Morgunblaðið - 15.02.2020, Side 29

Morgunblaðið - 15.02.2020, Side 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2020 ., '*-�-��,�rKu�, KIEL/ - OG FRYSTITJEKI Seljum og þjónustum frysti- og kælikerfi Funahöfða 7 | 110 Reykjavík | Sími 577 6666 Kæli- & frystibúnaður í allar gerði og flutning Iðnaðar- einingar mikð úrval r sendi- abíla Kæli- & frystiklefar í öllum stærðum Loftkælings- & varmadælur „Háski sá, sem vofir yfir lýðræði nútímans og hefur víða gert það svo valt, er framar öllu fólginn í fláttskapnum þegar almenningi er talin trú um að hann sé kúgaður samkvæmt umboði frá honum sjálfum eða hann er fyrst féflettur og síðan látinn þiggja sína eigin eign í mútur og náðargjafir. Það er sannast sagt, þótt sorglegt sé, að talsvert af beru ofbeldi, sem menn þora að klóast við, er bærilegt í samanburði við prúðbúið og vá- tryggt ranglæti. Allmargt má ganga á tréfótum um afkomu manna til þess sá kostur sé betri að svipta menn dug og forsjá til frjálsra sjálf- bjargar og sambjargar.“ Sigurður Nordal, prófessor og menningar- frömuður. Íslensk menning. (1942). Ekki hefur verið betur orðað á ís- lenska tungu, sú hætta, sem alræði meirihlutans er lýðræðinu, ef frelsis og sjálfstæði einstaklingsins er ekki inntak þess, en lýðræði aðeins at- kvæðagreiðsla, sem ráðskast er með af undirokuðum fjölmiðlum. Uppsöfnun auðs í höndum ríkisins á meðan tugþúsundir almennings búa við þröngan kost er heldur ekki heillavænlegt ástand í ljósi þess valds sem eignum fylgir. 70% (efna- minni hluti) þjóðarinnar eru alltaf að verða hinu opinbera háðari um alls kyns styrki, bætur, úthlutanir og stuðning. Tekjujöfnuður getur orðið sæmilegur með þessum hætti en sá böggull fylgir skammrifi að vera öðr- um háður. En tekjur eru ekki vald, frekar það að vera öðr- um háður. Vald og sjálfræði fylgja eign- um, ekki óvissum tekjum sem þú átt und- ir náð og miskunn hins opinbera eða annarra. Það er beint samband á milli valds og góðra eigna. Of mikil upp- söfnun eigna og mið- stýring er ólýðræð- isleg. Hún dregur úr völdum og sjálfstæði flestra einstaklinga. Opinbert fé Opinbert fé er oft kallað sameign okkar allra, þjóðareign. Er nauð- synlegt eða hagkvæmt að halda svo miklum eignum þjóðfélagsins, skattgreiðenda í ríkiseign? Ógnar það ef til vill lýðræðinu? Er ekki kominn tími til að skila einhverju af þessum fjármunum aftur til ein- staklinganna, bæta hag þeirra lakar settu, styrkja stöðu þeirra? Markmið breytts eignarhalds Stefnan gæti verið sú að sérhver einstaklingur eigi skuldlausa eign að upphæð töluvert ofar fátækra- mörkum. Eignir eru uppsöfnuð vinna. Persónulegar eignir virka fyrir einstaklinginn eins og uppi- stöðulón vatnsaflsrafvirkjunar, þær jafna út áföll eins og veikindi, at- vinnuleysi og veita tíma til endur- menntunar. Þær auka sjálfstæði og öryggi einstaklingsins. Tilgangur- inn er að gera menn óháðari lánveit- endum og bönkum. Skattfé er ódýrasta fjármagn sem hið opinbera getur fengið, engir vextir, hvorki afborganir né skatta að greiða, án nokkurs rétts á endur- gjaldi fyrir skattgreiðandann sjálf- an persónulega. Það er mikil freist- ing fyrir það opinbera að nota þetta fé frjálslega í hvers konar rekstur í beinni samkeppni við einkarekstur, sem þarf að borga skatta af sínum rekstri til hins opinbera samkeppn- isaðila. Hins vegar er greiðsla skatt- greiðandans dýrasta fé sem hann innir af hendi án nokkurs beins lof- orðs til hans persónulega. Gagn- kvæmnin er með öðrum orðum mjög óskýr. Mikið af þessu skattfé fer að sönnu í fjárfestingar hins op- inbera. Mörg hundruð milljarðar króna munu því fara árlega frá skattgreiðendum í opinberar fjár- festingar. Er ekki æskilegt og lýð- ræðislegt að hið opinbera, fremur en að hrifsa í sífellu fjármuni fólks og gera að sínum, fái heldur fé að láni hjá skattgreiðendum. Er ekki nauðsynlegt að einhverjar hömlur séu settar á öflun og eyðslu skatt- fjár? Opinbert fé eða eign er sam- eign landsmanna og því er enginn vafi á því að Íslendingar eiga þessa fjármuni. Þessi höfuðstóll ætti því að færast til bókar og færast hægra megin, skuldamegin, á efnahags- reikning ríkisins sem skuld við landsmenn. Reikna ætti vexti af þessari eign, sem gæti farið í op- inberan sjóð og fé úr honum notað til að útrýma fátækt á Íslandi. Þá væri opinbert fé ekki ókeypis og þyrfti að gæta þess betur. Ógn við lýðræðið Eftir Jóhann J. Ólafsson »Er ekki nauðsynlegt að einhverjar höml- ur séu settar á öflun og eyðslu skattfjár? Jóhann J. Ólafsson Höfundur er fv. stórkaupmaður. Kæri borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson. Ég neyddist til þess að loka verslun minni, Herrahúsinu, á Lauga- vegi 47, hinn 24. febrúar 2019 og flytja hana í annan borgarhluta. Ástæða lokunarinnar var heft aðgengi að göt- unni, endalausar lokanir vegna byggingafram- kvæmda og síðast en ekki síst sú ákvörðun ykkar sem skipið meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur að loka fyrir alla bílaumferð um Laugaveginn, allt árið um kring. Mikil og stór ákvörðun … Það var mikil og stór ákvörðun að fara með Herrahúsið úr póstnúmeri 101. Herrahúsið var með samfelldan rekstur í póstnúmeri 101 frá árinu 1965, með öðrum orðum í tæp 55 ár! Búðin var fyrst í Aðalstræti, þá Austurstræti, síðan í Bankastræti, þar sem Sólon er, og síðast að Laugavegi 47, á horni Frakkastígs. Hvernig dettur mönnum í hug að hægt sé að reka herrafataverslun við lokaða götu á Íslandi, allt árið um kring, í þeirri veðráttu sem hér er? Það er ekki hægt að bera saman veðr- áttuna hér og t.d. í Kaupmannahöfn, því hér er hún svo miklu verri. Hvaða veruleikafirring er í gangi? … en hárrétt ákvörðun! Það hefur nú komið á daginn að sú ákvörðun mín að flytja Herrahúsið í annan borgarhluta var hárrétt. Ég lokaði búðinni minni á Laugaveginum hinn 24. febrúar 2019, sem fyrr segir. Ég opnaði svo nýja og glæsilega verslun Herra- hússins í Ármúla 27, 108 Reykjavík, 8. mars 2019, þ.e. tæpum hálfum mán- uði síðar. Og viti menn. Veltu- aukningin hjá mér á síð- asta ári er um 55%! Það er aukning upp á tugi milljóna króna. Þessar tölur ljúga ekki. Þær segja allt sem segja þarf um það hvað Lauga- vegurinn er orðinn handónýtur sem verslunargata, í það minnsta fyrir verslun í mínum geira. Ósvikin ánægja Það sem meira er: Ánægja við- skiptavina minna er ósvikin. Fólki finnst frábært að þurfa ekki að fara niður á Laugaveg. Hér er aðgengið mjög gott, næg bílastæði fyrir framan verslunina, allt á einni hæð (búðin var á þremur hæðum við Laugaveginn) og meira að segja miklu lægri leiga! Ég vil enda þessar hugleiðingar mínar með því að þakka þér, hr. borgarstjóri og þínu fólki kærlega fyr- ir að hrekja mig af Laugaveginum. Það var það besta sem hefur hent mig í mörg herrans ár á viðskiptasviðinu. Með vinsemd en lítilli virðingu. Bréf til borgarstjóra Eftir Sverri Bergmann » Ánægja viðskipta- vina minna er ósvik- in. Fólki finnst frábært að þurfa ekki að fara niður á Laugaveg. Sverrir Bergmann Höfundur er kaupmaður í Herra- húsinu, Ármúla 27, 108 Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.