Morgunblaðið - 15.02.2020, Side 20

Morgunblaðið - 15.02.2020, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2020 Ármúla 24 • S. 585 2800 rmúla 24 • S. 585 2800 BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Meirihluti borgarráðs hefur sam- þykkt breytingu á deiliskipulagi fyr- ir lóðina Borgartún 24. Á umræddri lóð, sem er á horni Borgartúns og Nóatúns, stendur til að rífa eldri byggingar og byggja í stað þeirra sjö hæða hús með 65 íbúðum auk versl- unar- og þjónusturýmis, alls um 16 þúsund fermetra. Fyrirhugaðar breytingar hafa valdið deilum í mörg ár og íbúar og lóðarhafar í nágrenninu hafa sent inn mótmæli. Sérstaklega voru íbúar í Mánatúni 7-17 (92 íbúðir) mótfallnir þessum áformum og töldu háhýsi á reitnum rýra lífsgæði og sömuleiðis rýra verðmæti eigna þeirra. Þessi mikla uppbygging í Borgartúni 24 hafi komið þeim í opna skjöldu, enda hafi þeim verið kynnt árið 2014 að þarna myndi rísa miklu lágreistari byggð. Íbúðirnar við Mánatún eru austanmegin Nóatúns, gegnt lóðinni sem til stendur að byggja á. Leyft að rífa allar byggingar Borgarstjórn Reykjavíkur sam- þykkti árið 2018 breytt deiliskipulag lóðarinnar Borgartúns 24. Í fyrra var að beiðni lóðarhafa auglýst nýtt deiliskipulag fyrir lóðina. Samkvæmt því verður leyfilegt að rífa allar byggingar á lóðinni í stað aðeins bak- húsa áður. Þar á meðal verður heim- ilt að rífa þriggja hæða verslunar- og skrifstofubyggingu fremst við göt- una. Í því húsi eru nú starfandi a.m.k. 12 fyrirtæki samkvæmt upp- lýsingum á ja.is. Athugasemdir við deiliskipulags- breytinguna bárust frá eigendum í Mánatúni og fulltrúum Smith&Nor- land hf. (handhafi Nóatúns 4 og Borgartúns 22) og Regins hf. (eig- andi Borgartúns 20). Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur svaraði athugasemdunum lið fyrir lið og mælti með að deiliskipulagið yrði samþykkt óbreytt að mestu leyti. Ekki var fallist á þau rök íbúa við Mánatún að breytingin kallaði á auk- in óþægindi fyrir íbúa svo sem aukna loft-, ljós- og hljóðmengun, auk óþæginda á framkvæmdatíma. Við afgreiðslu málsins í borgarráði í síðustu viku voru lagðar fram nokkrar bókanir. Borgarráðsfulltrúar Samfylking- arinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna (Líf Magneudóttir, Pawel Bartoszek, Dóra Björt Guð- jónsdóttir, Heiða Björg Hilmis- dóttir) lögðu fram bókun þar sem sagði að Borgartúnið hentaði vel til uppbyggingar nýrra íbúða. Reit- urinn liggi að almenningssam- göngum og hjólaleiðum. Umrædd deiliskipulagsbreyting felist í því að bæta við og stækka fermetratölu fyr- ir bílastæðahús neðanjarðar en nýt- ingarhlutfall ofanjarðar helst óbreytt. „Ekki er tekið undir að um- ræddar breytingar rýri lífsgæði annarra á svæðinu. Áformin styðja við þá verslun og þjónustu sem fyrir er á svæðinu og bæta þannig nær- umhverfið.“ Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins (Eyþór Laxdal Arnalds, Hildur Björnsdóttir, Valgerður Sig- urðardóttir) bentu á að sjálfstæðis- menn hefðu ítrekað bent á að deili- skipulagið væri á of litlum reit. Eðlilegast væri að deiliskipulagið tæki til reitsins í heild, ekki síst þar sem málið væri mjög umdeilt. Sjálf- stæðisflokkurinn gæti ekki stutt þessa deiliskipulagsbreytingu. Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins (Vigdís Hauksdóttir) var afdrátt- arlaus í sinni bókun og sagði að allar forsendur íbúa við kaup eigna á þessu svæði væru í uppnámi. Ekki væri að furða að íbúa Mánatúns 7-17 ræki í rogastans vegna þeirra breyt- inga sem hér um ræddi. Ekki væri gerð tilraun til að koma til móts við íbúana, heldur ekki rekstraraðila í nærumhverfinu sem einnig sendu inn athugasemdir. „Vinnubrögðin til skammar“ „Sú aðferðarfræði sem meirihlut- inn beitir er á þessa leið: Deiliskipu- lagsbreyting unnin án samráðs við nærumhverfi, deiliskipulag sett í auglýsingu undir formerkjum sam- ráðs og allar athugasemdir sem ber- ast virtar að vettugi. Þessi vinnu- brögð eru til skammar og ekki til merkis um góða stjórnsýsluhætti. Reykjavíkurborg er stjórnvald sem ber að fara að stjórnsýslulögum,“ bókaði Vigdís. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins (Kolbrún Baldursdóttir) beindi þeim tilmælum til skipulagsyfirvalda að fara að öllu með gát. „Þær fram- kvæmdir sem fyrirhugaðar eru virð- ast í ósátt við íbúa í nágrenninu og hvetur Flokkur fólksins til að haft verði samráð við íbúa um lokanið- urstöður á deiliskipulagi svæðisins.“ Nýtt skipulag á umdeildri lóð  Heimilt verður að byggja sjö hæða hús með 65 íbúðum á lóðinni Borgartúni 24  Nágrannarnir mótmæltu en árangurslaust  Allar athugasemdir sem berast virtar að vettugi, segir borgarfulltrúi Morgunblaðið/sisi Borgartún/Nóatún Húsin sem verða rifin sjást til vinstri á myndinni. Í þeirra stað mun rísa sjö hæða bygging með 65 íbúðum. Þar beint á móti, austan megin Nóatúns, stendur stórt fjölbýlishús, Mánatún 7-17. Íbúar þar mótmæltu harðlega. Þessi mikla byggð við Borgartún 24 myndi rýra verðmæti eigna þeirra. Nýbygging Svona verður útlit hússins Borgartún 24 samkvæmt kynningu borgarstjóra í nóvember í fyrra. Sett inn í mynd af Mánatúnshúsi ókláruðu. Tölvumynd/Yrki arkitektar Iðnaðarráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, tók á móti köku ársins á skrifstofu sinni í at- vinnuvegaráðuneytinu í fyrradag. Höfundur kökunnar er Sigurður Alfreð Ingvarsson, bakari hjá bak- aríinu Hjá Jóa Fel. Í köku ársins er rjómasúkkulaði, saltkarmellumús og Nóa tromp. Landssamband bakarameistara efnir árlega til keppni um köku árs- ins. Keppnin fer þannig fram að keppendur skila inn tilbúnum kök- um sem dómarar meta og velja úr þá sem þykir sameina þá kosti að vera bragðgóð, falleg og líkleg til að falla sem flestum í geð. Keppnin var haldin í samstarfi við Nóa Sí- ríus og voru gerðar kröfur um að kakan innihéldi Nóa tromp. Kaka ársins er nú til sölu í bakaríum fé- lagsmanna landssambandsins. Góðgæti Þórdís Kolbrún sker fyrstu sneiðina af köku ársins 2020. Sigurður Hannesson, Sigurður Alfreð Ingvarsson og Jóhannes Felixson fylgdust með. Ráðherra skar fyrstu sneið af köku ársins  Uppskriftin frá bakara hjá Jóa Fel

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.