Morgunblaðið - 24.01.2020, Síða 14

Morgunblaðið - 24.01.2020, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Luigi Di Ma-io, utanrík-isráðherra Ítalíu, kom mörg- um á óvart á mið- vikudaginn þegar hann tilkynnti að hann hygðist stíga til hliðar sem leiðtogi Fimm- stjörnuhreyfingarinnar. Ástæður afsagnarinnar er lík- lega að finna í minnkandi gengi hreyfingarinnar í skoð- anakönnunum, en hún situr nú í ríkisstjórn ásamt flokki jafnaðarmanna, Demókrata- flokknum. Að einhverju leyti virðist því sem afsögn Di Maios hafi verið hugsuð sem fyrir- byggjandi aðgerð, en kosið verður um helgina í Emilia- Romag-héraðinu til héraðs- stjóra. Héraðið hefur lengi verið hluti af „rauða beltinu“, en svo nefnast nokkur héruð á norðurhluta Ítalíu, sem hafa verið sterk vígi vinstriflokk- anna. Þrátt fyrir það benda flest- ar skoðanakannanir til þess að stjórnarflokkarnir tveir muni tapa þar fylgi og í tilfelli Fimmstjörnuhreyfingarinnar hreinlega bíða afhroð, á með- an hægriflokkurinn Banda- lagið vinnur mikið á. Hvort fylgisaukning Bandalagsins dugi til að þeirra maður verði héraðsstjóri er enn óvíst en ljóst er að þar á bæ vonast menn aðallega til þess að velgja stjórnarflokkunum vel undir uggum, í þeirri von að það hrikti í stjórnarsamstarf- inu. Það kann að virka ankanna- lega fyrir leiðtoga flokks að stíga til hliðar áður en niður- staða kosninga liggur fyrir, en í þessu tilfelli bæt- ist við að Di Maio hefur aldrei virst ná almennilegum tökum á eigin flokki, sem upp- haflega var stofn- aður sem hálfgert grínframboð utan um grínist- ann Beppe Grillo. Flokks- menn láta gjarnan sem flokk- urinn sé utan hins hefðbundna pólitíska litrófs, en líkt og gildir um flesta þannig flokka er kjarninn oftar en ekki fremur rauður að lit. Þingmenn Fimmstjörnu- hreyfingarinnar hafa ekki all- ir verið sáttir við stefnuna að undanförnu, en flokkurinn hóf kjörtímabilið árið 2018 á því að mynda ríkisstjórn með Bandalaginu, en skipti svo um hest í miðri á þegar erfið- leikar komu upp í stjórnar- samstarfinu. Sú ákvörðun hef- ur hins vegar orðið til þess að flokkurinn hefur misst 15 þingmenn af þeim rúmlega 300 sem hann hafði í báðum deildum þingsins. Þá hefur fylgi flokksins hrunið frá kosningunum 2018, sem aftur má rekja til óvissu kjósenda um það hvort Fimmstjörnu- hreyfingin sigli bara undir hentifána. Ekkert bendir til þess á þessari stundu að afsögn Di Maio hafi nokkur áhrif á rík- isstjórnarsamstarfið. Sjálfur hyggst hann sitja áfram sem utanríkisráðherra þó að hann gefi leiðtogahlutverkið eftir. Hitt er þó víst að það er ekki styrkleikamerki fyrir ríkis- stjórn Ítalíu, sem ekki var of burðug fyrir, að Di Maio hafi talið sig þurfa að axla ábyrgð með þessum hætti. Leiðtogi Fimm- stjörnuhreyfing- arinnar axlar ábyrgð með afsögn, en dug- ar það til?} „Rauða beltið“ í hættu Fregnir und-anfarinna daga hafa verið undirlagðar af lungnabólgu- faraldrinum sem hægt og bít- andi hefur verið að breiðast út um Kína og nágrannaríki þess, en sérstakan ótta hefur vakið að veikin kemur upp á svipuðum tíma og mikið ferða- tímabil gengur í hönd í Kína. Nær öll tilfellin sem komið hafa upp tengjast með einum eða öðrum hætti einni og sömu borginni í Kína, Wuhan, og hafa kínversk stjórnvöld nú gripið til þess ráðs að loka vegum að henni. En þrátt fyrir þær varúðarráðstafanir og aðrar virðist sem veirunnar verði vart í sífellt fleiri ríkj- um. Nú hafa fjórir verið færðir til einangrunar í Stóra-Bretlandi, grunaðir um að hafa smitast af veikinni á ferða- lagi um Wuhan fyrir skemmstu. Enn á þó eftir að staðfesta hvort um nýju kór- ónaveiruna sem veldur veik- inni er að ræða. Hitt er þó ljóst að ef svo er, þá er farald- urinn kominn upp að dyrum okkar. Átján manns eru nú sagðir hafa látist af völdum lungna- bólgunnar, en allir hinna látnu munu hafa verið veikburða fyrir. Þó að ýmislegt bendi til þess að veikin leggist ekki þungt á hina heilsuhraustu er engu að síður komin ástæða til þess að íhuga hvort þörf sé á að taka upp meiri varúðarráð- stafanir hér á landi. Er ástæða til að grípa til aðgerða?}Veikin færist nær Enn er verið að selja ofan af fjöl-skyldum, reka foreldra og börnút af heimilum sínum og krefjastáframhaldandi greiðslna. Svo-kölluð lyklafrumvörp hafa verið lögð fram á Alþingi a.m.k. fimm sinnum. Höf- undur hefur að tilstuðlan Hagsmunasamtaka heimilanna lagt fram nýtt lyklafrumvarp til varnar neytendum. Farin er að nokkru leyti ný leið við útfærslu með hliðsjón af nýlegri lagaþróun. Brýnt er að lögfesta úrræði sem tryggi eigendum fasteigna sem lenda í greiðsluvanda nýja lausn, til að fyrirbyggja að aldrei aftur verði gerð önnur eins aðför að fjöl- skyldum og átt hefur sér stað frá hruni. Nýtt lyklafrumvarp Baksvið lyklafrumvarpsins er öllum ljóst. Tíu árum frá hruni liggur fyrir að tíu þúsund fjölskyldur voru reknar út á götu. Foreldrar með börn hrakin af heim- ilum sínum tugþúsundum saman, rétt eins og hér hefði átt sér stað styrjöld eða stórfelldar náttúruhamfarir. Þrjú þúsund manns hafa verið gerð gjaldþrota frá hruni. Fólk mátti þola miskunnarlausar aðfarir í innheimtu. Þrátt fyr- ir þetta hafa engar varnir verið reistar í þágu heimilanna. Með frumvarpinu er gerð tillaga um að eftirstandandi veðskuldir falli niður í kjölfar nauðungarsölu á fasteign lántakanda. Gert er ráð fyrir að öll önnur úrræði séu full- reynd og fyrir liggi að lántaki hafi ekki getu til að standa undir lánum sem á húsnæði hans hvíla. Markmið frumvarpsins er að stuðla að vandaðri lána- starfsemi með því að færa skuldurum að fast- eignalánum þann kost að láta af hendi veðið að baki láni og ganga skuldlausir frá borði ef eng- in önnur úrræði finnast. Frumvarpið er þannig liður í því að dreifa áhættu í fasteignalánum. Hér á landi tíðkast helst að öll áhætta sé ein- hliða á herðum lántaka, veikari aðilans í samn- ingnum. Allir skertir sem til næst Félagsmálaráðherra hefur svarað skriflegri fyrirspurn frá mér um hinar illræmdu skerð- ingar sem aldraðir, öryrkjar og aðrir lífeyris- þegar mega þola. Svarið ber með sér að nánast allir sem til næst eru skertir og hafðar af þeim bætur. Talan er vel yfir 90%. Ríkissjóður nær- ist á þessum skerðingum og væri mun verr staddur ef hann ekki nyti aðstoðar aldraðra og öryrkja. Góð staða ríkissjóðs, glansmyndin, er í boði þessa fólks svo nemur tugum milljarða. Miðflokkurinn vill bæta hag lífeyrisþega og hverfa frá hinum hamslausu skerðingum sem þeir búa við. Lagði flokkurinn fram raunhæfar og fullfjármagnaðar tillögur í þessu efni við afgreiðslu fjárlaga. Þær hefði þess vegna mátt framkvæma þegar í stað. Flokkurinn leggur hins vegar ekki nafn sitt við ófjármagnaðar tillögur bornar fram af sýndarmennsku, leggst ekki gegn þeim en greiðir þeim ekki atkvæði. Ólafur Ísleifsson Pistill Varnir í þágu heimilanna Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Reykjavíkur- kjördæmi norður. olafurisl@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Athugasemdum og umsögn-um um drög að reglugerðum hrognkelsaveiðarrigndi inn í samráðsgátt stjórnvalda, en umsagnarfrestur rann út um miðjan mánuðinn. Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Lands- sambands smábátaeigenda, segir að málið sé í ferli í ráðuneytinu og segist gera sér vonir um að slakað verði á ákvæðum sem boðuð hafi verið í reglugerðardrögunum. Þar eru lagðar til talsverðar breytingar á grásleppuveiðum, m.a. til að sporna við meðafla. Helstu breytingarnar eru afnám svæða- skiptingar (að undanskildum Breiða- firði), lenging veiðitímabils, vitj- unartími styttur, fækkun neta, hert á kröfum um að bátar séu með afla- heimildir fyrir áætluðum meðafla, fellt út ákvæði um að skila veiði- skýrslu og lagt til að Fiskistofa geti sett eftirlitsmann um borð á kostnað útgerðar ef meðafli er óeðlilegur. Málið rætt við ráðuneytið Örn Pálsson segir að boðaðar takmarkanir hafi verið ræddar við sjávarútvegsráðherra og starfsmenn ráðuneytisins. Hann segist gera sér vonir um að tillit verði tekið til um- sagnar LS og sjónarmiða grásleppu- veiðimanna. Meðal annars hafi sam- bandið lagt áherslu á að ekki verði hróflað við fjölda neta. Einnig að sjó- menn taki upp net tímabundið til að koma í veg fyrir meðafla, en raun- verulegum veiðidögum myndi ekki fækka. Hann segir málið í ferli í ráðuneytinu. Örn segir að grásleppuveiði- mönnum sé mikið í mun að fá aftur MSC-vottun á grásleppuafurðir, en hún var tekin til baka, m.a. vegna meðafla við veiðarnar. Þá séu að- gerðir Bandaríkjastjórnar yfirvof- andi 1. janúar 2022 vegna ákvæðis um vernd sjávarspendýra við fisk- veiðar. Fram hefur komið að hér- lendis sé það einkum meðafli landsels í grásleppunet sem valdi áhyggjum. Örn segir að menn séu meðvitaðir um þetta ákvæði og afleiðingar þess ef bann verður sett á innflutning þorsks frá Íslandi til Bandaríkjanna. Meðal annars vinni LS að því í samráði við félagsmenn sem stunda grásleppuveiðar að leggja fram til- lögur til ráðuneytis varðandi tak- mörkun veiða á ákveðnum svæðum til þess að minnka líkur á sel sem með- afla. Um sé að ræða svæði sem þekkt séu fyrir meðafla, oft nálægt látrum. 55 umsagnir bárust Alls bárust 55 umsagnir um reglugerðardrögin og voru þær flest- ar þess efnis að of langt væri gengið í takmörkunum á veiðunum. Margir töldu að tímabært væri að hlutdeild- arsetja grásleppuveiðar. Bent er á í umsögnum að enginn geti haldið úti bát til veiða verði netum í sjó fækkað um helming. Fram að þessu hafi 2-3 menn verið á hverjum bát og öryggis- ins vegna ættu þeir aldrei að vera færri en tveir. Annar segir það ábyrgðarhluta að skapa kerfi sem bjóði heim slysahættu. Einn gagnrýnandi segist orðlaus yfir reglugerðardrögunum og annar spyr hvort ekki eigi að hætta að sparka í grásleppusjómenn. Í einni umsögn segir að augljóst sé að verði þessi reglugerð að veruleika verði mjög óhagstætt að stunda hrogn- kelsaveiðar og muni þær að mestu leggjast af. Annars staðar er spurt af hverju þurfi miklu meira eftirlit með grásleppuveiðum en öðrum veiðum. Þá skoðun er að finna í umsögnunum að heppilegast sé að hafa svæðis- skiptingar óbreyttar til að koma í veg fyrir öngþveiti þegar betur veiðist á einu svæði en öðrum. Veiðar á grásleppu eru undir smásjánni Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson Á Húsavík Grásleppa skorin, en atvinna fylgir veiðunum víða um land. „Ef þetta snýst um að veikja minnstu byggðarlögin þá eruð þið á réttri leið,“ segir Kári Borgar Ásgrímsson, sjómaður á Borgarfirði eystra, í umsögn sinni. Hann fjallar m.a. um með- afla og skrifar: „Svo að þessu með meðafla, þá hef ég litið á það sem hlunn- indi að fá stöku sel eða svart- fugl í netin og það er sannar- lega ekki eitthvað sem við hendum, þetta er veislumatur. Því miður hefur verið minni svartfuglsveiði hjá mér undan- farin ár, en selveiði er alltaf að aukast. Það hlýtur að teljast eðlilegt þegar markvissar sel- veiðar eru ekki lengur stund- aðar. Ég veit það allavega að það hefur ekki verið meira af landsel við NA-land síðustu 35 árin, og trúlega mikið lengur,“ skrifar Kári Borgar. Í annarri umsögn kemur fram að ekkert í reglugerðardrög- unum sé til þess fallið að minnka meðafla í netin. Stöku selur eða svartfugl HLUNNINDI VIÐ VEIÐARNAR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.