Bændablaðið - 02.07.2020, Page 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 2020 21
Hrun í fjárfestingum í orku-
geira heimsins í kjölfar COVID-
19 hefur fengið sérfræðinga
hjá Alþjóðaorkustofnuninni
(International Energy Agency -
IEA) í París til að hugsa upp allar
mögulegar leiðir til að koma fjár-
festingum í gang að nýju. Nú er
það þriggja billjóna dollara áætlun
um að draga úr losun gróðurhúsa-
lofttegunda.
Þann 18. júní var kynntur þriggja
ára vegvísir um hreina orku og mark
vissar fjárfestingar sem ætlað er að
skapa árlega 9 milljónir starfa sem
eiga síðan að leiða til 1,1% hagvaxtar
á ári. Sérfræðingar IEA fullyrða að
þetta muni leiða til þess að draga
muni úr losun gróðurhúsalofttegunda
um 4,5 milljarða tonna fyrir árið
2023.
Þvert á fyrirliggjandi
fjárfestingaráætlanir
Þetta útspil IEA vekur ekki síst
athygli vegna þess að helstu fjár
festingar sem nú eru í gangi í orku
málum heimsins snúast ekki síst um
að byggja ný kolaorkuver svo hund
ruðum skiptir. Nú segir stofnunin
að ný markmið Evrópusambandsins,
sem nefnd hafa verið European
Green Deal, muni verða sá mótor
sem drífa muni upp efnahagskerfi
ESB. Hvort þessi nýju plön muni
duga til að draga fjárfesta að orku
málaborði heimsins á nýjan leik skal
ósagt látið. Það er þó öllum ljóst sem
að þessum málum koma að gríðar
legir peningahagsmunir liggja nú
þegar í kolaorku
Áður óþekktar áskoranir í
efnahagsmálum heimsins
Fjallað var um málið í viðskipta
ritinu Forbes. Þar kemur fram að
sérfræðingar Alþjóða gjaldeyris
sjóðsins (International Monetary
Fund IMF) telji líklegt að þessi
áætlun muni vekja athygli þeirra sem
marka stefnuna sem horfi fram á áður
óþekktar áskoranir í efnahagsmálum
heimsins.
Fyrr í mánuðinum kom fram á
stefnumörkunarráðstefnu OECD spá
um að COVID19 myndi valda mesta
efnahagssamdrætti í heiminum sem
nokkru sinni hafi sést á friðartím
um. Heimsbyggðin horfði einnig á
jafnvel stærri og banvænan vanda
sem stafaði af mannavöldum, en
það séu loftslagsbreytingar. Meðan
samdráttur vegna COVID19 ylli því
að það dragi tímabundið úr losun
gróðurhúsalofttegunda vegna lok
unar verksmiðja og fyrirtækja, þá
væri ljóst að mengunin færi fljótt
aftur í fyrra horf um leið og losnaði
úr höftum vegna kórónaveirunnar.
Mesti samdráttur í losun gróður-
húsalofttegunda í sögunni
Aldrei áður hefur dregið eins mikið
úr losun gróðurhúsalofttegunda og
á árinu 2019 samkvæmt mati IEA.
Þessi samdráttur sé þó ekkert til að
fagna meðan hann stafar einungis
af efnahagssamdrætti. Þetta ástand
skapi hins vegar grunn til endur
skipulagningar sem miði að því að
draga úr losun.
Hugsa þarf upp á
nýtt uppbyggingu meginstoða
samfélagsins
Skýrsla IEA tekur til sex greina í hag
kerfinu. Það er raforku fram leiðslan,
samgöngur, byggingar starfsemi,
iðnaður, eldsneyti og nýsköpun. Með
því að taka þessar greinar og innleiða
þær yfir 30 ágerðir telur IEA að hægt
sé að auka hagvöxt að nýju samfara
því að draga úr losun kolefnissam
banda út í andrúmsloftið. Hluti af
aðgerðunum mun fela í sér endur
hönnun bygginga til að gera þær
hagkvæmari. Hraða uppbyggingu
raforkuframleiðslu með endurnýjan
legum orku gjöfum eins og sólarorku
og vindorkugarða. Efla innviði fyrir
lestarsamgöngur og auka stuðning
við eldsneytisframleiðslu sem komi
í stað jarðefnaeldsneytis. Væntanlega
er þar verið að tala um vetnisfram
leiðslu sem framleiðslu á lífgasi, eða
metangasi og öðru lífefnaeldsneyti.
Sagt leiða til 5% samdráttar
í loftmengun í heiminum
Á meðal annars ávinnings telur IEA
að þeirra áætlun muni leiða til 5%
samdráttar í loftmengun á heimsvísu.
Þá muni það veita 420 milljónum
íbúa í þróunarlöndum aðgang að
„hreineldunaraðferðum“ þ.e. með
lífeldsneyti og rafmagni og veita
270 milljónum manna til viðbótar
aðgengi að raforku.
Fatih Birol, forstjóri IEA, segir
að ríkisstjórnir ættu að grípa þetta
tækifæri til að fjárfesta í sjálfbær
um lausnum, eða hætta ella á hrun
banka og efnahagskerfis samhliða
umhverfishruni.
„Um leið og þeir hanna efna
hagsviðsnúning, verða þeir sem
móta stefnuna að horfa á gríðarlegar
afleiðingar sem þeirra ákvarðanir
munu hafa á mjög stuttum tíma,“
sagði Birol.
„Þær ákvarðanir sem teknar verða
munu móta efnahagskerfin og orku
innviði um ókomna áratugi. Einnig
munu þær nær örugglega valda því
hvort heimurinn verði í stakk búinn
til að mæta markmiðum sínum í
orku og loftslagsmálum.“
Þá sagði Birol að markmið IEA,
sem kynnt voru 18. júní, séu afar
mikilvæg í þeirri stöðu sem nú er
uppi.
Einstakt tækifæri til að
endurstilla efnahagskerfin
„Ríkisstjórnir hafa núna einstakt
tækifæri til að endurstilla sín efna
hagskerfi og skapa bylgju nýrra
atvinnutækifæra og hraða um leið
breytingum til sveigjanlegri og
hreinni framtíðar í orkumálum.
Stefnumótandi aðilar þurfa að
taka gríðarlega afdrifaríkar ákvarð
anir á mjög skömmum tíma um
leið og þeir setja saman hvetjandi
efnahagspakka. Sjálfbær bataáætlun
okkar veitir þeim nákvæmar grein
ingar og skýr ráð um hvernig takast
má á við helstu áskoranir í efnahags
málum, orku og loftslagsmálum á
sama tíma,“ sagði Birol.
Í samræmi við önnur
samtök og stofnanir
Þessar nýju áætlanir IEA eru í nánu
samhengi við talsmenn í lofts
lagsmálum og samtökum eins og
Christiana Figueres. Þeir greindu frá
því í síðasta mánuði að framkvæmd
uppbyggingar í kjölfar áfallsins af
völdum kórónavírussins skipti öllu
máli varðandi það hvort hægt yrði
að draga úr mengandi útblæstri eða
ekki.
Þessi nýja stefna IEA er í sam
ræmi við áætlun Alþjóðastofnunar
endurnýjanlegra orkulinda
[International Renewable Energy
Agency – IRENA] sem kynnti sína
langtímaáætlun mitt í COVID19
faraldrinum í apríl síðastliðnum,
eða það sem kallað er „Longer
term roadmap for reconfiguring the
economy.“ Þá kynnti ráðgjafarfyrir
tækið McKinsey sína stefnumörkun
nú í júní um að ríkisstjórnir ættu að
setja upp áætlanir um að styðja við
sjálfbærar lausnir. Er það stutt rann
sóknum Oxfordháskóla sem rann
sakað hefur fjárfestingar í „grænum
innviðum“ þar sem niðurstaðan er
að slíkt muni styrkja efnahagsbata
og leið og það hefði jákvæð áhrif á
þjóðfélög um allan heim. /HKr.
Víkurvagnar ehf. – Hyrjarhöfði 8. – 110 Reykjavík
Sími 577-1090 – www.vikurvagnar.is – sala@vikurvagnar.is
STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI
MIKIÐ ÚRVAL KERRUVARAHLUTA
VÍKURVAGNAR EHF.
RAFMAGNSBÚNAÐUR
BREMSUR
BEISLI
DEKK
LJÓS
LED LJÓS
Alþjóðaorkustofnunin (IEA) leggur til að ríkisstjórnir hugsi efnahagsumbætur í kjölfar COVID-19 upp á nýtt:
Setur fram þriggja billjóna dollara
áætlun til að draga úr loftmengun
Talað er um sérkennilegar þversagnir í uppbyggingu á orkuverum sem byggja á nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa.
Hér er mynd af sólarorkuveri í byggingu í Þýskalandi. Dæmi eru um að skógar sem binda kolefni séu ruddir til að
byggja risastór sólarorkuver til að draga úr losun kolefnis út í andrúmsloftið. Mynd / APVI
Hér er 18,5 megavatta sólarorkuver sem byggt hefur verið á verðmætu
ræktar landi þar sem áður var mengandi brúnkolanáma í Ungverjalandi.
Mynd / IBC Solar
Spár gera ráð fyrir að raforka fram-
leidd með vind- og sólarorku í Penn-
sylvaníu í Bandaríkjunum muni verða
búin að yfirtaka raforkuframleiðslu
með gasi árið 2035.