Morgunblaðið - 15.02.2020, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2020
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum
nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2019 Ford F-350 Lariat Sport
Litur: Magnetic/ Svartur að innan.
6,7L Diesel ,450 Hö, 925 ft of torque
Lariat með Sport pakka, Ultimate pakka , up-
phituð/loftkæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart
og trappa í hlera, Driver alert og distronic,
Bang Olufssen hljómkerfi, 360 myndavél.
VERÐ
11.390.000 m.vsk
2019 Ram Limited 3500 35”
Nýtt útlit 2019! Litur: Granite Crystal
Nýr 6,7L Cummins Turbo Diesel, 400 hö,
togar 1000 pund! Aisin sjálfskipting, upphi-
tanleg og loftkæld sæti,
hiti í stýri, sóllúga, nýr towing technology
pakki. 35” dekk.
VERÐ
11.395.000 m.vsk
2019 Ford F-150 Lariat Sport
Litur: Svartur, svartur að innan.
FX4 offroad-pakki, Sport-pakki,Bakkmyn-
davél, Bang & Olufsen hátalarakerfi, hiti í
öllum sætum, hiti í stýri, fjarstart, o. fl.
3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra, 375 hestöfl
470 lb-ft of torque
VERÐ
12.770.000 m.vsk
2019 Ford F-150 Lariat
Litur: Platinumhvítur, svartur að innan.
FX4 offroad-pakki, Bakkmyndavél, Bang &
Olufsen hátalarakerfi, hiti í öllum sætum,
hiti í stýri, fjarstart, o. fl. 3,5 L Ecoboost (V6),
10-gíra, 375 hestöfl
470 lb-ft of torque
VERÐ
12.770.000 m.vsk
Töfrar eldamennskunnar
byrja með Eirvík
Eldhúsið er ekki bara
herbergi, heldur upplifun
Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is.
Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15
til gamans og efna m.a. til þorra-
blóta hvar árið er gert upp á góðlát-
legan hátt með örlitlu grátóna ívafi.
Lesendur Húnahornsins (huni.is)
gerðu líka upp árið og þökkuðu fyrir
sig með því að velja björgunarsveit-
arfólk í Björgunarfélaginu Blöndu
sem menn ársins í Austur-
Húnavatnssýslu árið 2019.
Íslendingar eru stoltir af
löndum sínum sem gera það gott í
útlandinu eins og nýleg dæmi sanna.
Allmargir Blönduósingar eiga sér
eina hetju, grágæsina Jón sem nú
dvelur á Douglas-ánni (Svartá) í
Skotlandi.
Í haust var hér á þessum vett-
vangi greint frá fjórum grágæsum á
Blönduósi sem báru gervi-
hnattasendi. Þessir sendar gera
mönnum kleift að fylgjast með ferð-
um þeirra og er skemmst frá því að
segja að allar hafa þessar gæsir
nema gassinn Jón verið skotnar.
Tvær voru skotnar hér á landi en
Arnór gassi féll fyrir veiðimönnum í
Skotlandi og eru þær hér með úr
sögunni. Jón gassi yfirgaf landið 7.
nóvember í fyrra kl. 18 og var kom-
inn til Skotlands 30 klst. síðar.
Ekkert hefur hann sent af upplýs-
ingum síðan 19. nóvember en fugla-
vinir ytra hafa komið auga á hann
þrisvar og núna síðast þann 8. febr-
úar. Jón er á lífi og kemur vonandi
með hið eftirsótta vor á heimaslóðir í
byrjun apríl.
Þegar þessi skrif birtast á síð-
um Morgunblaðsins hefur óveður
gengið yfir landið og eru afleiðingar
þess óljósar en smiðir á Blönduósi
gerðu hvað þeir gátu til að fyrir-
byggja tjón á parhúsi sem verið er
að byggja við Sunnubraut.
Nú eru að hefjast á ný við-
ræður um mögulega sameiningu
fjögurra sveitarfélaga í Austur-
Húnavatnssýslu og Blönduósbær
stefnir að því að verða heilsueflandi
samfélag. Af þessu má sjá að allt
brosir lífið við oss hér um slóðir
þrátt fyrir misdjúpar lægðir sem
áreita okkur nánast annan hvern
dag.
Veðrið mikill áhrifavaldur
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Blönduós Parhús rís um þessar mundir við Sunnubraut. Verktakar gerðu
hvað þeir gátu til að fyrirbyggja tjón á húsinu í óveðrinu sem gekk yfir.
ÚR BÆJARLÍFINU
Jón Sigurðsson
Blönduósi
„Blönduós er helsta þjónustu-
miðstöð landbúnaðar og ferða-
mennsku á Norðurlandi vestra.
Staðsett á einu stórbrotnasta bæjar-
stæði landsins, umvafin fallegri nátt-
úru. Blönduós er kraftmikið vaxt-
arsvæði með öflugri uppbyggingu
iðnaðar, íbúðarhúsnæðis og þjón-
ustu við barnafjölskyldur. Staðsetn-
ing Blönduóss í einstakri náttúru
mitt á milli höfuðborgarinnar og Ak-
ureyrar býður upp á mikla mögu-
leika, jafnt í afþreyingu sem og
ferðamennsku og iðnaði. Fáir staðir
á Íslandi vaxa nú jafnt hratt og því
er framtíðin björt við Blönduós.“
Þetta bar fyrir augu lesenda
Morgunblaðsins á fimmtudaginn og
því gæti þessum pistli alveg eins lok-
ið hér og nú en vindar blása, þorra
er blótað og skepnur af öllu tagi eru
á ferli og því er haldið áfram.
Tíðarfarið sl. tvo mánuði hefur
verið mikill áhrifavaldur á leik og
starf allra sem búa við botn Húna-
fjarðar. Mikill snjór hefur verið í
bænum frá 10. desember og mikil
svell á götum og göngustígum bæj-
arins. Þetta hefur ásamt hressileg-
um vindi óþarflega oft gert mönnum
erfiðara fyrir með einfalda útivist.
Fella hefur þurft niður skólahald,
samgöngur hafa raskast, alvarleg
slys hafa orðið í umdæmi lögregl-
unnar á Blönduósi og mikið mætt á
björgunarsveitarfólki. Eigi er ör-
grannt um að þessi leiðinda tíð sé
farin að taka frá nokkurt rými í sál-
inni en þá sjaldan sem sólin sést og
vindurinn hefur hægt um sig hýrnar
yfir öllum og menn líta upp frá því að
telja dagana til vors í almanaki há-
skólans. En svona til þess að minna
okkur á fallvaltleika lífsins var opn-
um fundi um eftirmál óveðursins í
desember sem halda átti í Víðihlíð á
fimmtudagskvöld frestað vegna
slæmrar veðurspár.
En þótt válynd veður, jarð-
skjálftar og vinnudeilur raski sálar-
rónni finna menn sér ætíð eitthvað
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þessi verk eru valin á grundvelli
ástandsmats. Það er farið þangað
sem við teljum mestu þörfina fyrir
hendi,“ segir Ámundi V. Brynjólfs-
son, skrifstofustjóri framkvæmda og
viðhalds hjá Reykjavíkurborg.
Á fundi borgarráðs í vikunni var
lögð fram ósk umhverfis- og skipu-
lagssviðs að bjóða út framkvæmdir
við endurgerð leik- og grunnskóla-
lóða í sumar. Alls er um að ræða end-
urgerð og ýmsar lagfæringar, til að
mynda endurnýjun leiktækja, á sex-
tán lóðum. Kostnaðaráætlun hljóðar
upp á 500 milljónir króna og segir
Ámundi að það sé svipað og í fyrra.
Ráðist verður í endurgerð lóða á
þremur leikskólum; Furuskógi (1.
áfangi af tveimur), Garðaborg (1.
áfangi af tveimur) og Ægisborg (2.
áfangi af tveimur). Þrjár grunn-
skólalóðir verða sömuleiðis endur-
gerðar; við Ártúnsskóla (2. áfangi af
tveimur), Brúarskóla (2. áfangi af
þremur) og við Rimaskóla (2. áfangi
af tveimur).
Þá er einnig gert ráð fyrir að farið
verði í ýmis smærri verkefni á eft-
irfarandi tíu leikskólalóðum:
Engjaborg, Fífuborg, Geisla-
baugi, Hólaborg, Klettaborg, Lang-
holti-Sunnuborg, Litla Holti, Lyng-
heimum, Nesi-Hömrum og Sólborg.
Morgunblaðið/Ernir
Endurbætur Lóð Fellaskóla var tekin í gegn fyrir nokkrum árum.
Sextán skólalóðir
endurgerðar í sumar