Morgunblaðið - 15.02.2020, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.02.2020, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2020 sp ör eh f. Töfrandi blær Toskana héraðsins og yndislegt andrúmsloft ítölsku rivíerunnar, með blaktandi pálmatrjám og hrífandi ströndum, leika við okkur í þessari ferð. Farið verður í ævintýralegar ferðir þar sem við kynnumst menningu og listum landsins, siglum m.a. úti fyrir Cinque Terre ströndinni, kynnumst Flórens, einni glæsilegustu lista- og menningarborg landsins, og stöldrum við í Pisa þar sem við skoðum að sjálfsögðu hinn heimsþekkta skakka turn. Verð: 239.900 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Fararstjóri: Pavel Manásek Sumar 4 Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík 30. maí - 7. júní Töfrandi Toskana Hundruð franskra bænda gengu fylktu liði um götur Reims í Norð- austur-Frakklandi á fimmtudag og efndu til mótmælastöðu fyrir utan dómhús borgarinnar. Kröfðust þeir þess að bóndinn Jean-Louis Leroux yrði þegar í stað leystur úr haldi lög- reglu, en Leroux er grunaður um til- raun til manndráps. Er honum gefið að sök að hafa skotið úr haglabyssu sinni á 19 ára gamlan mann sem liggur í dauðadái á sjúkrahúsi eftir atlöguna, en er úr lífshættu. Leroux játar að hafa hleypt af byssunni til að stöðva fólk sem hann kom að á landareign sinni og taldi vera að stela bensíni. Segist Leroux langþreyttur á ástandinu, hann hafi margsinnis orð- ið fyrir barðinu á þjófum og hafi að lokum gripið til sinna ráða eftir að hafa ítrekað haft samband við lög- regluna sem hafi ekki aðhafst í mál- um hans. Segja um fyrirsát að ræða Stuðningsmenn Leroux fengu sitt fram þar sem dómari ákvað að láta hann lausan gegn tryggingu. Verj- andi hans segir skjólstæðing sinn ekki hafa ætlað sér að skaða neinn, lögmenn fórnarlambsins halda því hins vegar fram að Leroux hafi setið fyrir meintum bensínþjófum og aldr- ei sé réttlætanlegt að borgararnir taki lögin í eigin hendur. „Við gerum okkur ljóst að engin lausn felst í því að grípa til vopna, við óskum þess ekki að verja hendur okkar á þennan hátt, en stundum fara aðstæður úr böndunum,“ sagði Hervé Lapie, umdæmisformaður frönsku bændasamtakanna FDSEA, við sjónvarpsstöðina France 3. Hann sagði bændur nú vinna með yfirvöld- um til að hindra að þær aðstæður kæmu upp að þeir neyddust til að grípa til slíkra örþrifaráða. Skaut á meinta bensínþjófa  Þreyttur á aðgerðaleysi lögreglu AFP Mótmæli Tveir menn halda á borða sem á stendur: Frelsið Jean Louis. Bernie Sanders, hugsanlegt forseta- efni Demókrataflokksins í Banda- ríkjunum, las svokölluðum net- tröllum pistilinn í gær, netnotendum sem ganga fram með gífuryrðum, rógburði og al- mennum leið- indum í garð ann- arra á lýðnetinu. Reyndar voru það stuðnings- menn Sanders sjálfs sem urðu kveikjan að um- vöndunum hans, en þeir réðust harkalega að stéttarfélagi starfs- fólks í veitingageiranum í Nevada- ríki í kjölfar gagnrýni þess á stefnu Sanders í lýðheilsumálum. Kvörtuðu talsmenn félagsins yfir að köguryrðunum hefði rignt yfir þá á samfélagsmiðlinum Twitter, í SMS-skeytum, tölvupósti og víðar. Hvatti til stillingar „Hver sá sem persónulega ræðst gegn öðrum í mínu nafni tilheyrir ekki okkar hreyfingu. Við viljum þá ekki,“ sagði Sanders í viðtali við PBS NewsHour í gær og hvatti net- verja enn fremur til að stilla sig um „einelti og niðrandi persónuárásir“. Sanders, sem hefur lagt mikla áherslu á stuðning sinn við vinnandi fólk, beindi orðum sínum til stuðn- ingsmanna allra frambjóðenda, en áhangendum hans hefur ítrekað ver- ið legið á hálsi fyrir að fara fram úr sér á netinu, meðal annars með árás- um á keppinaut hans í forvalinu, öld- ungadeildarþingmanninn Elizabeth Warren, en einnig fyrir óviðeigandi ummæli á sínum tíma í garð Hillary Clinton, sem tókst á við Sanders í forkosningum ársins 2016 og fór með sigur af hólmi. Bernie Sanders er kominn í topp- slaginn hjá demókrötum eftir for- kosningar í Iowa og New Hamp- shire, en fram undan eru Nevada og Suður-Karólína. Hvetur netverja til stillingar  Þykja viðskotaillir á samfélagsmiðlum Bernie Sanders Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Hitastig á Suðurskautslandinu mæld- ist í fyrsta sinn yfir 20 gráður á sunnu- daginn. Það var veðurstöð á Seymour- eyju sem mældi 20,75 gráður, en eyjan er á 64. breiddargráðu suður, eða alveg við nyrsta odda Suðurskautslandsins sem teygir sig í átt að Argentínu og Chile. Carlos Schaefer, brasilískur vísinda- maður, sagði við AFP-fréttastofuna að annað eins hefði aldrei sést á mælum í heimsálfunni en benti þó á að hér væri aðeins um eina staka mælingu að ræða í stað mælinga sem skráðar eru yfir lengra tímabil. „Við getum ekki notað þessa mælingu til að spá fyrir um lofts- lagsbreytingar í framtíðinni. Þetta er eingöngu til merkis um eitthvert frávik á þessum eina stað,“ sagði hann. Hærra meðalhitastig Ekki er lengra en nokkrir dagar frá næsta hitameti á undan, á þess- um sama stað, það var 18,3 gráður og mældist í síðustu viku. Samkvæmt tölum sem Alþjóðaveðurfræðistofn- unin, WMO, hefur sent frá sér hefur meðalhiti Suðurskautslandsins hækkað um tæplega þrjár gráður síðustu 50 ár og 87% jökla á vestur- strönd þess hopað sama tímabil, þó mest síðustu tólf ár. Í september í fyrra brotnaði stærsti ísjaki í rúmlega hálfa öld af Amery-íshellunni, sá var 1.636 fer- kílómetrar að stærð, nokkru stærri en London með úthverfum. Fyrra hitamet fyrir allt Suður- skautslandið, að meðtöldum öllum eyj- um og þeim hafsvæðum sem til þess heyra, var 19,8 gráður í janúar 1982. Ekki er langt síðan nýtt hitamet leit dagsins ljós á norðurskauti jarðar, það var í júlí í fyrra þegar 21 gráðu hiti mældist á Ellesmere-eyju. Hitamet á suðurskautinu  Hiti á Seymour-eyju mældist 20,75 gráður  Jöklar hafa hopað mikið síðustu ár AFP Hlýindi Barbijo-mörgæsir á Orne Harbour á Suðurskautslandinu í nóvember sl. Í fyrsta skipti hefur mælst yfir 20 gráðu hiti í álfunni á Seymour-eyju. S U Ð U R S K A U T S L A N D I Ð Argentína Ross- haf Indland sh af Kyrrahaf Hitamet sett á Suðurskautslandinu 20,75°C Seymoureyja Suðurpóllinn Atlantshaf 1 000 km

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.