Morgunblaðið - 15.02.2020, Síða 26

Morgunblaðið - 15.02.2020, Síða 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2020 Suðurgata 16, 245 Sandgerði Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is Jóhannes Ellertsson Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677 Júlíus M Steinþórsson Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555 Mikið endurnýjuð 6 herbergja efri hæð í tvíbýli í Sandgerði. Sandgerði er fjölskylduvænt sveitarfélag. Nr. 2 á landsvísu samkv. nýrri könnun. Verð kr. 32.000.000 Stærð 138 m2 Vindurinn gnauðar og ólmast, það hvín í trjánum og sjórinngengur á land – og þá er gott að kúra inni og íhuga orðin semná utan um veðurhaminn. Óveður, illviðri, aftakaveður, rosi,foráttuveður, manndrápsbylur, stormur og öskurok. Orðin lýsa því sem er að gerast fyrir utan gluggann minn þegar bálviðrið skellur á öllu því sem fyrir er. Maðurinn má sín lítils þegar náttúru- öflin byrsta sig og minna á hver séu hin raunverulegu valdahlutföll í heiminum. Þessa stríðu og blíðu náttúru höfum við fangað með blæ- brigðaríkum og hárnákvæmum orðum, áður en við eignuðumst tæki til að mæla metra á sekúndu eða vindstigin tólf. Í orð- unum birtist auðmýkt fyrir náttúrunni – og líka raun- sætt mat. Fornskáldin kölluðu him- ininn vindahjálm, og sáu fyr- ir sér hvernig vindurinn geisaði undir hvelfingu himinsins, sem þau líktu við manngerðan hjálm. Í Þulunum gömlu sem varðveittar eru í handritum með Snorra Eddu og geyma heiti um þau margvíslegu náttúrufyrirbæri sem skáld- in vísuðu til í kveðskap eru tvær dásamlegar vísur um veður heiti, sem lýsa hreyfingu lofts, sem þéttist í regn og snjó. Veðr, byrr, vönsuðr, vindr, élreki, glygg, blær ok gustr, gráp, logn, þoka, regn, úr, rota, ríð, myrkvi, él, fjúk, fok, mugga, frost, kári, hregg. Gönsurr, gráði, gol, ofviðri, gjósta, grindill, gæla ok óhljóðr, gneggjuðr, gönsuðr, gæ, dynfari, hlömmuðr, ganrekr, húsbrjótr og þjótr. Glygg, gneggjuður, gjósta, ganrekur og þjótur. Hvert orð hefur sína áferð, músíkalska tón og tilfinningu jafnvel þó að við skiljum þau ekki almennilega – en húsbrjótur og óhljóð eru hárbeitt og ljós. Mörg þeirra finnast ekki í kveðskap, eins og gönsur, sem líklega er dregið af gana, að flýta sér, grindill sem talið er merkja foráttuveður og gæ sem er hugsanlega dregið af góunni en hið fallega orð dynfari nota álfarnir um vindinn í Alvíssmálum. Veðurorð finnum við í ótal kenningum um orrustur. Hávaðanum, ógninni og sverðaþyti var best lýst með því að grípa til líkinga með veðrum, vindum og nístandi snjóélinni. Þegar ég hlusta á vindinn hugsa ég til þess tíma þegar engin veður- spá bjó mannfólkið undir veðrið sem í vændum var og enginn vissi hve- nær það versta yrði afstaðið. Hvessir enn í nótt, rok eða ofsaveður (23- 30 m/s) með morgninum, en fárviðri (yfir 32 m/s) í vindstrengjum syðra. Víða slydda eða snjókoma á morgun, úrkomumest sunnan- og austanlands. Snýst í sunnan hvassviðri sunnan til landinu seinni part- inn með rigningu á láglendi og hita 1 til 5 stig, en þá áfram rok og ofan- koma um landið norðanvert. Lægir talsvert á landinu annað kvöld og dregur úr úrkomu. Á föstudag gekk sannkallað stórviðri yfir landið – sem breyttist svo í rok, næðing, kannski frostgolu og kalda en síðan logn á undan hinum óumflýjanlega næsta stormi. Húsbrjótur og þjótur Tungutak Guðrún Nordal gnordal@hi.is Efnahagslægðir eru fastur þáttur í tilveruokkar Íslendinga, eins og annarra þjóða,og ein slík nálgast okkur nú óðfluga. Nýj-asta áminningin um það var tilkynning Rio Tinto, eiganda álversins í Straumsvík, um að lokun þess kynni að vera í aðsigi. Áður var orðið nokkuð ljóst að loðnubrestur blasir við sem hefur alvarleg áhrif ekki sízt á nokkrar af sjávarbyggðum landsins. Og loks er ekki ólíklegt að áföll geti orðið í ferða- þjónustu nú síðast vegna Wuhan-veirunnar. Efnahagslægðir í lífi okkar tengjast yfirleitt undir- stöðuatvinnuvegum þjóðarinnar með ýmsum hætti, þótt það sé nýtt að lokun heils álvers geti staðið fyrir dyrum. Straumsvík var upphafið að skipulegri nýt- ingu orku fallvatnanna á fyrri hluta Viðreisnaráranna á síðustu öld. Þeir sem þar stóðu í forsvari – og með- al þeirra voru dr. Jóhannes Nordal, þá seðlabanka- stjóri, Eyjólfur Konráð Jónsson, þá ritstjóri Morgun- blaðsins, og Jóhann Hafstein, þá varaformaður Sjálfstæðisflokksins og ráðherra iðnaðarmála – voru drifnir áfram af hugsjónum Einars Benediktssonar, skálds, eins og þeir sem fylgd- ust með þeim úr nálægð upp- lifðu sterkt. Í kjölfar þeirra tímamóta fylgdi einn mesti öldudalur í efnahagsmálum þjóð- arinnar á síðustu öld. Fyrstu merki þess öldudals sáust á miðju ári 1966. Þá varð verulegt verðfall á út- flutningsafurðum okkar. Það varð mest á lýsi eða um 37,5%. Á sama tíma lækkaði verð á próteineiningu í tonni síldarmjöls um 23% og um sumarið lækkaði verð á þorskblokk á Bandaríkjamarkaði um 20%. Og loks varð þorskaflinn minni en árið áður sem nam 43 þúsund tonnum, sem kom illa við frystiiðnaðinn. En fleira kom til. Vetrarvertíðin 1967 var að mati fróðustu manna sú erfiðasta frá árinu 1914. Síldaraflinn 1966 hafði numið um 770 þúsund tonn- um og loðnuaflinn um 125 þúsund tonnum. Ári seinna, 1967, minnkaði síldaraflinn og varð einungis 460 þúsund tonn og loðnuaflinn varð 97 þúsund tonn. Árið þar á eftir, 1968, hrundi síldaraflinn og fór niður í 143 þúsund tonn og loðnuaflinn fór niður í 78 þúsund tonn. Afleiðingarnar urðu vaxandi atvinnuleysi, sem á þessum árum hafði verið nær óþekkt frá heimsstyrj- aldarárunum síðari. Það jókst hins vegar mjög á ár- unum 1968 og 1969. Snemma árs 1968 nam atvinnu- leysi um 2% en ári síðar var það komið í um 7%. Að hluta til gætti þar áhrifa sjómannaverkfalls og eftir lausn þess minnkaði það verulega og var komið í 3,2% í árslok 1969. Það sagði þó ekki alla söguna vegna þess að á þeim tíma var talið að um 250-300 iðnaðarmenn hafi farið til starfa erlendis og þá sérstaklega til Svíþjóðar. En að sjálfsögðu versnuðu lífskjör fólks mjög á þessum tíma. Þessi saga er rifjuð hér upp til að minna fólk á, að þótt nú halli undan fæti á ný af margvíslegum ástæð- um, höfum við sem þjóð séð það svartara og ekki ástæða til að örvænta. Við náðum okkur upp úr þeim djúpa öldudal, sem hér hefur verið lýst og auðvitað átti sú stóriðja, sem nú stendur á tímamótum þátt í því. Efnahagslægðin sem nú nálgast mun hafa marg- vísleg áhrif. Hún getur t.d. leitt til þess að einhverjir þeirra útlendinga, sem hingað hafa leitað í atvinnu- skyni seinni árin muni snúa til síns heima. Hún mun leiða til þess að fyrirtæki reyni að hagræða og þá með ýmsum hætti en m.a. með uppsögnum og ein er sú atvinnugrein, sem nú þegar stendur höllum fæti, og getur orðið fyrir verulegum áföllum, en það er fjölmiðlun, þótt það skipti ekki sköpum fyrir afkomu þjóðarbúsins. Fjölmiðlafyrirtækin finna nú þegar fyrir minnkandi auglýsingamagni og sú þróun getur orðið reiðarslag fyrir minnstu fyrirtækin á þeim markaði. Eins og nú horfir eru allar líkur á því að næstu þingkosn- ingar, hvort sem þær verða að vori eða hausti á næsta ári, fari fram í skugga þeirrar efnahagslægðar, sem að okkur sækir. Það er hefðbundið að slíkar að- stæður eru erfiðar fyrir þá flokka sem sitja í ríkis- stjórn á slíkum tímum. Þingkosningarnar snemma sumars 1967 urðu erf- iðar fyrir Sjálfstæðisflokkinn þótt aðrar skýringar væru á þeim úrslitum þá. Það er nauðsynlegt fyrir núverandi stjórnarflokka að átta sig á þessari stöðu strax. Þeir eiga ekki að falla í þá freistni að tala við kjósendur eins og allt sé í stakasta lagi. Þeir eiga þvert á móti að útskýra fyr- ir þjóðinni þá erfiðleika, sem kunna að vera fram- undan og hvað hægt er að gera til þess að draga úr þeim. Við ráðum ekki göngum loðnunnar en eigum að horfast í augu við þann veruleika að loftslagsbreyt- ingar hafa áhrif á hafstrauma og lífið í hafinu og verðum því að leggja okkar af mörkum til þess að mæta þeim. Við ráðum ekki verðlagsþróun á álmörkuðum í heiminum en stjórnvöld þurfa strax að taka afstöðu til kröfu Rio Tinto um lækkun á raforkuverði. Það er skárra að fá minna fyrir raforkuna en að álverinu verði lokað. Við ráðum ekki áhrifum Wuhan-veirunnar á ferða- mannastraum um heimsbyggðina en vera má að hægt sé að auðvelda ferðaþjónustunni að takast á við hugsanleg áföll af hennar völdum með öðrum hætti. Það eru miklar líkur á því að helzta verkefni ríkis- stjórnar og Alþingis á næstu misserum verði að fást við afleiðingar þeirrar efnahagslægðar, sem nálgast landið. Það dugar ekki að bíða með þau verkefni fram á næsta ár. Það þarf að taka til hendi strax. Efnahagslægðin nálgast … … og hún getur orðið djúp. Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Franski rithöfundurinn FrédéricBastiat er einn snjallasti tals- maður viðskiptafrelsis fyrr og síð- ar. Ein ritgerð hans heitir „Það, sem við sjáum, og það, sem við sjáum ekki.“ Þar bendir hann á, að athafnir okkar hafa margvíslegar afleiðingar. Ein er strax sýnileg, en aðrar koma síðar fram og dyljast mörgum, en aðalsmerki góðs hag- fræðings er að leiða þær líka í ljós. Bastiat segir dæmisögu máli sínu til stuðnings. Óknyttadrengur brýtur rúðu, og áhorfendur reyna að sefa reiðan föður hans: „Slys eins og þessi knýja áfram fram- leiðsluna. Allir verða að lifa. Hvað yrði um glerskera, ef aldrei væru brotnar rúður?“ Þessi rök eru ógild, segir Bastiat. Það er rétt, ef sex franka kostar að gera við gluggann, að þeir renna þá til gler- skurðar og örva þá iðn. Þetta sjáum við. En það, sem við sjáum ekki, er, að faðir drengsins getur nú ekki notað þessa sex franka til að kaupa sér skó. Heildarniður- staðan virðist vera, að glerskurður hafi verið örvaður um sem nemur sex frönkum, en aðrar atvinnu- greinar misst af örvun sem nemur sömu upphæð. En ávinningur glerskeranna bætir ekki upp tapið fyrir aðrar at- vinnugreinar. Nú eyðir faðirinn sex frönkum í að gera við gluggann og nýtur hans síðan eins og hann gerði áður. En hefði slysið ekki orðið, þá hefði hann notað sex franka til að kaupa sér skó og hefði eftir það notið hvors tveggja, rúðunnar og skónna. Heildin hefur tapað því sem nemur verðmæti brotnu rúð- unnar. Í ritgerðinni notar Bastiat marg- ar fleiri dæmisögur til að leiða í ljós, að heildin tapar alltaf á eyði- leggingu verðmæta. Enn gera þó sumir þær hugsunarvillur, sem Bastiat bendir á. Nóbelsverðlauna- hafinn Paul Krugman sagði til dæmis í bloggi sínu 14. september 2001, að hryðjuverkaárásin á tví- buraturnana nokkrum dögum áður gæti örvað atvinnulífið, „ef fólk flykkist út í búð og kaupir vatn í flöskum og niðursuðuvöru“. Og 15. mars 2011 sagði Krugman, að ný- legt kjarnorkuslys í Fukushima gæti örvað alþjóðahagkerfið, enda hefði seinni heimsstyrjöld bundið endi á heimskreppuna! Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Bastiat og brotna rúðan

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.