Bændablaðið - 02.07.2020, Síða 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 2020 25
Efnagreining ehf. flytur á
næstu dögum á Akranes
Við munum nota júlímánuð til að koma okkur fyrir.
■ Efnagreining ehf, Lækjarflóa 10a, 300 Akranes
■ efnagreining@efnagreining.is ■ sími 661 2629
Við þökkum ykkur, kæru viðskiptavinir,
fyrir gott samstarf á liðnum árum og hlökkum
til að þjónusta ykkur á nýjum stað.
Við byrjum að greina heysýni og önnur sýni að
Lækjarflóa 10a á Akranesi í síðasta lagi
15. ágúst.
Nánari upplýsingar á
efnagreining.is
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
DRIFSKÖFT
OG DRIFSKAFTAEFNI
GRAFA
SMÁ?
SMÁGRÖFUR TIL LEIGU
Í GRÍMSNESI OG NÁGRENNI
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Garðstaðir er í Ögurvíkinni við Ísafjarðardjúp og næsti bær við Ögur. Þar hefur um árabil verið safnað upp
bílhræjum úti á túni sem blasa við öllum vegfarendum. Hafa margir ferðamenn stoppað þarna til að taka myndir af
herlegheitunum. Hefur þessi sjón verið eigendum Ögurs og ferðamönnum sem þangað koma mikill þyrnir í augum,
en í aðalskipulagi Súðavíkurhrepps var samþykkt í byrjun júní að breyta bújörðinni Garðstöðum að hluta í iðnaðar -
svæði. Þar mun samkvæmt heimildum blaðsins vera talað um 3,4 hektara eða 34 þúsund fermetra. Mynd / Hafliði Halldórsson
Deilt um bílhræ á bújörð sem nú
hefur verið breytt í iðnaðarsvæði
Ögurhreppur, eða Ögursveit, var
hreppur sunnan Ísafjarðardjúps í
Norður-Ísafjarðarsýslu, kenndur
við bæinn og kirkjustað inn Ögur.
Hinn 1. janúar 1995 sameinaðist
Ögurhreppur Reykjar fjarðar-
hreppi og Súðavíkurhreppi undir
merkjum hins síðastnefnda.
Tveir bæir hafa verið í Ögur
víkinni, þ.e. Ögur og Garðstaðir,
sem var upphaflega hjáleiga út úr
Ögurlandi. Engin eignatengsl eru
í dag með þessum tveim jörðum,
en skipulagslögsaga yfir öllu svæð
inu er nú í höndum sveitarstjórnar
Súðavíkurhrepps.
Í Ögri hefur verið stunduð
ferða þjónusta undanfarin ár, en
allir sem þangað koma og aka þar
um þjóðveginn komast ekki hjá
að sjá að töluverð umsvif blasa
við á Garðstöðum. Fyrir ókunn
uga mætti í fyrstu ætla að þarna
færi fram stóriðja af einhverjum
toga, en þegar betur er að gáð þekja
ónýt bílhræ stóran hluta af túninu
á Garðstöðum.
Til ábúenda á Garðstöðum hafa
margir bílaáhugamenn getað leit
að eftir varahlutum í gamla bíla í
gegnum árin, en ábúendur í Ögri
eru ekki eins hrifnir. Þeir segja
bæði stafa af þessu sjónmengun og
telja óhjákvæmilegt annað en að
talsverð grunnvatnsmengun sé af
þessum bílhræjum. Hafa þeir átt í
samskiptum við skipulagsyfirvöld
í Súðavík árum saman og vilja að
eigendum verði skipað að fjarlægja
þessi bílhræ.
Bújörð breytt í iðnaðarsvæði
á aðalskipulagi
Nýjustu tíðindin af bújörðinni Garð
stöðum eru þau að þar hefur ekki
verið stundaður búskapur um ára
tuga skeið. Sóttu eigendur því um
að tilgangi jarðarinnar yrði breytt í
aðalskipulagi og jörðin skilgreind að
hluta sem iðnaðarsvæði. Bragi Þór
Thoroddsen, sveitarstjóri Súðavíkur
hrepps, staðfesti í samtali við Bænda
blaðið að nú í byrjun júní hafi nýtt
aðalskipulag verið samþykkt í sveit
arstjórn þar sem heimild er gefin
fyrir iðnaðarsvæði á Garðstöðum
(3,4 hektarar eða 34.000 fermetrar,
innsk. blm.). Iðnaðar rekstur á því
svæði væri þó háður starfsleyfum
tilheyrandi stofnana.
Bragi sagði jafnframt að hann
skildi vel áhyggjur ferða þjónustu
aðila í Ögri og að hann hefði
ákveðna samúð með þeirra sjón
armiðum. Þótt mönnum þyki ásjón
Garðstaða og fleiri sveitabæja
víða um land ekki boðleg fyrir
ferðamenn, þá sé ekki einfalt fyrir
sveitarfélögin að grípa þar inn í.
Garðstaðir séu eignarland og réttur
eigenda því mjög sterkur og spurn
ing hver eigi að greiða fyrir hreinsun
á svæðinu verði þess krafist. Þá
benti Bragi á að bílhræ hafi safnast
þarna upp á nokkrum áratugum og
útilokað væri að þau hafi öll komið
frá íbúum Súðavíkurhrepps. Stærsti
hluti þeirra væri trúlega ættaður frá
öðrum sveitarfélögum á norðan
verðum Vestfjörðum. Því gæti þetta
líka verið spurning um sameiginlega
ábyrgð þeirra á málinu.
Varðandi mögulega mengun af
viðkomandi bílhræjum sagði hann
að þær athuganir sem gerðar hafi
verið hafi ekki leitt í ljós meng
un á svæðinu. Annars heyrðu þau
mál frekar undir heilbrigðisnefnd
Vestfjarða og umhverfisráðuneyti.
Meint sorpbrennsla
harðlega gagnrýnd
Auk söfnunar á bílhræjum á Garð
staða túnið, þá hafa eigendur Ögurs
gagnrýnt meinta ólöglega brennslu
á sorpi á Garðstöðum í stórum ofni
sem þar er á bæjarhlaðinu. Benda
þeir m.a. á myndir máli sínu til
stuðnings þar sem flutningabíll,
sem merktur er stærsta sjávarút
vegsfyrirtæki Vestfjarða, hefur ít
rekað sést koma með ruslafarma
að bænum. Segjast þeir hafa orðið
vitni að brennslu í ofninum. Þá hafi
sami flutningabíll flutt þangað vöru
bretti sem komið er fyrir á brennu
stæði fast við þjóðveginn utar í
Ögurvíkinni. Telja eigendur Ögurs
að hvort tveggja sé ólöglegt.
Sveitarstjóri Súðavíkurhrepps
segist ekki hafa nein staðfest gögn
frá heilbrigðisyfirvöldum í höndum
um þessa meintu sorpbrennslu.
„Það var mjög lagt að okkur að
hafa eftirlit með þrettándabrennu
sem þarna hefur farið fram árlega.
Ég mætti þar á staðinn með heilbrigð
iseftirlitsmanni fyrir forvitnissakir.
Við tókum út brennuna, en það var
ekkert ólöglegt að sjá í henni. Þetta
var bara stór bálköstur af timbri.“
Hann segir því ljóst að tekið hafi
verið á kvörtunum þó ógerningur
væri fyrir svo lítið sveitarfélag að
hafa stöðugt eftirlit þarna í gangi 365
daga á ári.
Fyrst og fremst sjónmengun
„Ef ávæningur er um að þarna sé
einhver ólögleg starfsemi í gangi
þá er það hlutverk heilbrigðis
eftirlits og lögreglu að taka á því.
Eigendur Ögurs hafa beint til okkar
kvörtunum og ég hef átt með þeim
fundi og ýmis samtöl. Það eru allt
kvartanir sem hafa ekki verið stað
festar af eftirlitsaðilum. Þar með talin
meint brennsla á rusli. Ég hef ekki
staðfesta vitneskju um nein brot af
þeim toga og get því lítið aðhafst í
málinu. Ég er þó alls ekki að mæla
því bót hvernig staðan er þarna. Þetta
er þó fyrst og fremst sjónmengun en
ekki staðfest mengun í jarðvegi eða
öðru sem ýjað hefur verið að,“ segir
Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri
Súðavíkurhrepps.
Heilbrigðiseftirlitið mun gera
úttekt vgena starfsleyfis
Anton Helgason, framkvæmdastjóri
Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða, segist
reikna með að eigendur Garðstaða
sæki um starfsleyfi á jörðinni í kjölfar
breytinga á aðalskipulagi.
„Þeir sóttu um starfsleyfi fyrir
bílapartasölu 2004, en var hafn
að af skipulagsástæðum. Nú hefur
skipulagi verið breytt og væntanlega
færi slík umsókn nú í hefðbundinn
farveg.
Við höfum farið þarna að skoða
nokkuð oft. Öll olía hefur verið
tæmd af þessum bílum og rafgeym
ar teknir úr svo það er engin bráð
mengunarhætta af þessu, en þetta er
vissulega ljótt ásýndar,” segir Anton.
Varðandi sorpbrennslu á svæðinu
segist hann ekki hafa neina stað
festingu um slíkt. /HKr.
Eigendur Ögurs segjast hafa verið vitni að því að sorp úr þessum flutningabíl, sem merktur er stærsta útgerðarfélagi
á Vestfjörðum, hafi verið brennt í ofni sem þarna sést á hlaðinu, lengst til vinstri á myndinni. Mynd / HH
Vetrarsól er umboðsaðili
Sláttuvélar
& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
40 ár
á Íslandi
Sláttutraktorar
Bænda
16. júlí