Morgunblaðið - 15.02.2020, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2020
Ég fer á fjöll
Ferðafélag Íslands • www.fi.is
Verndum
Elliðaárdalinn
Tryggjum íbúakosningu – Farið inn á
www.ellidaardalur.is
-Hollvinasamtök Elliðaárdalsins
Þór Steinarsson
thor@mbl.is
Lægðin sem gekk yfir landið í gær,
og olli því meðal annars að Veður-
stofa Íslands gaf út rauðar viðvar-
anir á höfuðborgarsvæðinu, Suður-
landi, Faxaflóa og á Suðausturlandi í
fyrsta skipti, var í samræmi við þær
spár sem höfðu verið gefnar út þótt
vindhraði hafi verið meiri í Vest-
mannaeyjum en búist var við.
Hugsanlegt er að vindhraðamet
hafi verið slegin í óveðrinu sem gekk
yfir landið en það á þó eftir að stað-
festa það segja veðurfræðingar í
samtali við Morgunblaðið.
„Það gæti alveg verið en ég get
ekki fullyrt það á þessari stundu,“
segir Þorsteinn Jónsson, veðurfræð-
ingur á Veðurstofu Íslands. Undir
það tekur Einar Sveinbjörnsson
veðurfræðingur. „Hvað vindhraða
varðar þá held ég að þetta hafi verið
í samræmi við spár þó að mögulega
hafi vindhraði mælst meiri sums
staðar eins og gengur. Vindhraðinn
á Hafnarfjalli sem mældist 71 m/s er
sennilega mesti vindur sem mælst
hefur á þeirri stöð. Það þarf þó að
kanna það nánar,“ segir Einar.
Ljóst er að vindhraðinn í Vest-
mannaeyjum var gífurlega mikill
þar sem veðrið var einna verst og
var hann meiri en spár höfðu gert
ráð fyrir. Viðbragðsaðilar þar sinntu
á fjórða tug útkalla og flest fyrirtæki
voru lokuð. Þá losnaði báturinn Blá-
tindur frá bryggju og sökk skömmu
síðar.
Þrátt fyrir að þessi stóra og víð-
áttumikla lægð sé nú yfirstaðin er
enn ástæða til að vera á varðbergi,
því von er á annarri lægð frá Evr-
ópu. Lægðin sem Bretar hafa gefið
nafnið Dennis er talin geta orðið
dýpsta lægð á þessari öld eða jafnvel
í sögunni.
Lægðin nálgast Ísland frá Evrópu
þar sem hún mun valda miklum
vandræðum, sérstaklega í N-
Evrópu. Gular eða appelsínugular
viðvaranir hafa verið gefnar út í
þrettán löndum að Íslandi meðtöldu.
Einar segir þó ekki tilefni til að
óttast áhrif lægðarinnar hér á landi
þar sem hún komi inn í lágan loft-
þrýsting. „Það sem er merkilegt er
að það eru allar líkur á því að veðrið
verði mun skaplegra, staðbundnara
og ekki jafn slæmt af þessari seinni
lægð þó hún sé mun dýpri. Það er
vegna þess að hún kemur inn í loft-
þrýsting sem er lágur fyrir,“ út-
skýrir Einar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Veðurofsi í Reykjavík Mikill öldugangur var við Reykjavíkurhöfn og skullu öldurnar með ógnarkrafti á innsiglingarvitann við Hörpuna. Rauð viðvörun var í gildi í fyrsta sinn í höfuðborginni.
Vindhraðamet mögulega slegið
Óveðrið var að mestu í samræmi við spár Vindhraði á Hafnarfjalli mældist 71 m/s Dýpsta
lægð sögunnar gæti verið á leiðinni Mun hvassara í Vestmannaeyjum en gert var ráð fyrir
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Djúp lægð Blátindur sökk í höfninni í Vestmannaeyjum vegna óveðursins.
Morgunblaðið/Eggert
Útkall Björgunarsveitarmenn að störfum við Öldugötu í Hafnarfirði, en við-
bragðsaðilar þurftu að sinna gríðarmiklum fjölda verkefna í gær.
Morgunblaðið/Eggert
Samgönguröskun Hellisheiðin var lokuð um tíma í gær, en loka þurfti mörgum vegum vegna færðar.
Ofsaveður um allt land