bændablaðið að sumarið núna verði
öðruvísi en venjulega með tilliti til
ferðamennsku. Útlendingarnir sem
hafi verið áberandi undanfarin ár sjá-
ist vart að þessu sinni. Hann vonast
þó til að Íslendingar nýti tækifærið
í staðinn til að skoða landið sitt og
heimsæki Súðavík. Þar séu allir vel-
komnir.
„Það er ágætis hljóð í fólki hér þó
staðan sé mjög breytt. Ég held að nú
sé tækifæri fyrir marga til að endur-
skipuleggja sig og endurskilgreina.
Það hefur verið gengið að því sem
gefnu að hér komi útlendingar í bíl-
förmum, skipsförmum og flugvéla-
förmum, en ljóst að þeir koma ekki.
Ég held því að nú sé tækifærið til að
fara í markaðssókn. Það hefur verið
þannig hér að skipakomur á Ísafjörð
hafa skilað til okkar fjölda erlendra
ferðamanna. Við erum þó fá hér og
því engin gríðarlega stór fyrirtæki í
þessum geira,“ segir Bragi.
Hann segir það trúlega rétt að
ferðaþjónusta svona fjarri höfuð-
borgarsvæðinu verði ekki fyrir eins
miklum neikvæðum áhrifum vegna
COVID-19 og fyrirtæki í mesta þétt-
býlinu á suðvesturhorninu. Ástæðan
sé einkum sú að vetrarþjónusta er
ekki sérlega ríkur þáttur í þjónustu
við ferðamenn á afskekktari stöð-
um og skaðinn eftir lokun landsins
undanfarna mánuði því óverulegur.
„Að sama skapi vegur hver ferða-
maður sem hingað kemur þungt fyrir
svo fámennt byggðarlag.“
Raggagarður hefur
mikið aðdráttarafl
Raggagarður í Súðavík er með
leiktækjum fyrir börn og full-
orðna. Frumkvöðull að uppsetningu
Raggagarðs er Vilborg Arnarsdóttir,
eða Bogga eins og Súðvíkingar kalla
hana. Hún var jafnframt fyrsti fram-
kvæmdastjóri garðsins. Hana hafði
lengi langað að búa til sumarleik-
svæði til þess að auka fjölbreytni í
afþreyingu fyrir fjölskyldur og ferða-
menn á norðanverðum Vestfjörðum,
efla útiveru og hreyfingu og stuðla
að ánægjulegri samveru foreldra og
barna.
Bogga hófst handa við verkefnið
eftir að sonur hennar, Ragnar Freyr
Vestfjörð, lést í bílslysi í Súðavík
árið 2001, aðeins 17 ára gamall.
Garðurinn er til minningar um hann.
Í garðinum er svið ásamt áhorf-
endasvæði, ætlað fyrir fjölskyldu-
samkomur og listaviðburði, er á úti-
vistarsvæðinu. Nokkur útigrill eru á
leikjasvæðinu til afnota fyrir gesti.
Sæti og borð eru fyrir yfir 100 manns
í öllum garðinum.
Gestabók og sparibaukur eru við
salernishúsið og eru gestir beðnir um
að skrifa í bókina í hvert sinn sem
garðurinn er heimsóttur. Enginn
aðgangseyrir er í Raggagarð en frjáls
framlög í baukinn eru vel þegin til að
styrkja rekstur garðsins.
Salerni, grill og önnur aðstaða í
garðinum eru opin frá 1. júní til 1.
september, en gestum er þó velkom-
ið að heimsækja garðinn á öðrum
tímum líka. „Garðurinn er byggður
upp með huga, höndum og hjarta
heimamanna og annarra velunnara“,
eins og segir í kynningu um garðinn
á vefsíðunni ferðalag.is.
/HKr.
Súðavík við Álftafjörð. Mynd / HKr.
Smiðsbúð 10, 210 Garðabæ - s. 787 9933
vpallar@vpallar.is - www.vpallar is
Pallar til
leigu og s
ölu - Mik
ið úrval
Höfum til á lager 1 14,8 m2 hús
Verð kr. 3,8 milljónir m/vsk.
S. 766-0505
hannes@kjarnabyggd.is
Einnig bjóðum við forsteypta járnbenta
dregara undir sumarhús og palla.
Stærðir 26,5 x 50 cm - ýmsar lengdir.
Verð kr. 15.000+vsk pr. metri.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
ZETOR
VARAHLUTIR
Uppfyllir staðalinn EN 20471 og EN 343
Stærðir: S-3XL
Efni: 190gr PU/pólýester Verð:
kr. 7.900,-
Verð:
kr. 5.400,-
KH Vinnuföt • Nethyl 2a • 110 Reykjavík • Sími: 577 1000 • info@khvinnufot.is • www.khvinnufot.is
Regnjakki og smekkbuxur í sýnileika.
Efnið er teygjanlegt sem auðveldar
hreyngu. Jakkinn er með hettu,
vösum og stillanlegri teygju í mitti.
Regnsett