Morgunblaðið - 15.02.2020, Síða 40

Morgunblaðið - 15.02.2020, Síða 40
EM 2020 Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Eftir fjörutíu daga er komið að lokaslagnum um sæti í lokakeppni Evrópumóts karla í fótbolta þegar Rúmenar mæta á Laugardalsvöll- inn fimmtudagskvöldið 26. mars. Fimm dögum síðar leikur sig- urliðið til úrslita á útivelli við ann- aðhvort Búlgaríu eða Ungverja- land. Miklar vangaveltur hafa verið um hvort Laugardalsvöllurinn verði leikfær eftir fjörutíu daga, enda al- gjört einsdæmi að spila leik sem þennan á Íslandi í marsmánuði. Það ræðst væntanlega ekki endanlega fyrr en á síðustu 5-10 dögunum fyrir leik hvert ástand hans verður. En hvernig verður ástandið á ís- lensku landsliðsmönnunum? Hvern- ig er þeirra undirbúningur fyrir þennan mikilvæga leik? Þeir verða á afar misjöfnu róli, margir verða langt komnir með sitt vetrartímabil á meðan aðrir eru enn á undirbún- ingstímabili og ekki farnir að spila alvöruleiki á árinu 2020. Erik Ham- rén landsliðsþjálfari gæti þurft að taka það með í reikninginn í liðsval- inu en hann hefur verið á ferðinni og fylgst vel með leikmönnunum, m.a. þeim sem hafa verið í æfingaferðum á Spáni síðustu vikur. Markverðirnir Af markvörðum landsliðsins verð- ur Ögmundur Kristinsson í mestu leikæfingunni. Hann hefur ekki misst úr leik með Larissa í grísku úr- valsdeildinni í vetur og reyndar spil- að alla leiki sinna liða frá því í apríl 2018. Rúnar Alex Rúnarsson verður væntanlega búinn að leika átta leiki í röð í marki Dijon í Frakklandi en Hannes Þór Halldórsson, sem að öllu óbreyttu mun verja mark Íslands í leiknum, mun enn eiga mánuð í fyrsta deildarleikinn með Val. Hann- es lék tvo landsleiki í janúar og býr sig að öðru leyti undir leikinn með því að spila í Reykjavíkurmóti og deildabikar. Ingvar Jónsson er á sama róli og Hannes, fluttur heim og kominn í markið hjá Víkingi en verður vænt- anlega ekki í hópnum nema einhver hinna þriggja forfallist. Varnarmennirnir Ragnar Sigurðsson, lykilmaður í vörn Íslands, er að stíga upp úr meiðslum og gæti spilað allt að níu leikjum með FC Köbenhavn í deild, bikar og Evrópukeppni á vikunum fram að Rúmeníuleiknum. Kári Árnason verður hinsvegar í deildabikarnum með Víkingi og hef- ur ekki spilað mótsleik frá landsleikj- unum í nóvember þegar Rúmenarnir koma. Ljóst er að Sverrir Ingi Inga- son og Hólmar Örn Eyjólfsson munu þrýsta á um sæti en þeir spila alla leiki sinna liða í Grikklandi og Búlg- aríu. Jón Guðni Fjóluson og Hörður Björgvin Magnússon hafa verið í vetrarfríi í Rússlandi en verða búnir með fjórar umferðir í deildinni fyrir landsleikinn. Daníel Leó Grétarsson spilar ekki fyrsta leik í norsku úr- valsdeildinni með Aalesund fyrr en eftir landsleikjatörnina. Vinstri bakvörðurinn Ari Freyr Skúlason var frá keppni í mánuð um jól og áramót en var kominn á fulla ferð um miðjan janúar og verður að óbreyttu búinn að spila á fullu í tvo mánuði fyrir Rúmeníuleikinn. Guðlaugur Victor Pálsson, hægri bakvörður í síðustu fjórum leikjum Íslands 2019, spilar alla leiki Darm- stadt í Þýskalandi og á sex deilda- leiki framundan á næstu vikum. Hjörtur Hermannsson var í stöðunni á undan honum en hann er að komast af stað á næstu dögum eftir meiðsli og gæti náð nokkrum leikjum með Bröndby í febrúar og mars. Birkir Már Sævarsson sem virðist vera orð- inn þriðji maður í stöðuna spilar með Val í deildabikarnum fram að lands- leiknum. Miðjumennirnir Aron Einar Gunnarsson missti af síðustu fjórum leikjum undankeppn- innar vegna meiðsla en hefur spilað alla leiki Al-Arabi frá því í desember. Gylfi Þór Sigurðsson hefur spilað flesta leiki Everton, missti af tveim- ur vegna nárameiðsla, og það eru góðar líkur á að hjarta miðjunnar komi í þokkalegu standi til leiks. Yf- irstandandi vetrarfrí á Englandi kemur Gylfa vafalítið til góða. Jóhann Berg Guðmundsson er mesta áhyggjuefnið en hann hefur aðeins náð að spila átta leiki með Burnley í allan vetur og meiðst þrisv- ar. Hann missir um helgina af sínum fimmta leik í röð en er sagður nánast tilbúinn á ný. Birkir Bjarnason er lít- ið búinn að spila með Brescia enn sem komið er en úr því gæti ræst á næstu vikum. Emil Hallfreðsson er kominn með fleiri leiki með Padova eftir áramót en hann spilaði allt síðasta ár og kemur væntanlega til greina á ný. Rúnar Már Sigurjónsson og Arnór Ingvi Traustason eru á undirbún- ingstímabili í Kasakstan og Svíþjóð en Arnór verður búinn að spila tvisv- ar gegn Wolfsburg í Evrópudeildinni og tímabilið hjá Rúnari hefst 6. mars. Mikael Anderson og Arnór Sig- urðsson verða komnir með nokkra leiki hjá Midtjylland og CSKA Moskva eftir vetrarfríið og Samúel Kári Friðjónsson er í baráttu um sæti í sínu nýja liði, Paderborn, í þýsku Bundesligunni. Aron Elís Þrándarson verður kominn með nokkra leiki hjá OB í Danmörku, Rúrik Gíslason hefur lít- ið spilað með Sandhausen síðustu mánuði en lék sinn fyrsta leik á árinu um síðustu helgi. Jón Dagur Þor- steinsson hjá AGF hefur verið meiddur og verður væntanlega í 21- árs landsliðinu sama dag. Þá er Al- bert Guðmundsson ekki byrjaður að spila með AZ eftir langa meiðsla- fjarveru. Þetta verkefni er vænt- anlega of snemma á ferðinni fyrir hann. Framherjarnir Alfreð Finnbogason missti af síð- ustu tveimur leikjum Íslands í nóv- ember vegna meiðsla en er byrjaður að spila með Augsburg og ætti að verða kominn í þokkalegt leikform. Jón Daði Böðvarsson spilar nokkuð reglulega hjá Millwall og Viðar Örn Kjartansson er kominn af stað í Tyrklandi. Kolbeinn Sigþórsson spilar hinsvegar ekki deildaleik með AIK í Svíþjóð fyrr en eftir lands- leikjahléið. Björn Bergmann Sigurð- arson er ekkert farinn að spila með APOEL á Kýpur og óljóst með stöðu hans þar eftir þjálfaraskipti. Staðan í dag: Ef leikurinn færi fram í dag gæti Erik Hamrén líklega teflt fram sínu óskaliði, að Jóhanni Berg undanskildum. Talsvert leikja- álag er framundan hjá mörgum landsliðsmannanna og hættan á að einhverjir þeirra heltist úr lestinni vegna meiðsla er alltaf fyrir hendi. 40 dagar, hver er staðan?  Umspilsleikurinn gegn Rúmeníu 26. mars  Íslensku leikmennirnir verða á misjöfnu róli þegar að honum kemur  Langflestir eru leikfærir í dag Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Laugardalsvöllur Sverrir Ingi Ingason, Gylfi Þór Sigurðsson og Emil Hallfreðsson í síðasta heimaleik Íslands sem var gegn Andorra 14. október. Nú eru fjörutíu dagar í stóru stundina þegar Rúmenar koma í heimsókn í umspilinu. 40 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2020 Olísdeild kvenna Valur – Afturelding .............................. 32:22 Staðan: Fram 15 14 0 1 480:320 28 Valur 16 13 1 2 444:330 27 Stjarnan 15 7 3 5 380:362 17 HK 15 6 2 7 403:414 14 Haukar 15 5 2 8 327:373 12 KA/Þór 15 6 0 9 351:420 12 ÍBV 15 5 2 8 334:353 12 Afturelding 16 0 0 16 303:450 0 Grill 66 deild kvenna Grótta – ÍR............................................ 22:23 Staða efstu liða: Fram U 16 16 0 0 526:365 32 FH 16 13 1 2 449:349 27 Selfoss 16 11 2 3 377:337 24 Grótta 17 11 1 5 439:405 23 ÍR 17 9 1 7 438:417 19 Valur U 16 7 1 8 432:421 15 Grill 66 deild karla Grótta – Fjölnir U ................................ 39:26 Staða efstu liða: Þór Ak. 12 10 2 0 365:312 22 Haukar U 13 8 1 4 380:341 17 Valur U 13 8 1 4 381:371 17 Grótta 13 8 0 5 381:360 16 Þróttur 13 6 2 5 388:366 14 Svíþjóð Guif – Kristianstad.............................. 21:29  Teitur Örn Einarsson skoraði 5 mörk fyrir Kristianstad en Ólafur Andrés Guð- mundsson lék ekki með liðinu. Danmörk Kolding – Mors-Thy ............................ 27:38  Ólafur Gústafsson og Árni Bragi Eyj- ólfsson komust ekki á blað hjá Kolding. Þýskaland B-deild: Bietigheim – Aue................................. 33:29  Hannes Jón Jónsson þjálfar Bietigheim. Hamm – Hamburg............................... 24:24  Aron Rafn Eðvarðsson varði 10 skot í marki Hamburg. Frakkland B-deild: Valence – Cesson-Rennes................... 24:27  Geir Guðmundsson skoraði ekki fyrir Cesson-Rennes.  Spánn Bikarkeppnin, undanúrslit: Unicaja Málaga – Zaragoza ............... 90:86  Tryggvi Snær Hlinason skoraði 2 stig og tók 4 fráköst á 12 mínútum með Zaragoza. Svíþjóð Umeå – Borås..................................... 68:102  Elvar Már Friðriksson skoraði 9 stig, tók 2 fráköst og gaf 8 stoðsendingar á 23 mín. hjá Borås og var fyrirliði liðsins. NBA-deildin Boston – LA Clippers .......... (2. frl.) 141:133 New Orleans – Oklahoma City........ 118:123  KÖRFUKNATTLEIKUR Bikarúrslitaleikur karla: Laugardalsh.: Stjarnan – Grindavík L13.30 Bikarúrslitaleikur kvenna: Laugardalshöll: KR – Skallagrímur... 16.30 HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Framhús: Fram – HK ....................... L15.30 Ásgarður: Stjarnan – KA....................... L18 Eyjar: ÍBV – Haukar.............................. S16 Kaplakriki: FH – ÍR .......................... S19.30 Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin: Kórinn: HK – Haukar ............................ L14 Ásgarður: Stjarnan – Þór/KA ............... L16 1. deild karla, Grill 66-deildin: Höllin Ak.: Þór Ak. – Víkingur .............. L15 Kaplakriki: FH U – KA U................. L16.30 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Origo-höll: Valur U – ÍBV U.................. S14 Framhús: Fram U – Víkingur ............... S15 TM-höllin: Stjarnan U – Fylkir ............. S16 Kaplakriki: FH – Fjölnir........................ S17 Hleðsluhöll: Selfoss – HK U ............. S19.30 KNATTSPYRNA Deildabikar karla, Lengjubikarinn Kórinn: HK – Grindavík ................... L11.30 Fjarðab.höll: Leiknir F. – Aftureld ...... L13 Boginn: KA – Fylkir............................... L15 Egilshöll: Fram – Keflavík ............... L17.15 Origo-völlur: Valur – Vestri ................... S11 Eimskipsvöllur: ÍBV – Víkingur Ó........ S14 Boginn: Magni – Víkingur R.................. S15 Deildabikar kvenna, Lengjubikarinn: Fífan: Breiðablik – Selfoss .................... L11 Boginn: Þór/KA – Valur......................... L17 Enski boltinn á Símanum Sport Southampton – Burnley.................... L12.30 Norwich – Liverpool.......................... L17.30 Aston Villa – Tottenham ........................ S14 Arsenal – Newcastle .......................... S16.30 UM HELGINA! Valur minnkaði forskot Fram á toppi Olísdeildar kvenna í handbolta niður í eitt stig með öruggum 32:22- sigri á Aftureldingu á heimavelli í gærkvöldi. Valskonur voru með yfir- höndina allan tímann og var sig- urinn aldrei í hættu gegn stigalausu liði Aftureldingar. Lovísa Thompson skoraði tíu mörk fyrir Val og er hún komin með 24 mörk í síðustu tveim- ur leikjum. Gerði hún 14 mörk í sigri á HK í síðustu umferð. Ragnheiður Edda Þórðardóttir bætti við fimm mörkum. Roberta Ivanauskaite gerði sjö fyrir Aftureldingu. Með 24 mörk í tveimur leikjum Morgunblaðið/Eggert Sjóðheit Lovísa Thompson raðar inn mörkunum með Valskonum. Enska knattspyrnufélagið Man- chester City má ekki leika í Meist- aradeild Evrópu á næstu tveimur árum vegna brota á fjárhags- reglum UEFA. Þá var félagið sekt- að um 30 milljónir evra. Enska fé- lagið á að hafa gefið UEFA rangar upplýsingar varðandi styrktarað- ila. Samkvæmt úrskurðinum lugu forráðamenn City til um að 67,5 milljónir punda sem eigandinn Sheikh Mansour bin Zayed Al Na- hyan setti í félagið hefðu verið aug- lýsingatekjur. Félagið ætlar að áfrýja úrskurðinum. Man. City í Meist- aradeildarbann AFP Vonbrigði Pep Guardiola, knatt- spyrnustjóri Manchester City.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.