Morgunblaðið - 15.02.2020, Page 25

Morgunblaðið - 15.02.2020, Page 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2020 Rok Vegfarendur í miðbæ Reykjavíkur reyndu hvað þeir gátu að komast leiðar sinnar í rokinu í gær. Hér er einn nánast að takast á loft og næsti maður tilbúinn að ná mynd. Árni Sæberg Það er fátt mik- ilvægara og meira gef- andi í starfi þing- mannsins en að heimsækja kjósendur á þeirra heimavelli hvort sem er á vinnustöðum eða á fundum. Þingflokkur sjálf- stæðismanna hefur nú lokið fyrstu lotu ferðar sinnar um allt land með heimsóknum á yfir 30 staði og í meira en 100 lítil og meðalstór fyrir- tæki. Framundan eru heimsóknir á höfuðborgarsvæðinu og til nokkurra annarra staða á landinu til að loka hringnum. Slíkar heimsóknir krefjast mikils undirbúnings og á þessum árstíma verður einnig að treysta á að veð- urguðirnir séu hliðhollir svo að ströng dagskrá gangi upp. Þetta gekk ótrú- lega vel að þessu sinni. En það er til lítils að leggja þennan und- irbúning og vinnu á fé- laga okkar um land allt, nema fólk finni að slíkt beri árangur. Að það veganesti og þau skila- boð sem þingmenn fá frá mismunandi hópum samfélagsins í öllum landshlutum komi að notum. Það sem mér finnst standa upp úr eftir þennan fyrsta áfanga ferð- arinnar er að fólki finnst að of mikið sé talað og of lítið áþreifanlegt ger- ist. Áherslur eru mismunandi, eins og gefur að skilja, þó að vissulega standi ákveðnir málaflokkar upp úr, og er þá sama við hvern þú talar eða á hvaða svæði þú ert. Uppbygging innviða er öllum of- arlega í huga. Stórir landshlutar hafa ekki tækifæri til að efla og bæta búsetuskilyrði, fyrst og fremst vegna ófullnægjandi samgangna og veikleika í dreifikerfi raforku. Það mega sín lítils fögur orð um aukna verðmætasköpun og fjölgun fjöl- breyttari atvinnutækifæra, þegar grunnurinn er eins veikur og raun ber vitni. Þessi ríkisstjórn hefur nú setið við völd í á þriðja ár og skilaboðin til okkar eru skýr: Nú er kominn tími til að hefjast handa. Vissulega hefur margt unnist vel og miklum árangri verið skilað í hús. En samt eru áþreifanlegar breytingar á fram- angreindum meginþáttum ekki nægilega sýnilegar. Flókið reglu- verk og langur undirbúningstími er líka gagnrýnt harkalega. Krafan á okkur stjórnmálamenn er að ein- falda þessa hluti og gera gangverkið skilvirkara. Staðan í því máli er því miður þannig að slíkt virðist þurfa að taka langan tíma, sérstaklega þegar að ljóst er að erfitt er að fá stjórnmálamenn og embættismenn til að ganga í takt. Sú staðreynd er örugglega að kosta samfélag okkar milljarða á ári. Nú er tímabært að þau verkefni sem að þessu lúta og fullyrða má að mörg hver snerti þjóðaröryggi, fái flýtimeðferð í stjórnkerfinu. Alþingi getur sett um það lög að ákveðin verk og framkvæmdir vegna þeirra, fái lagalega umgjörð og skuli njóta forgangs og undþága frá því flókna regluverki sem um þær gildir. Þetta á sérstaklega við aðgerðir sem mik- ilvægar eru til að tryggja aðgang að raforku og öruggum greiðum sam- göngum. Þessi verkefni eru um allt land og eiga það sammerkt að mynda grunn að eflingu samfélags- ins. Það er ekki síður mikilvægt, við þær aðstæður sem nú hafa skapast og um hægist í hagkerfinu, að hið opinbera svari því með háu fram- kvæmdastigi og það strax. Slíkar ráðstafir yrðu til að auka á bjartsýni manna og gefa atvinnulífinu það súr- efni sem það þarf á þessum tíma- mótum. Nú er tími til að láta hendur standa fram úr ermum, tími aðgerða er runninn upp og þess verður að sjá stað strax á þessu ári og þeim næstu. Eftir Jón Gunnarsson »Nú er tímabært að þau verkefni sem að þessu lúta og fullyrða má að mörg hver snerti þjóðaröryggi, fái flýti- meðferð í stjórnkerfinu. Jón Gunnarsson Höfundur er ritari Sjálfstæðisflokks- ins og þingmaður Suðvest- urkjördæmis jong@althingi.is Látið hendur standa fram úr ermum Ég hef lengi látið það fara í taugarnar á mér hversu frjálslega borgaryfirvöld fara með sannleikann. Á fundi borgarstjórnar fyrir skömmu var húsnæðisstefna borg- arinnar rædd. Þar fór meirihlutinn fjálglega yfir meintan árangur af sinni stefnu. Ekki hafa margir fundist til að taka undir þann meinta árangur, frekar er að flestir séu þeirra skoðunar að húsnæðisstefna meirihlutans sé skaðvaldur, sérstaklega fyrir ungt fólk og tekjulágt í borginni. Tölurnar tala sínu máli Raup um að árangurinn sé stað- festur með tölum um að aldrei hafi borgarbúum fjölgað eins mikið á einu ári frá 1964 verður marklaust, þegar tölur um íbúaþróun eru skoðaðar af skynsemi og raunsæi. Frá 1964? Var einhver að spá í það? Er bara verið að snúa út úr og afvega- leiða umræðuna? Eins og við þekkjum því miður svo vel í um- ræðum í borgarstjórn- arsalnum. Aðalatriðið er hins vegar það að tölurnar um íbúaþró- un síðustu ára segja í raun allt aðra sögu. Fjölgun í Reykjavík er minni, miklu minni en í flestum, ef ekki öllum sveitarfélögum á suð- vesturhorninu. Þangað sem unga fólkið flytur, í hagkvæmt og ódýrt húsnæði sem hentar því vel. Töl- urnar má finna á heimasíðu Hag- stofunnar. Ætti það ekki að vera kjarni málsins og áhyggjuefni fyrir borgaryfirvöld? Allavega viðfangs- efnið. Ekkert hlustað Nú er verið að taka til afgreiðslu skipulag Sjómannaskólareitsins svokallaða. Þar hafa borgaryf- irvöld talað jafn fjálglega um íbúa- samráð og breiða sátt í málinu. Að tekið hafi verið tillit til at- hugasemda íbúa og brugðist við áhyggjum þeirra. Um ósamræmi í hverfisásýnd, ágangi að grænum svæðum, skertu andrými bygginga sem eru kennileiti hverfisins og borgarinnar allrar, minnkandi um- ferðaröryggi barna og aðstöðuleysi í skólum. Það er ekki upplifun íbúa í hverfinu og þeir taka ekki undir með fréttatilkynningunum. Af hverju er þá verið að halda því fram að samráð hafi verið haft? Hver er tilgangurinn? Er hann einhverjum til gagns? Athugasemdir og ábendingar íbúa fá lítinn sem engan hljóm- grunn. Hins vegar hefur borgin neyðst til að láta undan kröfum frá opinberum aðilum sem láta sig málið varða, þess vegna var skipu- lagið lagfært lítillega. Ríkið vill ekki skerða lóð Sjómannaskólans, Minjastofnun vill ekki skerða ásýnd skólans og Borgarsögusafn- ið vill ekki skerða hverfisvernd á svæðinu. Það er gott að meirihlut- inn skuli taka einhverjum sönsum. En vont er þegar lítið eða ekkert er hlustað á áhyggjur borgarbúa, sérstaklega þegar mikið og fjálg- lega er talað um íbúasamráð og íbúalýðræði. Ungt fólk velur ekki dýrt Svör borgarinnar við áhyggjum nágranna eru að íbúðirnar séu í samræmi við húsnæðisstefnu hennar og eigi að vera fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur. Samt kemur fram að meðatals- fermetraverð íbúðanna verði með því hæsta sem þekkist. Er það lík- legt að ungir og tekjulágir borg- arbúar bíði í eftirvæntingu eftir að ráðast í slík kaup? Varla. En af hverju er þá verið að halda því fram? Unga fólkið velur sjaldnast dýrasta kostinn. Það velur frekar aðra kosti eins og tölurnar frá Hagstofunni sýna. Þeir eru fáir sem trúa því að borgaryfirvöld séu á réttri leið með húsnæðisstefnu sinni. Þeim á ekki eftir að fjölga þegar gripið er til útúrsnúninga og umræðan er afvegaleidd, né heldur þegar skoð- aðar eru tölurnar um íbúaþróun á suðvesturhorni landsins. Betur fer á því að halda sig við það sem er rétt og satt. Og bregð- ast við af raunsæi og skynsemi. Þá gengur okkur betur að mæta þörf- um borgarbúa. Eftir Örn Þórðarson » Vont er þegar lítið eða ekkert er hlust- að á áhyggjur borg- arbúa, sérstaklega þeg- ar mikið og fjálglega er talað um íbúasamráð og íbúalýðræði. Örn Þórðarson Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Rétt og satt í Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.