Morgunblaðið - 15.02.2020, Síða 38

Morgunblaðið - 15.02.2020, Síða 38
38 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2020 Við höfum opnað nýjan og endurbættan vef: www.gamafelagid.is 50 ára Benedikt fæddist í Reykjavík, ólst upp á Núpi á Berufjarðarströnd en býr í Grafarvogi í Reykjavík. Hann er stofnandi, fram- kvæmdastjóri og eig- andi Sendibíla Reykjavíkur ehf. sem var stofnað árið 2001. Benedikt er mikill útivistarmaður. Maki: Hólmfríður Sólveig Pálsdóttir, f. 1971, skrifstofustjóri Sendibíla Reykja- víkur. Börn: Rúnar Páll, f. 1993, og Berglind, f. 1998. Foreldrar: Gunnar Einarsson, f. 1922, d. 2008, og Svava Júlíusdóttir, f. 1930, d. 2006, bændur á Núpi. Stefán Benedikt Gunnarsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Skyndilega hefurðu þörf fyrir að tjá þig, og vilt helst ræða allar tilfinningar sem fara um hjarta þitt 20. apríl - 20. maí  Naut Þú mátt eiga von á óvæntum uppá- komum allt í kringum þig og því er gott að búa yfir eðlislægum sveigjanleika. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Eitthvað sem vinur þinn lætur út úr sér nær algerum tökum á þér. Farðu varlega, þegar þú kemst að leyndarmáli um einn vinnufélaga þinn. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það gengur ekki að þú ríghaldir í alla skapaða hluti á vinnustaðnum. Við finnum öll fyrir því að vera bundin því, sem við eigum, þótt í raun sé það órökrétt. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Notaðu daginn til þess að brjóta nið- ur hindrun sem þú hefur reist af sjálfs- dáðum. Fólk sem reynir að hafa áhrif á þig þekkir ekki allar staðreyndir málsins. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú hefur mikinn sjálfsaga og gerir stundum of miklar kröfur til sjálfs þín. Gömul hegðunarmunstur þjóna ekki endi- lega hagsmunum þínum eins og stendur. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þroski og sársauki fara stundum hönd í hönd. Leitaðu eftir hverju tækifæri til að gjalda góðmennsku sem þér hefur verið sýnd. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú finnur á þér að eitthvað er í uppsiglingu milli þín og ástvinar þíns. Búðu þig undir að fyrr eða síðar reyni á út- sjónarsemi þína. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú hefur vanrækt vini og vandamenn og nú er komið að því að bæta þeim það upp. Tengslanetið er eitt það dýrmætasta sem það á. 22. des. - 19. janúar Steingeit Mundu að þú ert aldrei einn. Ef þú vilt vera yfirgengilega örlátur, skaltu gerast róttækur. Ákveddu að taka ekki eft- ir því hvort fólk er jafn vinsamlegt við þig og þú við það. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Fólk flæðir inn og út úr lífi þínu eins og sjávarföllin, ýmist vilja allir athygli þína í einu eða allt er skyndilega horfið. 19. feb. - 20. mars Fiskar Gættu þess að sýna alltaf þau við- brögð sem nægjanleg eru hverju sinni. Varaðu þig og láttu ekki ofurkraftinn í þér eyðileggja fyrir þér sambönd. Sörla og fyrsti formaður þess. Hann sat í stjórn íþróttaráðs LH og var for- maður þess í eitt ár, var formaður íþróttadeildar Hestamannafélagsins Geysis í nokkur ár, er félagi í Félagi tamningamanna og situr í stjórn íþróttanefndar FEIF. Sigurður hefur haldið mörg námskeið, einkum í járn- ingum. „Eftir að við hjónin minnkuðum við okkur þá höfum við ferðast mikið og erum alltaf erlendis um þetta leyti ársins, en komum heim í lok febrúar.“ skeiði og samanlögðum stigum á Leikni frá Dýrfinnustöðum árið 1977 í Danmörku. Einnig á hann heims- meistara úr sinni ræktun en það er Hvinur frá Holtsmúla, sem varð heimsmeistari í tölti og var Jóhann Rúnar Skúlason knapinn. „Ég reyni að vera hlutlaus og fagna öllum heimsmeistaratitlum okkar Íslend- inga jafnmikið, en óneitanlega varð ég enn stoltari af þessum titli.“ Sigurður var einn af stofnendum íþróttadeildar Hestamannafélagsins S igurður Sæmundsson fæddist 15. febrúar 1950 í Hafnarfirði og ólst þar upp. Hann var í sveit í nokkur sumur hjá móður- bróður sínum á Hóli á Tjörnesi. „Ég byrjaði síðan með fjárbúskap í miðjum Hafnarfirði þegar ég var í kringum fimmtán ára og það kom við- tal við mig í Morgunblaðinu út af því. En stuttu seinna sneri ég mér alveg að hrossunum.“ Sigurður lauk gagnfræðaprófi frá Flensborg 1966, búfræðiprófi við Bændaskólann á Hvanneyri 1969, og meistaraprófi í járningum við Dýra- læknaháskólann í Stokkhólmi 1970. „Ég fór út með Gunnari Bjarnasyni að kynna íslenska hestinn, sá mann járna þar úti og hugsaði með mér að þetta þyrfti ég að læra.“ Sigurður kenndi járningar við Dýralæknaháskólann í Stokkhólmi í eitt ár en flutti aftur heim til íslands 1972. Hann var bústjóri hjá Sigur- birni Eiríkssyni í Álfsnesi í eitt ár, flutti þá til Hamarsfjarðar og vann við járningar og tamningar. Sigurður var brautryðjandi í járningum á Ís- landi og gerði járningar að faggrein. Sigurður keypti jörðina Holtsmúla í Landsveit 1982 og stundaði þar tamningar og hrossarækt. Sigurður byggði síðan upp hestabúgarðinn á Skeiðvöllum ásamt Viðari bróður sín- um. Búgarðurinn er um 350 hektarar með grasgefnum beitarhólfum. Byggingar hófust um áramótin 2006- 2007 og var flutt inn í fyrsta íbúðar- húsið í lok september 2007. Árið 2011 tók eldri dóttir hans, Katrín og sam- býlismaður hennar, Davíð Jónsson, yfir reksturinn á hesthúsinu. Þau eru aðallega með ferðaþjónustu, hesta- leigu og allskonar uppákomur fyrir ferðamenn og aðra svo sem nám- skeið, sölumót, sýnikennslu, hesta- vörubúð og fleira. „Við gömlu hjónin erum áfram í ræktuninni og uppeld- inu og höfum nokkrar stíur fyrir okk- ur.“ Sigurður er landsfrægur knapi og keppti á fjórum heimsmeistara- mótum frá 1972 og var landsliðs- einvaldur á tólf heimsmeistara mótum og náði frábærum árangri. Sjálfur varð hann heimsmeistari í Fjölskylda Eiginkona Sigurðar er Lisbeth Gerestig Sæmundsson, f. 23.6. 1949 í Svíþjóð, hrossabóndi. Þau hófu sam- búð 1970 en gengu í hjónaband 2.12. 1978. Foreldrar Lisbethar voru Otto Gerestig vélstjóri og Helmi Gerestig húsmóðir. Dætur Sigurðar og Lisbethar eru Katrín Ólína, f. 22.3. 1973, ferðaþjón- ustubóndi á Skeiðvöllum, maki henn- ar er Davíð Jónsson smiður og þau Sigurður Sæmundsson, hrossaræktandi og járningamaður – 70 ár Í reiðtúr Sigurður og Seiður frá Skammbeinsstöðum staddir við Réttanes. Landsliðseinvaldur til langs tíma Skeiðvellir Hestabúgarðurinn þar sem Sigurður ræktar hross sín.Hjónin Lisbeth og Sigurður. 40 ára Rakel er fædd í Óðinsvéum, Dan- mörku, ólst upp í Reykjavík og Reykja- nesbæ og býr í Reykja- nesbæ. Hún er grunn- skólakennari að mennt og kennir íslensku sem annað mál í Njarðvíkurskóla og er verk- efnastjóri yfir því. Maki: Gunnlaugur Kárason, f. 1976, sviðs- stjóri fjármála hjá HS veitum. Börn: Lovísa, f. 2003, Júlía, f. 2005, Elísa, f. 2008, og Emilía, f. 2010. Foreldrar: Erla Guðjónsdóttir, f. 1953, hús- móðir í Reykjanesbæ, maki: Guðmundur Birkisson; og Eiríkur Þorbjörnsson, f. 1951, rafmagnstæknifræðingur, bús. í Garðabæ, maki: Svanhildur Þengilsdóttir. Rakel Ósk Eiríksdóttir Til hamingju með daginn Reykjavík Sara Rós Smáradóttir fæddist 14. desember 2019 kl. 11.37. Hún vó 3.700 g og var 52 cm löng. For- eldrar hennar eru Hugrún Lind Júlíusdóttir og Smári Jón Hauksson. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.