Morgunblaðið - 15.02.2020, Blaðsíða 48
Myndlistarkonan Gíslína Dögg
Bjarkadóttir opnar í dag, laugardag,
kl. 14 sýninguna „Segðu mér …“ í
Grafíksalnum, Tryggvagötu 17. Gísl-
ína sýnir bæði ný og eldri grafík-
verk sem öll tengjast í gegnum við-
fangsefni fortíðarinnar, það er
torfhleðslur gömlu torfbæjanna og
mynstur sem byggjast á mynstrum
Sigurðar Guðmundssonar málara.
Tengjast torfhleðslum
og gömlum mynstrum
LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 46. DAGUR ÁRSINS 2020
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.196 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Eftir fjörutíu daga er komið að loka-
slagnum um sæti í lokakeppni Evr-
ópumóts karla í fótbolta þegar
Rúmenar mæta á Laugardalsvöllinn
fimmtudagskvöldið 26. mars.
Hvernig verður ástandið á íslensku
landsliðsmönnunum? Hvernig er
þeirra undirbúningur fyrir þennan
mikilvæga leik? Morgunblaðið
skoðar stöðuna hjá þeim. »40
Hver er staðan þegar
40 dagar eru til leiks?
Anna Sóley Ásmundsdóttir söng-
kona kemur fram á tónleikum í
Björtuloftum Hörpu á sunnudags-
kvöld kl. 20 en þeir eru í tónleika-
röðinni Velkomin heim. Með henni
leika Mikael Máni Ásmundsson á
gítar, Birgir Steinn Theodorsson á
kontrabassa og Magnús Trygvason
Eliassen á trommur. Efnisskráin
verður byggð upp á nýlegum verk-
um eftir söngkonuna í bland við
lög eftir listamenn sem hafa verið
henni innblástur.
Anna Sóley er í
framhaldsnámi í
söng í Amst-
erdam jafn-
framt því að
sinna
lagasmíð-
um.
Anna Sóley flytur eigin
lög og annarra í Hörpu
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Dansskólinn Bíldshöfða tók til starfa
1. febrúar síðastliðinn í sérhönnuðu
húsnæði fyrir dansskóla á Bíldshöfða
10. Dansfélagið Bíldshöfði, sem er
keppnisfélag skólans, fylgdi áfang-
anum eftir með því að eiga sigurveg-
ara í þremur af fimm Íslandsmeist-
aratitlum í suðuramerískum
dönskum á Íslandsmeistaramóti DSÍ
um helgina.
Sverrir Þór Ragnarsson og Ágústa
Rut Andradóttir urðu Íslandsmeist-
arar í flokki unglinga 1 í meistara-
flokki 12-13 ára, Aldas Zgirskis og
Demi van den Berg unnu flokk ung-
linga 2 meistaraflokk 14-15 ára og
Ragnar Sverrisson og Anna Björk
Bergmann Jónsdóttir urðu Íslands-
meistarar í flokki eldri dansara 2
meistaraflokki 45-55 ára. Ragnar og
Sverrir Þór eru feðgar.
Ragnar hefur verið viðloðandi
dans í 37 ár, fyrst sem dansari og síð-
ar kennari, en hann og Anna Björk
dönsuðu saman á yngri árum og urðu
margfaldir Íslandsmeistarar. Þau
eiga og reka skólann, en fyrir um ári
ákváðu þau að dusta rykið af
keppnisskónum með fyrrnefndum
árangri. „Við erum ekki fjölmennasta
félagið og með það í huga er árang-
urinn í mótinu mjög góður,“ segir
hann.
Sigurður Hákonarson danskennari
kom Ragnari á bragðið. Hann ákvað
að byrja að dansa aftur, fyrst og
fremst til þess að halda sér í æfingu,
en þau Anna Björk hafi smollið sam-
an á gólfinu. „Þetta er í raun miklu
skemmtilegra en ég hafði búist við.“
Blackpool næst á dagskrá
Dansskólinn Bíldshöfða byggir á
grunni Dansskóla Reykjavíkur sem
Ragnar átti og rak í áratug. Hann
segir að Íslandsmeistaratitlarnir
skipti miklu máli og til dæmis hafi
Aldas Zgirskis og Demi van den
Berg unnið sér þátttökurétt á heims-
meistaramótinu með sigrinum. Ár-
angurinn sé líka hvetjandi fyrir alla
og fram undan sé fjölmennasta
barna- og unglingamótið, árlega mót-
ið í Blackpool í Englandi um
páskana. „Við förum með sex pör í
tveggja vikna ferð, fyrst æfingabúðir
í Lundúnum í viku og síðan er keppn-
in,“ segir hann. Í flokki 11 ára og
yngri keppa um 120 pör en um 200
pör í flokki 12-15 ára.
Íslenskir dansarar hafa oft náð
góðum árangri í alþjóðlegri keppni.
Ragnar bendir á að Sverrir og
Ágústa hafi verið í fjórða sæti í sínum
aldursflokki í mótinu í Blackpool fyr-
ir tæplega tveimur árum og í þriðja
sæti árið þar á undan. „Í gegnum tíð-
ina höfum við náð upp góðum pörum
sem hafa metnað og ástríðu fyrir
dansinum,“ segir hann og þakkar
ekki síst góðum og metnaðarfullum
danskennurum.
„Þegar ég leiðbeini krökkunum
hugsa ég oft til Sigurðar, sem smitaði
mig af þessari ástríðu.“
Meistarar Dansarar í Dansfélaginu Bíldshöfða. Frá vinstri: Ágústa Rut Andradóttir, Sverrir Þór Ragnarsson, Demi
van den Berg, Aldas Zgirskis, Anna Björk Bergmann Jónsdóttir og Ragnar Sverrisson.
Ástríðan erfist frá
kynslóð til kynslóðar
Feðgar Íslandsmeistarar í suðuramerískum dönsum