Bændablaðið - 02.07.2020, Qupperneq 1
13. tölublað 2020 ▯ Fimmtudagur 2. júlí ▯ Blað nr. 566 ▯ 26. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Verið að bregðast við og mæta aukinni eftirspurn og minnkandi hlutdeild á framleiðslu íslenskra garðyrkjubænda:
Íslenskar garðyrkjustöðvar stækka
um nær 18 þúsund fermetra
– Áform um 15 þúsund fermetra til viðbótar eru þegar á teikniborðinu
Mikill kraftur er kominn í upp
byggingu hjá íslenskum garð
yrkju bændum til að mæta auk
inni eftirspurn. Undanfarin ár
hefur hlutdeild þeirra minnkað
töluvert, en verið er að auka veru
lega við framleiðslugetu. Þar er
ýmist búið að stækka eða verið
að stækka ræktunaraðstöðu
hjá fjölda garðyrkjustöðva sem
nemur nærri 18 þúsund fermetr
um.
Nýr garðyrkjusamningur milli
stjórnvalda og bænda sem skrifað
var undir um miðjan maí virðist
hafa ýtt undir þessi áform, en
meginmarkmið nýja samningsins
er að snúa við minnkaðri hlut
deild íslenskrar framleiðslu á
innanlandsmarkaði. Samdráttur
hefur verið í markaðshlutdeild
íslenskrar framleiðslu undanfarin ár,
þrátt fyrir mikinn áhuga neytenda.
Þannig minnkaði markaðshlutdeild
innlendrar framleiðslu helstu
garðyrkjuafurða á innanlands
markaði úr 75% árið 2010 í 52%
árið 2018. Mismunurinn hefur verið
fluttur inn.
Lambhagi öflugastur
Meðal þeirra stöðva sem nú eru að
auka framleiðslu og stækka sína að
stöðu er Gróðrarstöðin Lambhagi,
sem er langstærsta gróðrarstöð
landsins. Hafberg Þórisson hefur
verið þar í stöðugri uppbyggingu og
er kominn með um 15.000 fermetra
stöð í Úlfarsárdal. Hann er nú búinn
að reisa 7.000 af 22.000 fermetra
gróðrarstöð í Mosfellsdal. Hafberg
segist vera búinn að sá í hluta nýja
gróðurhússins og að hann eigi von á
fyrstu uppskerunni eftir þrjár vikur.
Í Gufuhlíð í Reykholti, þar sem
Helgi Jakobsson og Hildur Ósk
Sigurðardóttir hafa verið með 3.800
fermetra undir í vistvænni gúrku
rækt, eru að auka sína framleiðslu
getu. Þau hafa verið að framleiða um
600 tonn á ári, en eru nú að stækka
stöðina um 2.160 fermetra.
Garðyrkjustöðin Friðheimar
er orðin afar vinsæl meðal ferða
manna, sem gefst kostur á að
snæða þar tómatsúpu um leið
og fræðst er um tómataræktina.
Knútur Rafn Ármann og Helena
Hermundardóttur reka stöðina og
eru að byggja nýtt 5.700 fermetra
hús til að auka sína tómataræktun.
Í Espiflöt í Reykholti er mjög
öflug blómarækt. Axel Sæland og
Heiða Pálrún Leifsdóttir reka nú
stöðina sem áður var í meirihlutaeigu
foreldra Axels, Sveins A. Sæland og
Áslaugar Sveinbjörnsdóttur. Þar er
verið að byggja um 1.150 fermetra
skála.
Gísli Jóhannsson í Dalsgarði í
Mosfellsdal er frægur fyrir sína rósa
rækt. Hann hyggst auka við fram
leiðsluna og stækka stöðina um 400
fermetra.
Þórhallur Bjarnason, garðyrkju
bóndi í Laugalandi við Varmaland
í Borgarfirði, og kona hans, Erla
Gunnlaugsdóttir, eru að stækka
gróðurhúsin hjá sér um 1.230 fer
metra.
„Við erum að byrja á sökklun
um og gerum ráð fyrir að húsið,
sem er ætlað fyrir agúrkur, verði
komið í notkun um næstu áramót
og að við komum til með að auka
framleiðsluna hjá okkur um 200
tonn á ári í framhaldinu,“ segir
Þórhallur. Samkvæmt heimild
um blaðsins er mikill áhugi fyrir
ýmiss konar nýsköpun í greininni
og einhverjir með áform í þá veru
í deiglunni.
Aukin framlög til garðyrkju
Í samningi ríkisins við bændur eru
gerðar grundvallarbreytingar á
starfsumhverfi íslenskrar garðyrkju
og með því skapaðar forsendur
fyrir því að hægt verði að auka
framleiðslu á íslensku grænmeti um
25% á næstu þremur árum og auka
þannig markaðshlutdeild innlendrar
framleiðslu. Til þess að ná þessu
markmiði er árlegt fjárframlag
stjórnvalda til samningsins hækkað
um 200 milljónir króna á ári, úr um
660 milljónum í um 860 milljónir.
Tekur sú breyting gildi strax á þessu
ári.
Í samkomulaginu var gerð sú
breyting að fyrirkomulagi á niður
greiðslum á raforku er breytt með
þeim hætti að ylræktendum, þ.e.
þeim sem rækta í gróðurhúsum eða
öðru lokuðu rými, verða tryggðar
beingreiðslur vegna lýsingar í stað
niðurgreiðslu kostnaðar. Þetta er
gert til þess að stuðla að hagfelldari
starfsskilyrðum greinarinnar.
Jafnframt er bætt við þennan lið
samningsins alls 70 milljónum króna
til að stuðla að lægra raforkuverði
til íslenskrar garðyrkju. /HKr./VH
Sleipnisbikarinn, heiðursverðlaun íslenskrar hrossaræktar, var afhentur eigendum stóðhestsins Skýrs frá Skálakoti á landssýningu kynbótahrossa sem haldin var laugardaginn 27. júní síðastliðinn
á Gaddstaðaflötum við Hellu. Eigendurnir, þeir Jakob Svavar Sigurðsson og Guðmundur Viðarsson, voru sannarlega ánægðir enda virtustu og elstu verðlaun sem veitt eru í hrossaræktinni hér
á landi. – Sjá nánar á bls. 10. Mynd / Tjörvi Bjarnason
26
Bjartsýni á ferðamennskuna
í sumar og gott haust
Skordýraborgarar
og smáþörungar
14
Apríkósur í silfurskálum,
svo eru vel valin orð
36–37