Bændablaðið - 02.07.2020, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 02.07.2020, Blaðsíða 1
13. tölublað 2020 ▯ Fimmtudagur 2. júlí ▯ Blað nr. 566 ▯ 26. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is Verið að bregðast við og mæta aukinni eftirspurn og minnkandi hlutdeild á framleiðslu íslenskra garðyrkjubænda: Íslenskar garðyrkjustöðvar stækka um nær 18 þúsund fermetra – Áform um 15 þúsund fermetra til viðbótar eru þegar á teikniborðinu Mikill kraftur er kominn í upp­ byggingu hjá íslenskum garð­ yrkju bændum til að mæta auk­ inni eftirspurn. Undanfarin ár hefur hlutdeild þeirra minnkað töluvert, en verið er að auka veru­ lega við framleiðslugetu. Þar er ýmist búið að stækka eða verið að stækka ræktunaraðstöðu hjá fjölda garðyrkjustöðva sem nemur nærri 18 þúsund fermetr­ um. Nýr garðyrkjusamningur milli stjórnvalda og bænda sem skrifað var undir um miðjan maí virðist hafa ýtt undir þessi áform, en meginmarkmið nýja samningsins er að snúa við minnkaðri hlut­ deild íslenskrar framleiðslu á innanlandsmarkaði. Samdráttur hefur verið í markaðshlutdeild íslenskrar framleiðslu undanfarin ár, þrátt fyrir mikinn áhuga neytenda. Þannig minnkaði markaðshlutdeild innlendrar framleiðslu helstu garðyrkjuafurða á innanlands­ markaði úr 75% árið 2010 í 52% árið 2018. Mismunurinn hefur verið fluttur inn. Lambhagi öflugastur Meðal þeirra stöðva sem nú eru að auka framleiðslu og stækka sína að­ stöðu er Gróðrarstöðin Lambhagi, sem er langstærsta gróðrarstöð landsins. Hafberg Þórisson hefur verið þar í stöðugri uppbyggingu og er kominn með um 15.000 fermetra stöð í Úlfarsárdal. Hann er nú búinn að reisa 7.000 af 22.000 fermetra gróðrarstöð í Mosfellsdal. Hafberg segist vera búinn að sá í hluta nýja gróðurhússins og að hann eigi von á fyrstu uppskerunni eftir þrjár vikur. Í Gufuhlíð í Reykholti, þar sem Helgi Jakobsson og Hildur Ósk Sigurðardóttir hafa verið með 3.800 fermetra undir í vistvænni gúrku­ rækt, eru að auka sína framleiðslu­ getu. Þau hafa verið að framleiða um 600 tonn á ári, en eru nú að stækka stöðina um 2.160 fermetra. Garðyrkjustöðin Friðheimar er orðin afar vinsæl meðal ferða­ manna, sem gefst kostur á að snæða þar tómatsúpu um leið og fræðst er um tómataræktina. Knútur Rafn Ármann og Helena Hermundardóttur reka stöðina og eru að byggja nýtt 5.700 fermetra hús til að auka sína tómataræktun. Í Espiflöt í Reykholti er mjög öflug blómarækt. Axel Sæland og Heiða Pálrún Leifsdóttir reka nú stöðina sem áður var í meirihlutaeigu foreldra Axels, Sveins A. Sæland og Áslaugar Sveinbjörnsdóttur. Þar er verið að byggja um 1.150 fermetra skála. Gísli Jóhannsson í Dalsgarði í Mosfellsdal er frægur fyrir sína rósa­ rækt. Hann hyggst auka við fram­ leiðsluna og stækka stöðina um 400 fermetra. Þórhallur Bjarnason, garðyrkju­ bóndi í Laugalandi við Varmaland í Borgarfirði, og kona hans, Erla Gunnlaugsdóttir, eru að stækka gróðurhúsin hjá sér um 1.230 fer­ metra. „Við erum að byrja á sökklun­ um og gerum ráð fyrir að húsið, sem er ætlað fyrir agúrkur, verði komið í notkun um næstu áramót og að við komum til með að auka framleiðsluna hjá okkur um 200 tonn á ári í framhaldinu,“ segir Þórhallur. Samkvæmt heimild­ um blaðsins er mikill áhugi fyrir ýmiss konar nýsköpun í greininni og einhverjir með áform í þá veru í deiglunni. Aukin framlög til garðyrkju Í samningi ríkisins við bændur eru gerðar grundvallarbreytingar á starfsumhverfi íslenskrar garðyrkju og með því skapaðar forsendur fyrir því að hægt verði að auka framleiðslu á íslensku grænmeti um 25% á næstu þremur árum og auka þannig markaðshlutdeild innlendrar framleiðslu. Til þess að ná þessu markmiði er árlegt fjárframlag stjórnvalda til samningsins hækkað um 200 milljónir króna á ári, úr um 660 milljónum í um 860 milljónir. Tekur sú breyting gildi strax á þessu ári. Í samkomulaginu var gerð sú breyting að fyrirkomulagi á niður­ greiðslum á raforku er breytt með þeim hætti að ylræktendum, þ.e. þeim sem rækta í gróðurhúsum eða öðru lokuðu rými, verða tryggðar beingreiðslur vegna lýsingar í stað niðurgreiðslu kostnaðar. Þetta er gert til þess að stuðla að hagfelldari starfsskilyrðum greinarinnar. Jafnframt er bætt við þennan lið samningsins alls 70 milljónum króna til að stuðla að lægra raforkuverði til íslenskrar garðyrkju. /HKr./VH Sleipnisbikarinn, heiðursverðlaun íslenskrar hrossaræktar, var afhentur eigendum stóðhestsins Skýrs frá Skálakoti á landssýningu kynbótahrossa sem haldin var laugardaginn 27. júní síðastliðinn á Gaddstaðaflötum við Hellu. Eigendurnir, þeir Jakob Svavar Sigurðsson og Guðmundur Viðarsson, voru sannarlega ánægðir enda virtustu og elstu verðlaun sem veitt eru í hrossaræktinni hér á landi. – Sjá nánar á bls. 10. Mynd / Tjörvi Bjarnason 26 Bjartsýni á ferðamennskuna í sumar og gott haust Skordýraborgarar og smáþörungar 14 Apríkósur í silfurskálum, svo eru vel valin orð 36–37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.